Réttur - 02.05.1950, Page 32
112
RÉTTUR
Einungis gunnreifur verkalýður gat fætt af sér slíkt líf, hinn
síunga, síhugumstóra Bebel — mann skapaðan í hans eigin mynd.
Einungis kenningar hins vísindalega sósíalisma gátu gefið hinum
djarfhuga Bebel hina sönnu yfirsýn í þrotlausri baráttu hans
fyrir kollvörpun hins gamla, feyskna auðvaldsheims. Með lífi
sínu og starfi er Bebel tákn um styrk og ósigranleik verkalýðsins,
um óhjákvæmilegan sigur sósíalismans....
Við skulum nú, félagar, senda kveðju okkar hinum ástfólgna
læriföður, járnsmiðnum August Bebel!
Megi hann verða fyrirmynd okkar, rússneskra verkamanna,
sem þurfum svo mjög á jafnokum hans að halda í verkalýðs-
hreyfingunni!
LENGI LIFI BEBEL!
LENGI LIFI HIN ALÞJÓÐLEGA HREYFING SÓSÍALDEMÓ-
KRATA!
Gefið út í sérstökum bæklingi.
23. marz 1910.
Baku-ncfnd hins sósíaldemókratíska
verkamannaflokks Rússlands.