Réttur - 02.05.1950, Side 27
RÉTTUR
107
í baráttunni við fátæktina óx þannig upp hinn þolgóði for-
vígismaður fyrir frelsun verkalýðsins.
Þegar Bebel var 18 ára, lauk hann iðnnámi sínu og gerðist nú
sjálfstæður vélvirki. Þegar hann var tvítugur, var hann viðstadd-
ur fund verkamanna í Leipzig
og hlýddi á ræður verkamanna,
sem voru sósíalistar. Þetta var
í fyrsta sinn, sem hann hlýddi á
verkamenn í ræðustól. Um
þetta leyti var Bebel enn ekki
orðinn sósíalisti. Hann hallaðist
að frjálslyndum, en þessar sjálf-
stæðu ræður verkamanna vöktu
hjá honum óblandinn fögnuð.
Hann öfundaði þá af mælsku
þeirra, og nú vaknaði hjá hon-
um sterk löngun til að verða
málsnjall talsmaður verka-
manna eins og þeir.
Frá þeim tíma hófst hið nýja
líf Bebels. Nú hafði hann ákveð-
ið, hvaða braut hann vildi
ganga. Hann gerðist nú meðlim-
ur í samtökum verkamanna og starfaði þar af atorku. Hann ávann
sér brátt traust og var kosinn í stjórnarstarf. í starfi sínu í verka-
lýðsfélögunum fylgdi hann frjálslyndum að málum og barðist gegn
sósíalistum, en í baráttunni við þá sannfærðist hann smám sam-
an um, að þeir hefðu rétt fyrir sér.
Þegar hann var 26 ára, var hann orðinn sósíaldemókrat*) Orð-
stír Bebels óx nú svo hratt, að hann var ári síðar (1867) kjörinn
'*) Á þeim árum þýddi orðið „sósíaldemókrat“ sama og sósíal-
isti nú eða kommúnisti í munni borgarablaðanna hér. Bolsévíka-
flokkurinn 1 Rússlandi hét þá Hinn sósíaldemókratíski verka-
mannaflokkur Rússlands. — Þýð.
Jósef Stalín