Réttur


Réttur - 01.04.1971, Síða 22

Réttur - 01.04.1971, Síða 22
ÞRÖSTUR ÓLAFSSON: UM RÓSU LUXEMBURG og sitthvað um sósíalska hreyfingu i. Hreyfing fer ekki af stað af sjálfsdáðum. Hún á sér rætur í þjóðfélagslegum andstæð- um eða hindrun á uppfyllingu þarfa hóps eða einstaklinga. Orsakir og tilefni standa ekki alltaf í beinu rökrænu orsakasambandi. Hins vegar er þessu öðruvísi farið með þau tákn sem hreyfing gefur sér eða það svipmót sem er á hreyf- ingunni. Táknmyndir Ijóstra oft meiru upp um innra eðli, þá duldu þrá, sem liggur að baki ýmsum hreyfingum en ræður og ytra viðmót þátttakenda. Þýzka stúdentahreyfingin var að því leiti trútt afsprengi síns tíma, að hún valdi sér táknmyndir — eða réttara sagt, hún skóp sér þessar táknmyndir í rás atburðanna — eftir þróun hreyfingarinnar á hverjum tíma. Táknmyndir eru ekki yfirlýsing um kröfur gagnvart öðrum (eins og kröfuspjöld) heldur fremur kröfur gagnvart hópnum sjálfum — hóptjáning á samsömun (Identitát). Spjöldin með myndum af Ché, Hó, Rósu, Trotský og Lenín bentu á viss vitundarleg þróunarstig hreyfingarinnar. Ché og Hó voru hetjur nútímans. Báðir voru þeir krossberar baráttu fyrir frelsi og mannlegri reisn. Ché tendraði logann með eldmóði æsk- unnar og óþolinmæði ævintýramannsins. Hann var ímynd hreysti og áræðis og varð strax tákn hreyfingarinnár og svo lengi sem tjáning frelsisins hafði ekki verið bæld nið- ur og fundið takmörk sín í fangelsunum, barsmíðum og fantaskap lögreglunnar. Hó hélt eldinum lifandi. Hann táknaði vizku, reynslu, þolgæði og ódrepandi bar- áttuþrek. Hann var leiðtogi þjóðar sem skor- að hafði öflugasta hernaðarveldi heims á hólm og hafði í fullu tré við það. Síðan komu Rósa og Karl Liebknecht fram á sjónarsviðið. Við sem fávísastir vorum þurftum að spurja af hverjum þessar myndir voru og af hverju þær væru bornar frekar en góðkunningjar okkar Ché og Hó. Rósá var tákn fórnfýsi, óbilgjarnar baráttu og þjáninga. En hún var líka tákn Berlínar 78

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.