Réttur - 01.05.1961, Side 44
204
H É T T U It
Ósigri Koramúnunnar fylgdu villimannlegar ofsóknir ríkisstjórn-
arinnar á hendur leiðtogum hennar og haráttuliSi. A. m. k. 30.000
manns, á öllum aldri og báSum kynjum, voru skotnir aS skipan
Gallifets hershöfSingja, böSuls Thiers, eftir aS borgarbúar voru
hættir aS veita viSnám. 45 þúsund manns voru handteknir, þar af
þriSjungur, sem ýmist voru teknir af lífi, þeim misþyrmt, kastaS
í dýflissur eSa gerSir útlægir til fjarlægra fangaeyja. Þúsundum
saman flýSi fólk úr landi til Englands, Sviss, en einkum þó Banda-
ríkjanna.
Til þess aS öreigastéttin geti tekiS völdin og haldiS þeim til lang-
frama þurfa tvö skilyrSi aS vera fyrir hendi í þjóSfélaginu: Annað
er þróuS framleiðsluöfl, hitt þroskuð verkalýðsstétt. Hvorugt þetta
var til staðar í Frakklandi 1871. Það var landbúnaðarland með
nokkrum smáiðnaði og handiðju. Yfirgnæfandi meiri hluti hinnar
30 milljóna þjóðar var sjálfseignarbændur. Obbinn af verkalýð
borganna vann á smáverkstæðum.
Meðal verkalýðsins höfðu smáborgaralegar hugmyndir með sósí-
aliskum blæ mest áhrif. Kenningar marxismans þekktu fáir. Hug-
myndafræðilega var verkalýðurinn því sundraður, og pólitískt var
liann lítt skipulagður. Það var ekki lil neinn framvarðarflokkur
byltingasinna, sem gerði sér grein fyrir þróunarlögmálum þjóðfé-
lagsins og hefði forustu fyrir verkalýðnum í daglegri baráttu hans.
Verkalýðurinn hafði engin skýrt mótuð stefnumið.
Á tímum Kommúnunnar kepptu tvær stjórnmálastefnur um hylli
verkalýðsins í París. Meiri hlutinn fylgdi blanquistum*) að málum.
Þeir voru smáborgaralegir uppreisnarmenn, sem sættu sig ekki við
þjóðfélag yfirstéttanna, en höfðu mjög þokukenndar hugmyndir um
hið æskilega þjóðfélagskerfi. Blanquistar stefndu að vísu að sósíal-
isma og vildu gera framleiðslutækin að almenningseign. En þeir
mátu ekki rétlilega afl fjöldans og hlutverk hans í söguþróuninni;
þeir settu allt traust sitt á litla hópa harðsvíraðra byltingaseggja.
*) Kenndir við Louis-Auguste Blanqui, 1805—1881, franskan byltingamann
og loftkastalakommúnista.