Réttur - 02.05.1950, Qupperneq 35
RÉTTUR
115
Á síðastliðnum vetrí reiddi svo ríkisstjórnin -hærra til
höggs gegn allri alþýðu manna en nokkru sinni fyrr með '
gengislækkuninni, sem hratt nýrri og stórri dýrtíðarbylgju
af stað.
Fyrir frumkvæði ýmissa verkalýðsfélaga kvaddi stjóm
ASl saman ráðstefnu allra sambandsfélaga, þótt ekki
væri lýðræðislega til hennar boðað, þar sem einungis for-
menn voru boðaðir. Ráðstefnan var kvödd saman í þann
mund, er gengislækkunarlögin voru til umræðu á Alþingi.
Ráðstefna þessi varð að mörgu leyti þýðingarmikil.
Veigamesta einkenni hennar var það, að hún endurspeglaði
þann almenna og vaxandi vilja, sem er að þróast meðal
verkalýðsins um allt land til að sameinast á landsmæli-
kvarða til varnar gengdarlausum árásum á lífskjör hans.
Rétt undir það, er Alþingi samþykkti gengislögin, lagði
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík til við stjórn
ASl, að hún athugaði möguleikana á allsherjarmótmæla-
verkfalli um landið gegn samþykkt gengislækkunarfmm-
varpsins.
Tillaga þessi var hundsuð af stjórn ASl og hið rétta
augnablik látið hjá líða, en tillagan síðan felld.
Á því er enginn vafi, að þátttaka í slíku allsherjarverk-
falli hefði orðið mjög almenn og hefði orkað mjög til að
þjappa verkalýðnum saman og auðvelda honum framhald
baráttunnar.
I júlí sl. kom svo til þess, að reikna skyldi út kaupgjalds-
vísitölu til áramóta.
Samkvæmt gengislækkunarlögunum sjálfum hefði vísi-
talan átt að vera um 117 stig.
En þá greip ríkisstjórnin inn í málið og beitti einu hinu
fruntalegasta og um leið klunnalegasta bragði, sem um
getur:
í samráði við hana ákveður meirihluti kauplagsnefndar
vísitöluna 109 stig í stað ca. 117. Ríkisstjórnin lýsir síðan
yfir, að vegna auglýstrar gerfilækkunar á húsaleigu, þyki