Réttur


Réttur - 01.04.1971, Side 38

Réttur - 01.04.1971, Side 38
Vlð nám í Brandeishakóla 1965 — Angela ásamt kennara sinum Herbert Marcuse. Kaliforníuháskóla í Berkeley, Davis, og Los Angeles, skömmu eftir að Angelu var vísað úr embætti: „Aðgerðir sem hafnar eru af háskólaráði Kaliforníuháskóla til að vísa úr embætti prófessor Angelu Davis vegna þeirrar einu ástæðu að hún er meðlimur í Kommúnista- flokknum, eru brot á stjórnárskrá Banda- ríkjanna og stjórnarskrá og lögum Kali- forníuríkis, eins og oft hefur verið úrskurð- að af hærri dómstólum rfkisins og Banda- ríkjanna. Brot þetta er sérstaklega alvarlegt vegna þess að það virðist hafa verið vísvitandi og fyrirfram ákveðið. Samkvæmt fréttum í fjölmiðlum, hafa sumir meðlimir háskóla- ráðs viðurkennt það mjög líklegt að þetta athæfi þeirra verði lýst ólöglegt, en bætt við að þeir muni ekki breyta lögum samkvæmt fyrr en dómstólar skipa slíkt fyrir. A tímum þegar háskólaráð hefur æskt jæss að aðrir í samfélaginu sýni virðingu fyrir lögum, hafa jæir sjálfir sýnt opinbera vanvirðingu fyrir lögum, í trássi við svardaga sinn um að styðja og verja stjórnarskrár og lög Banda- ríkjanna og Kaliforníuríkis, Við álítum að vegna ofansagðs ættu há- skólaráðsmenn að yfirvega málið, og hætta þessum aðgerðum”. Fyrir alríkisdómstól í Kaliforníu var brott- rekstur Angelu gerður ógildur. En Reagan gafst ekki upp við svo búið, því að Angela neitaði að láta þagga niður í sér. Hún tók áfram þátt í pólitísku starfi, talaði gegn hinni vaxandi þrúgun í Kaliforníu, og skipulágði samtök gegn lögregluofstæki. I júní 1970 sagði háskólaráð henni aftur upp stöðunni. I Jætta skipti var ástæðan sögð vera ræður hennar og aðgerðir gegn ofbeldisstefnu stjórnarinnar utan lands og innan. I jætta skipti aðhafðist háskólaráð — í samræmi við vilja Ronald Reagan — í trássi við fyrstu breytingargrein stjórnarskrárinnar, málfrelsið var látið víkja í hita pólitískra ofsókna. IV. Ég lýk þessari grein með því að vitna í opið bréf sem Herbert Marcuse sendi Angelu Davis í fangelsinu í New York: „Fólk biður mig jjrásinnis að útskýra hvernig þú, bráðgáfuð, næm ung kona, fram- úrskarandi námsmaður og kennari, hvernig þú gazt orðið þátttakandi í ofbeldisatburð- unum í San Rafael. Ég veit ekki hvort þú áttir nokkurn j?átt í Jaeim hryggilegu atburð- um, en ég veit að jxi áttir mikinn þátt í bar- áttu svartra manna og allra sem eru kúgaðir, og að þú gazt ekki einskorðað starf þitt fyrir þá við skólastofuna og skriftir. Og ég tel að það sé innri rök'eiðsla í jxoska þínum — rökleiðsla sem ekki er erfitt að skilja. Heim- urinn sem þú ólst upp í, þinn heimur (sem er ekki minn), einkenndist af grimmd, vol- æði o<i ofsóknum. Til að sjá þessar staðreynd- ir Jxirfti ekki mikla vitsmuni eða snilld, en 94

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.