Réttur


Réttur - 01.01.1950, Page 65

Réttur - 01.01.1950, Page 65
RETTUR 65 þessara stórfljóta; láta þau hætta að renna til norðurs, en bægja þeim suður aftur, eða réttara sagt í suövestur. Stíflan í Yenisei er fyrir sunnan borgina Igarka (fyrir norð- an heimskautsbaug). Fyrir ofan þessa stíflu myndast einnig stórt stöðuvatn, en úr því er svo vatninu veitt um 400 km langan skurð í stóra vatniö ofan við Ob-stífluna, en það vatn er skeifu- lagað og teygir annan arminn móti skurðinum. Útrás vatnanna beggja verður svo gegnum 4000 km langan árfarveg í suðvestur til Aralvatns og þaðan austur gegnum Túran-sléttuna út í Kaspía- haf. ATOMORKA TIL FRIÐSAMLEGRA NOTA Þegar Davidov útskýrði áætlun sína í Orkumálastofnuninni í Moskvu, þá benti hann áheyrendum sínum á Turgai-skörðin milli Úral og Kákasusfjalla. „Þetta er erfiðasti hluti fyrirtækisins" sagði hann. „Turgai'-skörðin liggja á vatnaskilum milli Vestur- Síberíu og.Aral-Kaspía-sléttunnar. Flæsti hluti þeirra er 49 metrum hærri en vatnsborÖ fljótanna, þegar búið er að stífla þau. Þennan þröskuld þarf að sprengja úr vegi. Þarna þarf að grafa skurð, sem verður að vera 930 km langur og tuttugu metra djúpur svo að vatnið fái framrás.“ Sumir af eldri vísindamönnunum hristu nú höfuðin og hugsuðu „þetta er óframkvæmanlegt", en Davidov sat við sinn keip: „Þetta er vissulega mjög erfitt úrlausnar, en þið megið trúa mér að með þeirri tækni, sem við höfum nú yfir að ráða, er þetta leysanlegt“. Nú á öSru ári eftir aS þessi merkilegi fyrirlestur var kaldinn, veit heimurinn bvernig sovét-verkfrœðingarnir hafa sigrazt á stærsta erfiSleikanum í áætlun Davidovs. ÞaS var i Turgai-skörð- um, sem sprengingarnar fóru fram, sem Ameríkanar urðu varir við á jarðskjálftamælum s'tnum. Það voru þessar sprengingar, sem ollu því að Truman, Bandaríkjaforseti, þaut í ofboði i hljóð- 5

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.