Réttur


Réttur - 01.04.1971, Síða 35

Réttur - 01.04.1971, Síða 35
byrjað sem flótti frá Bandaríkjum kynþátta- ofstækis, virtist henni smám saman vera út- legð frá baráttu svartra bræðra sinna og systra í Bandaríkjunum. Hún sneri aftur til að taka þátt í baráttunni. Við Kaliforníuháskóla í San Diego vann Angela að doktorsritgerð sinni með leiðsögn prófessors Marcuse. Þar tók hún einnig mik- inn þátt í baráttu svarta samfélagsins í Suður- Kaliforníu, skipulagði samtök um málefni samfélagsins: atvinnuleysi, ofsóknir lögregl- unnar, og stofnun þriðjaheimsdeildar við há- skólann. Hún sá nú að slíkar aðgerðir eru ekki látnar afskiptalausar í þjóðfélagi kúg- unar og kynþáttaofstækis. Þegar Los Angeles lögreglan myrti hinn 18 ára gamla Gregory Clark, gaf það henni til kynna upphaf atferl- is sem líktist því sem einkennir fasisma og lögregluríki. Og þetta varð ein af aðferðum valdhafanna til að koma í veg fyrir hvers konar verulegar félagslegar breytingar í átt til jafnræðis og frelsis. Seinna sama ár sá Angela tvo aðra vini sína skotna niður á Los Angeles háskólasvæð- inu. Þetta voru tímar persónulegrar áhættu þegar um persónulega þátttöku var að ræða. Meðvirkni í baráttunni var ekki einungis „vitsmunaleg" þátttaka, það þýddi hreint og beint að hætta lífi sínu. Skömmu seinna gekk Angela í Kommúnistaflokkinn og varð virkur meðlimur í Che-Lumumba félaginu, sem er samtök svartra innan Kommúnista- flokksins í Los Angeles. Sumir menn lifa í þeim lúxus að „hug- leiða" einungis, þeir leika sér með hugmynd- k; aðrir taka tilveru sína alvarlegar, þeir standa við yfirlýsta sannfæringu sína. Angela tilheyrir seinni hópnum, hún er einlæg og stendur fast við yfirlýstar hugsjónir sínar. Hún var ráðin sem prófessor við Kaliforníu- háskóla í Los Angeles haustið'1969, og þegar LBI-njósnari benti á hana sem kommúnista, svaraði hún fyrirspurn háskólaráðs Kaliforn- íu-háskóla: „Fyrst vil ég taka fram að fyrir- spurn þessi er óleyfileg. Þetta grundvallast á stjórnarskrárlegu frelsi og einnig akadem- ískri stefnu. ... Samt sem áður, og án þess að ég dragi úr mótmælum gegn fyrirspurn- inni, svara ég að ég er núna meðlimur Kommúnistaflokksins.Sú staðreynd þarf enga réttlætingu hér, en ég vil að þið vitið að sem svört kona tel ég aðkallandi þörf á róttækum lausnum á vandamálum kynþáttalegra og þjóðernislegra minnihluta í hinum hvítu, kapitalistisku Bandaríkjum. Eg tel að vera mín í Kommúnistaflokknum hefur aukið víð- sýni mitt og möguleika mína á að skynja slíkar lausnir og að koma þeim í framkvæmd. Vandamálin, sem ég á við, hafa varað of lengi og ollið slíkri yfirþyrmandi eyðingu, að þau þola enga bið eða hálfkák. Það er auð- vitað að stefna Kommúnistaflokksins hefur, á meðan ég hef verið meðlimur, verið full- komlega í samræmi við fyrstu breytingar- grein stjórnarskrárinnar. Ennfremur hefur vera mín í Kommúnistaflokknum ekki á neinn hátt bundið mig við reglur eða afstöðu sem stýra vinnu minni eða skyldum sem kennari". II. Á yfirstandandi skólaári tók ég þátt í bekk í heimspeki við Kaliforníuháskóla í Los Angeles, þar sem við könnuðum m. a. akademískt frelsi og sérlega til hvers er ætl- ast af kennurum. Við tókum saman helztu atriðin í þessu sambandi, og þau fylgja hér: 1. Tilgangur námsstofnunar er að geyma þekkingu og afla þekkingar vegna hennar sjálfrar, og að tjá námsmönnum slíka þekk- ingu. Það er skylda kennara að láta ekki nota sig eða stofnunina af ríkinu, fyrirtækjum eða 91

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.