Réttur - 02.05.1950, Síða 9
RÉTTUR
89
málaráðherra, sagði að „kommúnistar í Malaja hefðu grip-
ið til vopna, af því þeim hefði ekki tekizt að fá neinn stuðn-
ing í verkalýðsfélögunum. En Malcolm MacDonald, lands-
höfðingi Breta á Malakkaskaga, sagði að verkalýðsfélögin
hefðu verið bönnuð af því „kommúnistar hefðu ráðið
þeim!“
Forseti verkalýðssambandsins, S. R. Ganapathy, var
skotinn 1949. Rétt á eftir var eftirmaður hans, P. Veera-
senen, einnig skotinn af Bretum. Ritari gúmmíverka-
mannasambandsins og námumannasambandsins voru báðir
skotnir, af lögreglu og her. 185 forustumenn verkalýðsfé-
laga voru fangelsaðir samtímis.
Verkalýðsleiðtogar fangelsaðir og skotnir. Viskí-vamb-
arnir aftur ofan á. Gúmmí- og tingróðinn hækkar um 50%
á síðustu tveim árum. Tíu þúsund manna hafa verið fang-
elsaðir, tíu þúsund reknar í útlegð. Mannsöfnuður fleiri en
fimm manna bannaður. Heil þorp Malaja eru brennd til
ösku. Bretar kasta sprengjum á skóla. Jafnvel brezku
íhaldsblöðin birta lýsingar af brennandi kofum íbúanna,
eftir að Bretar hafa kveikt í þeim, — af skólabörnum, sem
brunnið hafa lifandi af völdum brezkra eldkastara.
Brezku auðmennimir feta nú í fótspor nazistanna, er
jöfnuðu Lidice við jörðu, og japönsku glæpamannanna,
sem frelsishreyfing Malaja hrakti á brott.
En frelsisást Malajaþjóðarinnar verður ekki brotin á bak
aftur frekar en annarra undirokaðra Asíuþjóða, sem nú
hrinda oki hvítu auðmannanna af herðum sér.