Réttur


Réttur - 01.04.1971, Qupperneq 34

Réttur - 01.04.1971, Qupperneq 34
I eftirfarandi línum mun ég rekja nokkur æviatriði Angelu, segja frá kynþáttahatrinu, hugsjónum um akademískt freisi og hvernig þær hafa verið virtar einskis við pólitískar ofsóknir gegn Angelu. I. Það voru vissulega kringumstæður baráttu sem Angela Davis fæddist við fyrir 28 árum. Hún óx á legg meðal heillar kynslóðar af svörtu fólki sem hafði séð karlmennina hætta lífi sínu í annarri heimsálfu í stríði gegn er- lendum fasisma, aðeins til að koma heim og verða fyrir árásum einmitt sams konar hugar- fars. Þeir komu aftur til Suður-Bandaríkjanna þar sem kynþáttaofsóknir voru „Guðs heilag- ur sannleikur" og kynþáttamismunun „hinn ameriski lifnaðarháttur". Það var í þessum Suðurríkjum sem Angela, eins og svo margt annað svart fólk, öðlaðist vitund sína. Hún sá tákn fyrir lög og reglu í mynd manna eins og George Wallace, og í hinum brenn- andi krossi gamla Suðursins og rafmagns- pyntingum hins nýja Suðurs. En hún sá einn- ig meðal kynslóðar sinnar fyrstu merkin um endurnýjaða mótspyrnu, og hún tók þátt í mótspyrnunni, var á mótmælafundum við stofnanir sem útilokuðu svarta, vann við að fá fólk til að greiða atkvæði sín í kosningum, tók þátt í blönduðum starfshópum svartra og hvítra. Þetta voru ár ungra vona, og gamals nag- andi ótta. Angela bjó á „Dýnamit-hæðinni", þar sem svartar fjölskyldur lifðu í sífelldum ótta við árásir kynþáttahataranna. „Einhverja næstu nótt", skrifaði hún, „gæti ég heyrt hvítu brjálæðingana koma fyrir sprengjum við húsið. Við erum með á listanum". Og Angela rnundi ljóslega þetta Birmingham æsku sinnar, þegar hryllingurinn endurtók sig 1963, en þá létust fjögur svört börn er kirkja í Birmingham var sprengd í loft upp. Angela þekkti þessar fjórar stúlkur og fjölskyldur þeirra, og eins og fólk í Birmingham, vissi hún hverjir morðingjarniir voru. En enginn var tekinn fastur. Angela fór frá Birmingham þegar hún var fimmtán ára til að stunda nám við mennta- skóla í New York, á styrk frá Kvekurum. Þar varð hún að leggja harðar að sér en aðrir, vegna hinnar lélegu, kynþáttalega aðskildu menntunar sem hún hafði fengið í Suðiinu. Hún tók skjótum framförum, svo að við stúdentspróf var henni veittur styrkur til náms við Brandeis-háskóla, þar sem hún lagði stund á franskar bókmenntir. Þriðja háskólanámsári sínu varði Angela við Sorbonne-háskóla í París. Þar kynntist hún stúdentum frá Alsír sem sögðu henni frá baráttu lands síns til að komast undan oki franskrar nýlendustefnu. Og oft sá hún frönsku lögregluna stöðva, leita á og fara illa með alsírska námsmenn eða aðra „þel- dökka" sem grunaðir voru um að vera fra Alsír, — ástæðan var að þjóð þeirra vildi öðlast sjálfstæði. Síðasta árið við Brandeis hóf Angela nám í heimspeki hjá prófessor Herbert Marcuse, hún einbeitti sér einnig að aðalfaginu og hún tók B. A. gráðu í frönskum bókmenntum. I framhaldsnámi lagði Angela nú stund á heimspeki og hélt áfram námi á þýzkum ríkisstyrk við Göthe-háskóla í Frankfurt. Þar tók hún að formúlera viðfangsefni doktors- ritgerðar sinnar: Frelsið sem heimspekilegt hugtak hjá Immánuel Kant, og þýðing þess fyrir frelsisbaráttu svartra manna. Hún tók einnig þátt í aðgerðum SDS í Þýzkalandi, sem skipulögðu m. a. mótmæli gegn Víetnam- stríðinu. Angela ákvað að yfirgefa Þýzka- land eftir tveggja ára nám. Það sem hafði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.