Réttur


Réttur - 01.04.1971, Side 19

Réttur - 01.04.1971, Side 19
Leo Jogiches (1867—1919) Kate Duncker (1871—1953) Hermann Duncker (1874—1960) ar „Die Junius-broschure“ (Junius-bæklingurinn) vegna dulnefnisins, er hún notaði þá. Nýir félagar bætast í vinahóp Rósu: Hugo Eberlein, Káthe og Hermann Duncker, Thalheimer, Pieck, Paul Levi og ekki sist Sonja, kona Karls Liebknechts. En flestir voru þeir ýmist í fangelsi eða á vigvellinum. Frá því i janúar til júli 1916 var Rósa frjáls og notaði tímann til að skrifa I tímarit þeirra „Internationale" mörg hinna frægu Spartakus-bréfa. 10. júlí 1916 er hún sett í fangelsi á ný. I dýflissum Þýzkalands ritar hún bók sína um rússnesku byltinguna „Die Russische Revolution". Sjálf sleppur hún ekki úr fangelsi fyrr en byltingin í Þýzkalandi opnar dyr dýflissunnar 9. nóvember 1918. Tók hún nú for- ustuna ásamt Karli Liebknecht í byltingarbaráttu róttækasta hluta verkalýðsins. Kommúnistaflokkur Þýzkalands var stofnaður i árslok 1918. Rósa og Karl lögðu til að flokkurinn tæki þátt í þingkosn- ingunum, en það var fellt. Spartakus-uppreisnin í janúar 1919 var kæfð I blóði og þau Karl og Rósa myrt 15. janúar 1919. Síðasta grein hennar i blaði flokksins „Rote Fahne" 14. janúar 1919 ber fyrirsögnina „Röð og regla ræður i Berlin", hin heitasta ákæra á auðvald og krata og lýkur með þessum orðum: ,,,,Röð og regla ræður I Berlín". þið heimsku böðlar! Ykkar „regla" er reist á sandi. Byltingin mun aftur tisa I öllu sínu veldi og ykkur til skelfingar munu básúnur hennar drynja: ég var, ég er, ég mun verða“. Með Rósu Luxemburg féll i valinn hæfileikamesti og sjálfstæðasti leiðtoginn, sem sósialistísk verk- lýðshreyfing Þýzkalands átti í þeirri kynslóð, sú, sem mesta möguleika hafði til að leiða verkalýð Þýzkalands til sigurs, ef hún hefði lifað og ráðið flokki sínum. Nokkur æviatriði nefndra félaga Rósu Luxemburg Hugo Eberlein var prentari að iðn og forustu- maður í félagi þeirra. Gekk í sósialdemokrataflokk- inn 1906. Tók upp samvinnu við Karl og Rósu eftir striðsbyrjun 1914. Tvisvar í fangelsi á stríðstíman- um og þrisvar sendur á vígvöllinn. I byltingunni í stjórn Spartacusar, skipulagði dreifingu „Rote Fahne" (Rauða fánans). Einn af aðalforustumönn- um þýzka Kommúnistaflokksins, einkum I skipu- lags- og fjármálum. Varð siðar framúrskarandi starfsmaður Alþjóðasambands Kommúnista. Var 75

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.