Réttur - 02.05.1950, Síða 28
108
RÉTTUR
formaður trúnaðarráðs og fyrsti fulltrúi verkamanna á þingi.
Þannig gekk Bebel að lokum fram úr röðum óbreyttra verka-
manna í harðri baráttu, eftir að hafa sigrazt á tálmunum hinna
kröppu kjara, og varð leiðtogi þýzkra verkamanna í frelsisbar-
áttu þeirra.
Upp frá því barðist Bebel afdráttarlaust fyrir stefnu sósíal-
demókrata. Fyrsta markmið hans var að heyja baráttu við frjáls-
lynda, losa verkamenn undan áhrifum þeirra og sameina þá í
þeirra eigin sósíaldemókratíska verkamannaflokki. Bebel náði
þessu takmarki sínu árið eftir (1868) á þinginu í Niirnberg. Mark-
viss og hörð sókn Bebels á þinginu leiddi til fullkomins ósigurs
frjálslyndra, og á rústum hins borgaralega líberalisma reis flokk-
ur þýzkra sósíaldemókrata.
Frelsun verkalýðsins fæst ekki nema með baráttu verkalýðsins
sjálfs, sagði Bebel á þinginu. Þess vegna verða verkamenn að snúa
baki við hinum frjálslyndu borgurum og sameinast í sínum eigin
flokki, og yfirgnæfandi meirihluti þingsins tók, þrátt fyrir hina
fáu fulltrúa frjálslyndra, með Bebel undir hin fleygu orð Karls
Marx.
Ef verkalýðurinn á að vinna fullkominn sigur í frelsisbaráttu
sinni, er nauðsynlegt, að verkamenn allra landa sameinist, sagði
Bebel. Þess vegna er nauðsynlegt að ganga í alþjóðasamtök verka-
manna — og meiri hluti þingsins hafði einum rómi upp eftir hon-
um orð hins mikla læriföður. Þannig fæddist hinn sósíaldemó-
kratíski verkamannaflokkur Þýzkalands. Bebel var ljósmóðir
hans.
Þaðan af varð líf Bebels eitt og hið sama og líf flokksins, sorgir
hans og gleði runnu saman við sorgir og gleði flokksins. Bebel
varð augasteinn og aflgjafi þýzkra verkamanna, því að það er
ómögulegt annað, félagar, en að elska þann mann, sem hefur átt
svo ríkan þátt í því að gera verkamennina sjálfstæða, losa þá
undan handleiðslu hinna frjálslyndu borgara og skapa þeirra
eigin verkamannaflokk.
Árið 1870 færði hinum unga flokki eldskírnina. Stríðið við
Frakkland var að hefjast, og þýzka stjórnin krafðist fjárveitinga