Réttur - 02.05.1950, Page 47
KENNETH SPENCER:
Grísku börnin
Kenneth Spencer, höfundur þessarar greinar, var í tvö
ár stjórnmálaráðunautur yfirmanns hernámsstjórnar-
innar í Berlín, og í eitt misseri eftirlitsmaður rann-
sóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna í Grikklandi. —
Greinin birtist í enska vikublaðinu The New Statesman
and Nation, 14. janúar 1950 undir sömu fyrirsögn og
hér. Vikublað þetta nýtur virðingar um allan heim
sem eitt áreiðanlegasta heimildarrit um alþjóðamál.
Það er eindregið stuðningsblað brezku verkamanna-
flokksstjórnarinnar, þótt það hafi oft deilt hvasslega
á stefnu hennar, einkum í utanríkismálum.
„Við erum að syrgja 28000 lítil Lindbergsbörn“ sagði
drottning Grikklands í ræðu sem hún hélt af 'því tilefni
að þjóðarsorg var haldin um allt Grikkland hinn 29. des-
ember, vegna barna sem talið var að skæruliðar hefðu
rænt. Sama dag óskaði dr. Fisher, erkibiskup af Kant-
araborg, eftir því að beðið væri fyrir þessum börnum í
kirkjum alls Bretlands. Herra Bevin (utanríkisráðherra)
vék að þessu máli í Neðri deild breska þingsins 16. nóv-
ember með svofelldum orðum: „Ég tel þetta eitt mesta
illræðisverk allra alda“.
Ef 28000 börn hefðu verið slitin með ofbeldi frá for-
eldrum sínum gegn mótmælum þeirra, þá væri það vissu-
lega illræðisverk. Og sú túlkun er nú mjög útbreidd
og henni trúað víðsvegar í hinum vestræna heimi um
atburði sem gerðust í Norður-Grikklandi vorið 1948. Hins-