Réttur - 01.05.1961, Page 60
220
K É T T U R
yfir 21. okt. 1954 að stjórn hans „viöurkenndi ekki Oder-Neisse
landamærin sem ríkislandamæri“ og áliti landsvæðið hinum megin
þeirra vera „þýzkl ríkisland". — Við páfann sagði liann í janúar
1961 að „guð hefði valið þýzku þjóðina til þess sérstaka hlutverks á
þessum stormatímum — að vera vestrinu virki gegn hinum miklu
áhrifum, sem oss berast frá austrinu“. Og 30. apríl 1960 kvað hann
takmark sitt vera: „að afla þeim milljónum frelsis, sem hafa orðið
að lifa undir framandi sovétstjórn síðan 1945“ — með öðrum orð-
um: „frelsa“ Austur-Þýzkaland, Pólland, Tékkóslóvakíu og fleiri
lönd, svo þau yrðu aftur aðnjótandi ógnarstjórnar, gasofna, pynt-
ingarklefa og fangabúða þýzka auðvaldsins eins og 1938 íil 1945.
Og gömlu Hitlers-samtökin eru þegar reiðubúin til að taka við
grimmdarverkunum þar sem frá var horfið 1945: 29 Landsmann-
schaften, — samtök svokallaðs flóttafólks, — og 1200 „samtök gam-
alla félaga“, þar af 45% óður SS-menn, æfa sig undir hlutverkið.
1 þeim eru 8 milljónir meðlima.
Kúgunarherferðin til útrýmingar lýðræði í Vestur-Þýzkalandi er
hafin. Fyrst var Kommúnistaflokkurinn bannaður, — eins og hjá
Hitler. Síðan hafa friðar-samtökin verið bönnuð. 200 framfara-
sinnuð félög, sem valdhafarnir líta ekki með velþóknun á, hafa og
verið bönnuð. Sjálfur borgarstjórinn í Miinchen sagði nýlega:
„Fleiri og fleiri í Sambandslýðveldinu, sem eru ekki sammála ríkis-
stjórninni eru ólitnir „rauðliðar“ og rægðir sem óvinir ríkisins og
stjórnarskrárinnar“. (Suddeutsche Zeitung 22.—23. apríl 1961.)
Þýzka auðhringavaldið getur brátt valið um það hvort það
steypir heiminum á ný í stríð, — í tortímandi kjarnorkustyrjöld, —
t. d. með árás á Berlín — eða hvort það snýr sér heldur að hinu,
sem Hitler fannst hægara 1939: að leggja Vesturveldin, „banda-
menn‘ sína í NATO, undir sig. Markaðsbandalagið er aðferðin til
þess. Seebohm, einn af ráðherrum Adenauers, sagði nýlega: „Hlut-
verk okkar, takmark okkar, er að þurrka burt landamærin milli
þjóða Evrópu, til þess að öðlast það vald einn dag að þurrka hurt
landamærin bak við járntjaldið.“ (Sudetendeutsche Zeitung 23. júlí
1960).
Veslrænar þjóðir hafa verið varaðar við. Nú er eftir að sjá hvort
þær hafa eitthvað lært af sögu síðustu 30 ára.