Réttur


Réttur - 01.04.1971, Page 31

Réttur - 01.04.1971, Page 31
Það vinnst aldrei sóknarsigur með slíkri baráttu. Kerfið sér fyrir því. Það er þjóðfélagið sjálft sem við verðum að breyta. — Breyta kerfinu. Skapa þjóðfélag, sem metur vinnuna og hinn vinnandi mann að verðleikum. Þjóðfélag, sem hafnar gróðasjónarmiðum og spákaupmennsku. Þjóðfélag, það sem jöfnuður ríkir og mann- gildið er metið. Slíkt þjóðfélag getur verkalýðshreyfingin vissulega skapað. En það verður ekki til með launabaráttu einni. Verkalýðshreyfingin er voldugasta þjóðfé- lagsaflið, ef hún nær að skynja mátt sinn og skilja stöðu sína. Og fyrst og síðast verður hún að sjá það, að útilokað er að ná árangri, ef samtímis er barist gegn kerfinu og það styrkt. Um alltof langan tíma hefur það verið tíðkað að aðgreina verkalýðsmál og stjórn- mál þ. e. a. s. innan verkalýðshreyfingarinnar. Aðgreiningin er fólgin í því, að launabar- átta, þ. e. kauphækkunin er verkalýðsmál en dýrtíðin, þ. e. kjaraskerðingin eru stjórnmál, sem eru ekki rædd sem verkalýðsmál. Þá þykir það einnig höfuðglæpur, ef minnst er á það, að þeir sem hagnast á núverandi kerfi, eru Ihaldsmenn og að flokkur þeirra er ein af helztu máttarstoðum kerfisins. Eða ef þess er getið að S.Í.S.-valdið hefur sinn aðalstyrk frá Framsóknarflokknum og gagnkvæmt og Alþýðuflokkurinn hefur um 10 ára skeið verið aðili að einhverri verstu ríkisstjórn, sem vinnandi fólk hefur haft yfir sér. Þetta telja ýmsir annars ágætir verkalýðssinnar, að komi verkalýðsmálum hreint ekki við. En í mínum huga er þetta höfuðatriðið. „Kerfið" er stjórnmál. Og aðeins í gegnum stjórnmál getum við því breytt kerfinu. Takist okkur að samstilla verkalýÖshreyf- inguna að hvortveggja í senn, öflugri póli- tískri baráttu og ákveðinni kjarabaráttu, þá er sigur öruggur. Möguleikarnir eru meiri nú en nokkru sinni fyrr. Við eigum öflugan, samstilltan og vax- andi verkalýðsflokk sem nýtur vaxandi trausts verkafólks. Það er staðreynd en ekki slagorð, að við getum tryggt kjör okkar betur með atkvæð- inu heldur en á nokkurn annan hátt. Um langt skeið hefur verkalýðshreyfingin sundrazt í kosningum og því eflt andstæð- inga sína. í vor er tækifæri til að snúa þessu við. Þá fær verkalýðshreyfingin gullið tækifæri til að sameinast og sigra andstæðinga sína. Urslit kosninganna geta ráðið því hvort við höldum áfram að elta skottið á okkur eða hvort okkur tekst að breyta gerð þjóð- félagsins. — Sigra kerfið. HEIMSMETIÐ Samkvæmt útreikningi sænska blaðs- ins Dagens Nyheter eiga islendingar heimsmet í verkföllum á áratugnum 1960 —69. Tapaðir vinnudagar á 1000 laun- þega voru þá á islandi 1556 á ári, Chile næst með 924, italía 604, Kanada með 466, Bandarikin með 382. Á Norðurlönd- um er Danmörk næst íslandi, en Sviþjóð með fæsta. 87

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.