Réttur - 01.05.1961, Page 29
R E T T U R
189
hætta á skorti lífsnauðsyuja. Hvergi var vart óánægju hjá
húsmæðrum eða öðrum, sem urðu fyrir óþægindum vegna
lokunar sölubúðanna og sýndi það vel hug almennings til
verkfallsaðgerðanna. Helztu erfiðleikarnir í framkvæmd
þessa þáttar verkfallsins voru þeir að fá verzlunarfólk íil
starfa í undanþágubúðunum. Engir voru fúsir til að vinna
meðan félagar þeirra stæðu í verkfalii.
Með framkvæmd verkfalls verzlunar- og skrifstofufólks
var í raun orðið um að ræða hreint allsherjarverkfall,
e. t. v. hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Sama dag og
það hófst samþykktu verkfalls- og samninganefndir verk-
fallsfélaganna að tilkynna Mjólkursamlagi KEA, að frá
og með mánudeginum 5. júní yrði stöðvuð öll vinna hjá
fyrirtækinu, önnur en gerilsneyðing og dreifing nýmjólkur,
enda var þá liðinn sá vikufrestur, sem því var í upphafi
gefinn. Daginn eftir barst Iðju svarbréf frá fyrirtækinu og
var þar tilkynnt að það mundi halda áfram vinnu í fyrir-
tækinu, að svo miklu leyti sem það gæti, með „ófélags-
bundnu fólki og verkstjórum“, þ. e. a. s. með verkfalls-
brjótum. Kom þessi yfirlýsing mjög á óvart eftir það sem
á undan var gengið, enda var þegar sýnt á næsta degi að sú
fjandsamlega afstaða, sem í þessu lýsti sér, hafði lotið í
lægra haldi fyrir sáttfúsari öflum í forustu KEA.
Aðfaranótt laugardagsins 3. júní varð kunnugt um afdrif
v,miðlunartillögunnar“ í verkalýðsfélögunum í Reykjavík,
að hún hefði verið kolfelld í öllum mikilsverðustu félögun-
um og með morgni þess dags tilkynnti framkvæmdastjóri
KEA samninganefndum verkalýðsfélaganna að óskað væri
uýrra viðræðna við þau um samninga. Var þá rétt vika liðin
fi'á því er uppúr slitnaði fyrri samningaumleitunum. Á
þeini fundum, sem nú fóru í hönd, átti Vinnuveitendafélag
Akureyrar áheyrnarfulltrúa en framkvæmdastjóri Iðnaðar-
deildar SIS var þar viðsemjandi fyrir SÍS.