Réttur - 02.05.1950, Síða 6
86
RÉTTUR
Malaja í hendur Japans.“ Þetta var þá hljóðið, jafnvel í
íhaldsblöðum eins og Daily Express, Evening Standard
og The Times.
Brezkum yfirráðum í Malaja 1942 lauk með smán.
En íbúar Malakkaskaga tóku upp baráttuna fyrir frelsi
sinu gegn Japönum. Tíu þúsund manna þjóðlið var skipu-
lagt til baráttu við Japani (Malayan People’s Anti-Jap-
anese Army: M. P. A. J. A.). 1 3% ár barðist þessi þjóð-
her við Japani, þoldi pintingar þeirra og ógnir frumskóg-
anna. Þúsundir féllu. Með blóði sínu þurrkaði þessi her,
mestmegnis undir forustu ltínverskra Malajabúa, út
smánina frá Singapore, smán brezku hershöfðingjanna.
I ágúst 1945 frelsaði þjóðher þessi Malajalönd. Frelsi og
lýðræði varð nú hultskipti þeirra. Sjálfir 'höfðu Malajar
unnið sér það hnoss. Alþýðan skipulagði samtök sín. 300
þúsund verkamenn og verkakonur mynduðu verkalýðs-
samband Malaja. Stjórnmálaflokkar, æskulýðssambönd,
kvenfélög og önnur samtök, sem vaxið höfðu upp með
þjóðinni í frelsisbaráttunni við Japani, tóku til starfa og
mynduðu þjóðarsamtök til baráttu fyrir frelsi sínu og
betri lífskjörum. Og þjóðin átti skilið að fá nú að njóta
ávaxtanna af hetjulegri baráttu sinni og fórnum.
Bretar launa frelsishetjunum á sinn hátt.
Brezkur her lenti á Malakkaskaga í september 1945.
Malajar höfðu rekið Japani burtu, svo þeim var óhætt.
Næstu mánuði færði brezki herinn sig um allt landið.
Brezka yfirráðastefnan beitti nú jöfnum höndum hræsn-
inni og ofbeldinu til að ná aftur undirtökunum á Malakka-
skaga.
Það skorti ekki fögur orð og heiðursmerki handa skæru-
liðum Malajaþjóðarinnar.
Mountbatten lávarður mælti til Malaja-þjóðarinnar, er