Réttur - 01.04.1971, Blaðsíða 39
Mótmælafundur i Los Angelos á 27. afmælisdegi Angelu undir kjörorðinu: Frelsið Angelu. Ræðumaðurinn
er Michael Tigar, prófessor í lögum.
til að sjá að hægt var að breyta og að breyt-
inga var þörf, krafðist umhugsunar, gagn-
rýnnar umhugsunar: þekkingar á hvernig
þessar kringumstæður urðu til, hvaða öfl
halda þeim við, og hvernig frelsi og réttlæti
eru möguleg. Þetta held ég að þú hafir lært á
námsárum þínum. Og þú lærðir annað —
nefnilega að næstum allir vitrir menn vest-
rænnar menningar — einmitt jæirrar menn-
ingar sem batt fólk þitt í þrældóm — vísuðu
ætíð til einnar frumforsendu: mannlegs frels-
is. Líkt og góður námsmaður, tókstu alvar-
lega það sem þeir sögðu, þú hugsaðir alvar-
lega um það og um ástæður þess að fyrir
flesta voru þetta aðeins orð. Þess vegna taldir
þú að liin heimspekilega hugmynd, ef hún
er ekki lýgi, verði að raungerast: hún inni-
heldur siðræna skyldu að yfirgefa skólastof-
una, skólasvæðið, og að fara til hjálpar öðr-
um, hjálpa fólki þínu sem þú tilheyrir enn
— þrátt fyrir (kannske vegna) árangurs þíns
innan hinnar hvím, ríkjandi skipunar.
En þú barðist einnig fyrir okkur, sem
þurfum frelsi og viljum frelsi fyrir alla sem
eru ófrjálsir. I þeim skilningi er þinn mál-
staður okkar málstaður”.
95