Réttur - 01.05.1961, Side 14
174
R É T T U R
sem verklýðssamtökin hafa treyst á, að fylgt yrði, eftir að bú-
ið var að afnema með lögum kaupbœtur samkvæmt vísitölu.
Alítum vér óhjákvæmilegt, að Alþingi yrði til kvatt, áður en
nokkur slík stefnulireyting yrði ákveðin.
Jafnframt viljum vér leiða alhygli hæstvirtrar ríkisstjórnar
að eftirfarandi slaðreynd í sambandi við kaupgjaldsmálin,
eins og þau standa nú:
Tímakaup Dagsbrúnarverkamanna er nú 22.74 kr. sam-
kvæmt nýgerðum kaupsamningum, — en var í desember 1958
og janúar 1959 23.86 kr. — Kaupgjaldið þyrfti því enn að
hækka um 5% til þess að ná því kaupgjaldi í krónutölu, sem
var fyrir 2þf> ári síðan. — En frá því í marz 1959 þar til í júlí
þ. á. hefur verðlag á vörum og þjónuslu hækkað um 19% án
nokkurrar verðlagsuppbótar.
Þessar tölur sýna, hve fráleitt það væri og ranglátt að ætla
nú að beita ríkisvaldinu til þess að rýra kjör almennings frá
því, sem nú hefur verið um samið í frjálsum samningum, enda
augljóst, að slíkar ráðstafanir hlytu að kalla á nýjar gagnráð-
stafanir verklýðssamtakanna.
Jafnframt er rétt að minna á, vegna fyrri yfirlýsinga ríkis-
stjórnarinnar, — að kaupgjald íslenzkra verkamanna er eflir
nýafstaðnar kauphækkanir lægra en stéttarbræðra þeirra á
Norðurlöndum, — að sérstakt góðæri er nú um síldarafla,
meira en verið hefur um tvo áratugi, -—■ og að verðlag á út-
flutningsvörum fer hækkandi, aðalútflutningsvörurnar hafa
hækkað um 10—30%.
Oll rök hníga þess vegna að því, að áður en tekið væri að
beita ríkisvaldinu til þjóðhætlulegra verðhækkana, beri að
kveðja Alþingi saman til þess að gefa því kost á að taka
ákvarðanir í þessum stórmálum og marka stefnuna.
Þá viljum vér og leggja áherzlu á það, að vér ætlum, að
ástand ríkissjóðs, ráðstöfun þjóðarframleiðslunnar og ástand-
ið í sölumálum útflutningsins, ekki sízt hvað síldina snertir,
gerðu það og mjög brýnt, að Alþingi fjallaði um þau mál öll
nú þegar.
Síðast en ekki sízt viljum vér ítreka þær kröfur, er fram
hafa verið bornar af hálfu fulltrúa þingflokksins í utanríkis-
málanefnd um, að Alþingi verði kallað saman nú þegar vegna