Réttur - 02.05.1950, Blaðsíða 67
RÉTTUR
147
ríkjanna séu að vinna að því að gera áætlun um undirboð í stór-
um stíl, er leggja eigi fyrir Bandaríkjamenn sem „hjálp“ til ann-
arra landa í nýrri mynd.
Samkvæmt þessari áætlun, skrifar blaðið, er gert ráð fyrir að
flytja út vörur fyrir verð, sem er undir framleiðslukostnaði — það
er um að ræða „eina til tvær milljónir lesta af korni, ávöxtum,
baðmull og tóbaki á ári.“
Bandaríkjaþing samþykkti á síðasta starfstímabili sínu heimild
til að láta bandarískar landbúnaðarvörur, sem ofgnótt væri til af,
við lágu verði í skiptum fyrir þýðingarmikil erlend hráefni.
Auk undirboðanna á landbúnaðarvörum kveður æ meira að
bandarískum undirboðum á öðrum sviðum, eftir því sem sam-
keppnin um markaðina harðnar. Lönd þau, sem aðilar eru að
Genfarsamþykktinni um tolla og verzlun, héldu með sér ráðstefnu
1949, og þar bar fulltrúi Kúbu fram beina ásökun á Bandaríkin
fyrir að senda bandarískar undirboðsvörur inn á markað Kúbu.
Afleiðing þess er sú, að nú ríkir mjög alvarleg kreppa í dúkaiðn-
aði Kúbu.
Hin svonefnda bandaríska „hjálp“ hefur þegar leitt til efna-
hagslegrar hnignunar marshalllandanna og stöðnunar í iðnaði
þeirra. Nú eru þessi ósjálfstæðu lönd farin að skilja þetta, og
sá tími er löngu liðinn, er mörg þeirra tóku Marshalláætluninni
fegins hendi.
í baráttunni við vaxandi kreppu hafa bandarískir einokunar-
sinnar því eftirtalin vopn í vopnabúri sínu:
Stórar hergagnapantanir hjá iðnaðinum og stórkostleg fjár-
framlög til hernaðarþarfa;
útflutning offramleiðsluvara sem hjálp samkvæmt Marshallá-
ætlun, verzlunarstríð þ. e. a. s. undirboð af hálfu einokunarhringa
og félaga og töpin greidd beint úr ríkissjóði á kostnað skattgreið-
enda.
Viðhald hins háa verðlags landbúnaðarvara á heimamarkaðinum
með eyðileggingu matvæla-„offramleiðslu“ eða með beinum rík-
isstyrkjum til félaga, sem kaupa matvæli og hráefni háu verði á