Réttur - 02.05.1950, Qupperneq 3
RÉTTUR
83
En dropi á huldu hafi ’ann er!
Og heiminum það sem vannstu gott
Og allt sem varst, og vonum enn
Að verða munir, stóra þjóð,
Og fyrir þína miklu menn
Og mannkyns gagn sem af þeim stóð:
Þá áttu helga heimting á
Um höfuðglæp þinn níð að fá.“
Þannig orti Stephan G. í ,,Transvaal“ 1899, — fyrir 50
árum síðan. Og það mun alltaf verða prófsteinn á, hvort
Islendingur ann frelsi sinnar eigin þjóðar, hverja afstöðu
hann tekur til annarra smáþjóða, sem berjast fyrir frelsi
sínu gegn arðræningjum og nýlendukúgurum nútímans.
Og skulum við nú athuga aðferð Bretlands við Malaja-
þjóð í ljósi vorrar eigin frelsisbaráttu, vorra eigin erfða
og kenninga.
Brezka auðvaldið leggur undir sig Malakkaskaga
og rænir auðlindir hans.
„Þín trú er sú, að sölsa upp grund,
Þín siðmenning er sterlings pund.“
Stephan G. St.: „Transvaal“.
1 Malajaríkjum búa nú um 5 % milljón manna. 1931
voru 39% íbúanna Kínverjar, 37,5% Malajar, 14% Ind-
verjar, og yfir 8% aðrar Asíuþjóðir. Það er hinn gífurlegi
innflutningur fólks, einkum Kínverja, sem notaðir eru sem
verkamenn, sem hefur aukið íbúatöluna úr 2% milljón,
sem hún var 1911. Dauðratalan er ægilega há, bæði í fá-
tækra’hverfum borganna og malaríusvæðum sveitanna. I
borginni Jahore er barnadauðinn svo hár, samkvæmt
brezkum skýrslum, að 280 börn deyja á ári af hverjum
1000, sem fæðast.
En Malajalönd eru rík að auðlindum. Þess vegna hafa