Réttur - 01.04.1971, Side 20
Hugo Eberlein (1887—1944)
Wilhelm Pieck (1876—1960)
Paul Levi (1883—1930)
eftir 1935 í Moskvu. Tekinn fastur 1937 saklaus.
Dó í Sovétrikjunum 1944.
Hermann Duncker varð félagi í þýzka sósíal-
demókrataflokknum 1893. Varð snemma ritstjóri
sósíalistískra blaða og forustumaður um flokks-
uppeldi, framúrskarandi kennari og ræðumaður.Tók
strax eftir stríðsbyrjun upp baráttu með Karli og
Rósu. Leiðtogi í undirbúningi byltingarinnar í
Þýzkalandi 1918. Forustumaður í þýzka Kommún-
istaflokknum frá upphafi. Stjórnaði mikilli útgáfu-
og upplýsingastarfsemi hans. Tekinn fastur 1933, úr
landi 1936. Eftir ósigur nasismans var hann starf-
andi fyrir Sósíalistíska einingarflokkinn meðan
heilsan leyfði. Dó 1960.
Káthe Duncker var kona Hermanns. Hóf snemma
þátttöku í verklýðshreyfingunni, en var kennari að
mennt. Gat sér mikinn orðstír fyrir ágæta baráttu
fyrir réttindum kvenna í félagsmálum. Var ágætur
rithöfundur og naut ræðumennska hennar sín vel
á mörgum þingum. Reit mikið um uppeldismál. Tók
strax eftir stríðsbyrjun afstöðu með Karli og Rósu,
vann af miklu kappi gegn stríðinu. Var stofnandi
Spartacusar og þýzka Kommúnistaflokksins og
barðist skarplega gegn þeirri röngu stefnu að taka
ekki þátt í kosningunum 1919. Var mjög virk í
þýzka Kommúnistaflokknum. Komst 1939 úr landi
til Bandarikjanna og sneri heim 1947. Dó í þýzka
Alþýðulýðveldinu 1953.
Leo Jogiches var fæddur í Vílnius, Pólverji.
Snemma í byltingarhreyfinguna, fangelsaður 1889,
flúði til Sviss 1890. 1891 hófst ævilöng vinátta
hans við Rósu Luxemburg. Forustumaður í pólsku
og þýzku flokkunum. I Spartacushópnum varð
hann höfuðskipuleggjandi. Stofnandi þýzka komm-
únistaflokksins og í miðstjórn hans. 10. marz 1918
náðu hermenn Noskes honum og var hann sam-
dægurs myrtur i Moabit-fangelsinu í Berlín.
Paul Levi var lögfræðingur. Gekk í Sósíaldemo-
krataflokkinn sem stúdent. Varði Rósu sem lög-
fræðingur 1914. Tók upp samvinnu við Rósu og
Karl 1915. Kynntist Lenín í Sviss. Stofnandi þýzka
Kommúnistaflokksins og var á stofnþinginu með
þátttöku í þingkosningunum. Formaður þýzka
flokksins 1919—1921. Rekinn úr flokknum 1921.
Dó í Berlín 1930.
Franz Mehring er frægasti sagnaritari þýzkrar
verklýðshreyfingar, rithöfundur og leiðtogi. Gekk
76