Réttur - 01.05.1961, Page 48
208
R E T T U U
Maurice Thorez orðaði þaö í sambandi viö Október-byltinguna:
„Rússneska byltingin hélt áfram því verki, sem hinir hetjulegu
braulryðjendur hófu áriö 1871. Hún hefur stofnað sigurstranglega
kommúnu á 1/6 hluta jaröarinnar.“ Seinna hafa fleiri þjóðir
fetað í fótspor kommúnarðanna, og ekki er að efa, að hugsjónir
þeirra munu, áður en langt líður, hrósa sigri um allan heim.
Um Parísarkommúnuna og aðdraganda hennar hefur verið skrifað merki-
legt rit, „Borgarastyrjöldin í Frakklandi". Það skrifaði Karl Marx svo að segja
samtímis atburðunum 1870 og 1871. Niðurstöður þess standa óhaggaðar enn
í dag, og þykir það vitnisburður um það, hve marxisk rannsóknaraðferð er
heittur krufningshnífur. Tilvitnanir í Marx eru úr því riti. Tilvitnanir í Engels
eru úr inngangi, sem liann skrifaði að „Borgarastyrjöldinni". Tilvitnanir i
Lenín eru eínkum úr „Ríki og Byltingu".