Réttur


Réttur - 01.05.1961, Page 40

Réttur - 01.05.1961, Page 40
200 RETTB8 nein þingræðissamkunda, heldur starfandi stofnun, sem hefði á hendi bæði löggjafar- og framkvæmdavald. Lögreglan, sem hingað til hafði verið verkfæri ríkisstjórnarinnar, var nú svipt öllum pólitískum eiginleikum sínum og gerð að ábyrgu starfstæki Kommúnunnar, sem væri afsetj anlegt, hvenær sem var. Þannig var farið með embættismenn í öllum deildum hins opinbera. Fyrir öll opinber störf voru aðeins greidd verkamannalaun, einnig með- limum Kommúnunnar. Sérréttindi og eyðslufé æðri embættis- manna í virðingarstöðum ríkisins hurfu af sjálfu sér um leið og þessir höfðingjar sjálfir. Þegar Kommúnan hafði rutt úr vegi veraldlegum valdatækjum gömlu stjórnarinnar, fasta hernum og lögregluliðinu, sneri hún sér undir eins að því að brjóta á bak aftur andlega kúgunartækið, klerkavaldið......... Dómararnir voru ekki lengur öllum óháðir, eins og þeir voru áður látnir sýnast, .... framvegis skyldu þeir kosnir, ábyrgir og afsetjanlegir.“ (Marx 1871.) „Þessar einföldu og „sjálfsögðu“ lýðræðisráðstafanir, sem hér um ræðir, eru sameinlegt áhugamál verkalýðs og meirihluta bænda og brúa jafnframt álinn milli auðvalds og sósíalisma. Þessar ráð- stafanir eru: Allir opinberir starfsmenn séu kosnir, afsetjanlegir á hvaða tíma sem er, og laun þeirra miðuð við venjuleg „verka- mannalaun“. Þessar ráðstafanir miða eingöngu að stjórnarfars- legri ummyndun þjóðfélagsins og ríkisskipunar þess, en sitt sanna innihald og þýðingu fá þær vitanlega fyrst með framkvæmd og undirbúningi „eignaskiptingar arðræningjanna“, J). e. þegar einka- eignarréttur auðvaldsins á framleiðslutækjunum hreytist í þjóð- félagslegan eignarrétt. „Parísarkommúnan gerði einkunnarorð allra borgaralegra bylt- inga — ódýr stjórn — að veruleika, þar sem hún skar niður báða stærstu útgjaldaliðina — til hers og embætlismannaliðs“, skrifar Marx. Meðal bænda og annarra smáborgara er það aðeins örlítill minnihluti, sem „vinna sig upp“ eða „kemst áfram“ í borgaraleg-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.