Réttur


Réttur - 01.04.1971, Side 37

Réttur - 01.04.1971, Side 37
gagnrýni á kenningum ýmissa heimspekinga sem við lásum, og hún var sérlega fús að ræða við okkur og veita okkur leiðbeiningar um námsefnið utan eiginlegra kennslustunda. Síðan hafa verið gerðar rannsóknir og ýms- ar eftirgrennslanir, og það er einróma álit í niðurstöðum frá heimspekideildinni, hugvís- indadeildinni (sem heimspekideildin er hluti af), og Los Angeles háskólastjórninni, að öll tilhögun á bekkjum Angelu Davis hafa ver- ið í fullu samræmi við akademískar kröfur og kennsluskrá. III. 19- september 1969 skipaði háskólaráð Kaliforníuháskóla forseta háskólans að leysa Angelu Davis frá störfum, af þeirri ástæðu að hún væri meðlimur í Kommúnistaflokki Bandaríkjanna. Fyrirskipun þessi var byggð á reglugerðum háskólaráðs frá 1940 og 1949 um að enginn meðlimur í Kommúnista- flokknum gæti orð'ð kennari við Kaliforníu- háskóla. Þetta var einföld ráðstöfun sem al- ríkisdómstóll gerði ógilda svo að Angela kenndi áfram, en þarna varð ljós afstaðan sem er að baki þeim aðgerðum sem síðan hefur verið beint gegn henni. Frá 19- septem- ber 1969 hafa valdhafar í Bandaríkjunum stundað pólitískar ofsóknir gegn Angelu Davis, og hafa þeir beitt öllurn tiltækum táðum og stofnunum. I háskólaráði Kali- forníuháskóla er nú meirihluti íhaldsmanna, sem samanstendur af starfsmönnum Ronald Reagan ríkisstjóra og nokkrum þaulsætnum auðkýfingum. 18 af 24 meðlimum háskóla- ráðsins voru samþykkir brottvísun Angelu. „Við gátum ekki unað við að verða kallaðir kommúnistavinir'', sagði einn af íhalds- mönnunum í viðtali við blaðamann frá „Los Angeles Times". Lífsferill Angelu Davis: Fædd: 26. janúar, 1944. 1961—63 — Brandeis-háskóli, Waltham, Massachusetts. 1963— 64 — Sorbonne-háskóli — Certifi- cat de la littérature Franca- ise Contemporaine. 1964— 65 — Brandeis, B.A., Franskar bók- menntir. Magna Cum Laude. 1965— 67 — Johann Wolfgang von Göthe Universitát, Frankfurt, Þýzka- landi. Nám undir leiðsögn Theodor W. Adorno. September 1967 til desember 1968 — Kali- forniuháskóli, San Diego; M.S. í heimspeki. September 1968 — Tók forpróf fyrir dokt- orsgráðu i heimspeki. Október 1968 til júní 1969 — Aðstoðar- kennarl við Kaliforniuháskóla, San Diego. Maí 1969 — Ráðin sem prófessor við Kali- forniuháskóla í Los Angeles. Valdhafarnir í Kaliforníu fiskuðu upp gamla reglugerð í „baráttunni gegn komm- únismanum" innan Kaliforníuháskóla. Sú reglugerð hafði verið talin úrelt með nýrri reglugerð frá 1969, þar sem tekið var fram af háskólaráði að „Ekkert pólitískt viðmið skal nokkru sinni tekið til greina við ráðn- ingu og stighækkun kennara eða annars há- skólastarfsmanns". Athæfi valdhafanna hlaut að verða dæmt ólöglegt, því að t. d. hafði hæstiréttur Bandaríkjanna, í málinu Keyis- hian gegn Háskólaráði, 385 U.S. 589 (1967), dæmt ógildar reglugerðir New York rikis sem gerðu meðlimi Kommúnistaflokksins óhæfa til ráðningar sem kennara við ríkis- stofnanir. Þess vegna getum við skilið eftir- farandi yfirlýsingu sem undirrituð var af 74 lögfræðiprófessorum við lögfræðideildir 93

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.