Réttur - 01.04.1971, Blaðsíða 36
Fyrsta breytingargrein bandarisku stjórn-
arskrárinnar:
„Þingið skal ekki setja nein lög sem eru
i þágu trúarstofnana ,eða sem banna frjálsa
virkni þeirra; eða sem takmarka málfrelsið,
eða prentfrelsið; eða rétt fólksins til að
halda fundi, og krefja Stjórnina um úrbæt-
ur á því sem á mis fer.“
öðrum hagsmunaaðilum á nokkurn hátt sem
brýtur í bága við tilgang námsstofnunarinn-
ar.
2. Sérhver námsstofnun ætti að stefna að
verndun á lífi mannsins og að aukningu á
gæðum þess. Þess vegna er sérhver kennari
skyldur að stunda ekki fræðslu eða rannsókn-
ir sem hafa þann tilgang að eyða mannlegu
lífi eða að minnka gæði þess.
3. Virk og árangursrík öflun á þekkingu
þarfnast frjálsra skipta á hugmyndum. Eng-
inn kennari má stunda nokkuð atferli í
kennslustofunni með nokkurs konar tak-
mörkun á aðgangi, nema þeirri sem byggist
á skilyrðum um þekkingu þátttakenda. Og
enginn kennari má stunda rannsóknir sem
hafa útgáfu eða almenna opinberun að
nokkru leyti takmarkaða.
4. Allar námsstofnanir eru skyldar að
veita námsmönnum getu til að gagnrýna hug-
myndir, og eru skyldar að hvetja námsmenn
til að stunda tjáningu sinna eigin hugmynda.
Það er skylda sérhvers kennara að sinna þess-
um skuldbindingum í kennslustofunni, og að
verja kennslustofu sína gegn öllum sem vilja
takmarka virkni kennslunnar í þessum skiln-
ingi — hvort sem þeir eru einstaklingar,
hópar, þjónustur, eða aðrar stofnanir.
5. Réttmæt námsstofnun mismunar ekki
námsmönnum eða kennurum vegna kynþátt-
ar, kynferðis, trúar, eða pólitískra skoðana.
Það er skylda sérhvers kennara að skorast
undan notkun þessara viðmiða, við val og
ráðningu námsmanna og kennara.
6. Megintilgangur námsstofnunar er að
mennta námsmennina. Fyrsta skylda kennara
er að fræða; rannsóknir eða annað atferli sem
er ekki tengt námi við stofnunina verður að
fara fram á eigin tíma kennarans eða í leyf-
um frá störfum. Það er einnig skylda kenn-
aranna að sjá fyrir því að fræðslustarfið sé
nægilega verðlaunað ef vel er gert.
7. Almennt mega kennarar ekki taka við
launum fyrir kennslu, rannsóknir, ráðgjöf,
eða annað atferli sem er ótengt kennsluskrá
stofnunarinnar sem þeir starfa við. Vik frá
þessari reglu skal háð leyfi frá deildarforsera
eða tilheyrandi starfsmanni háskólastjórnar.
8. Árangursrík fræðsla er möguleg aðeins
í bekkjum af takmarkaðri stærð. Það er
skylda kennara að takmarka fjölda í bekk
við þá tölu námsmanna sem hann (með að-
stoðarmönnum sínum) getur veitt virka
fræðslu.
9. Enginn kennari getur unnið fyrir stofn-
un sína án launa sem nægja fyrir framfærslu
hans og fjölskyldu hans. Kennari hefur rétt
á að ganga í verkalýðssamtök, og rétt á að
gera verkfall þegar það er nauðsynlegt til
að tryggja næg laun.
Hvað snertir atriði er segja til um hlut-
verk kennarans, veit ég af persónulegri
reynslu, að Angela Davis breytti í einu og
öllu samkvæmt undanfarandi skilgreiningu
á kennarahlutverkinu. Eg tók þátt í bekkjum
hennar um díalektíska efnishyggju, og Kant
og þýzka hughyggju. I kennslustofunni var
eingöngu fjallað um þessi efni, allir náms-
menn með byrjendaþekkingu á heimspeki
fengu aðgang, Angela hvatti okkur sérstak-
lega til að tjá okkar eigin hugmyndir og