Réttur - 02.05.1950, Qupperneq 15
Stephen Leacock:
Nútíma hetja
eða lífsbarátta Esekíasar Haylofts.
(Stephen Leacock er kanadiskur rithöfundur, kunnur fyrir
snjallar háðsögur sínar, en jafnframt afkastamikill hagfræðingur.
Hann var prófessor í hagfræði í Mc Gill háskólanum í Montreal).
Er hægt að fá nokkra vinnu hér?
Múrarameistarinn, sem var uppi á smíðapallinum, leit
tóður á 'þann, sem spurði. Eitthvað í svip piltsins, sem
horfði upp til 'hans, hafði þau áhrif á hann, að hann fleygði
í hann múrsteini.
Þetta var Esekias Hayloft. Hann var í heimofnum vað-
málsfötum yzt sem innst og bar sinn malpokann í hvorri
hendi. Hann hafði komið til New York, hinnar miskunnar-
lausu stórborgar, í atvinnuleit.
Esekias hélt áfram göngu sinni, en nokkru seinna nam
hann staðar fyrir framan lögregluþjón.
Herra, sagði hann, getið þér vísað mér leið til —
Lögregluþjónninn gaf honum rokna löðrung.
Ég skal venja þig af að koma með heimskulegar spum-
ingar, sagði hann.
Aftur hélt Esekias áfram. Að lítilli stundu liðinni mætti
hann manni. Hár, svartur hattur hans, svart veski og
hvítt hálsknýti gáfu til kynna, að hann var prestur.
Góði herra, sagði Esekias, getið þér sagt mér —
Urrandi eins og hýena stökk presturinn á hann og beit
stykki úr eyranu á honum. Já, kæri lesandi, það gerði hann.
Hugsið yður bara prest, sem bítur dreng um hábjartan