Réttur - 01.04.1971, Page 48
skamma stund sakir mótmæla almennings og þann-
ig mætti lengi rekja.
Það var helzt að fangadómar fyrir hið ritaða
orð væru framkvæmdir til fullnustu. Gunnar Bene-
diktsson sem ritstjóri ,,Nýs Dagblaðs" sat af sér
sína 15 daga á ,,Landráðavöllum“ við Skólavörðu-
stíg — eins og hann nefnir tugthúsið í ritgerð sinni
í Rétti 1942, ritaðri þar, og Magnús Kjartansson
hefði setið lengur en tæpa viku, þegar hann var
dæmdur, ef ekki hefðu komið til safnanir í sektarfé.
En fangelsanirnar út af verkfallsbaráttu Dags-
brúnar og dreifibréfsmálinu í janúar 1941 urðu al-
varlegri, dómarnir þyngri — og framkvæmdir
harkalegri, af þvi að hér var að verki erlend her-
stjórn, sem beygði íslenzka ríkisstjórn til að láta
að vilja sínum og dæma þá, er börðust fyrir rétti
íslendinga gegn erlendum yfirgangsseggjum og
útlendu hernámsliði. Og almenningur fékk nú ei
þeim vörnum við komið sem ella tíðkuðust, vegna
hernáms og blaðbanns, m.a. segja kröfugöngur og
útifundir 1. maí voru bannaðir — i eina skiptið i
sögu Islands.
Frásagnir af atburðum þessum hafa verið skráðir
skilmerkilega í bókum Gunnars Magnúss frá þess-
um timum, í ..Virkinu í norðri" II. bls. 409—465, og
„Árunum, sem aldrei gleymast" (Island og heims-
styrjöldin síðari) bls. 267—289 og 295—315. Hér
skal því aðeins rakinn annáll með örfáum athuga-
semdum, svo Réttur minnist að nokkru þessara
sögulegu atburða, er þrjátíu ár eru liðin frá því
þeir gerðust.
2. janúar 1941: Dagsbrúnarverkfall hefst. Brezkir
hermenn látnir vinna verkfallsbrjótavinnu.
5. ianúar: Haraldur Bjarnason og Helgi Guð-
laugsson handteknir af brezka hernámsliðinu fyrir
dreifingu flugmiða þar sem skorað er á brezku her-
mennina að láta ekki nota sig sem verkfallsbrjóta.
6. janúar: Eðvarð Sigurðsson og Eggert Þor-
bjarnarson handteknir af brezka hernámsliðinu
vegna forustu í verkfallinu.
9. janúar: Guðbrandur Guðmundsson tekinn fast-
ur af brezka hernum. Allir fangarnir voru geymdir
í fangelsi Breta á Kirkjusandi og beittir hótunum.
10. janúar: Fangarnir fimm afhentir íslenzkum
yfirvöldum.
13. janúar: Ásgeir Pétursson handtekinn i sam-
bandi við „dreifibréfsmálið".
14. janúar: Hallgrímur Hallgrimsson handtekinn
vegna dreifibréfsmálsins. Eru þá alls sjö verka-
menn í gæzluvarðhaldi. Fer nú rannsókn málsins
fram. Komu þeir Eggert og Hallgrímur sér saman
um að segjast hafa samið dreifibréfið, til þess að
reyna þannig að koma í veg fyrir frekari rann-
sóknir og aðgerðir gegn flokknum og verkalýðs-
hreyfingunni.
4. febrúar: Dómsmálaráðuneytið fyrirskipar máls-
höfðun gegn átta mönnum vegna dreifibréfsins, —
þeim sjö, er inni sátu og Guðmundi Björnssyni.
Ennfremur gegn ritstjórum Þjóðviljans, Einari Ol-
geirssyni og Sigfúsi Sigurhjartarsyni, en ÞjóðviIjinn
hafði varið verkamennina og deilt hart á bæði
brezka hernámsliðið og rikisstjórnina. Ákæran var
um brot á 10. kafla hegningarlaganna, er fjallar um
landráð.
15. febrúar: Sakadómari i Reykjavik kveður upp
dóminn í dreifibréfsmálinu: Eggert og Hallgrímur
dæmdir í 18 mánaða fangelsi hvor, Eðvarð og Ás-
geir í 4 mánaða fangelsi hvor, allir fjórir sviftir
kosningarétti og kjörgengi. Hinir fjórir sýknaðir.
Einar og Sigfús dæmdir i 3 mánaða varðhald hvor.
Hinir dæmdu áfrýja til hæstaréttar.
17. marz: Hæstiréttur dæmir Eggert og Hallgrím
I 15 mánaða fangelsi og missi borgaralegra réttinda,
Eðvarð og Ásgeir i 4 mánaða fangelsi. Einar og
Sigfús í 3 mánaða varðhald. Egill Sigurgeirsson
varði 8 af þeim ákærðu, þar með Einar og Sigfús,
en Pétur Magnússon, síðar ráðherra i nýsköpunar-
stjórninni, varði Eggert og Asgeir. I varnarræðunni
sagði Pétur: Sú stjórn, sem lætur dæma þessa
menn, er landráðastjórn.
26. marz: Eggert, Hallgrímur, Eðvarð og Ásgeir
fluttir á Litla-Hraun. Neitað um frest á framkvæmd
dómsins, svo þeir gætu heimsótt fjölskyldur sínar
og gert ráðstafanir viðvikjandi heimilum sínum. —
Alþýðan herti á fjársöfnun til fjölskyldna þeirra,
sem áður var hafin, og svaraði þannig harðýðgi
valdhafanna. — Svo harkaleg var framkoma fang-
elsisyfirvalda, að þegar Hallgrimur nokkru síðar
var fluttur í röntgendeildina á Landsspitalanum dag
einn til rannsóknar (hún var þá í kjallaranum), þá
var honum neitað að fá að lita til konu sinnar og
nýfæddrar dóttur, sem voru á fæðingardeildinni á
efstu hæð Landsspitalans. — Á Litla-Hrauni var
aðbúnaður slæmur.
27. apríl: Þjóðviljinn bannaður af brezku her-
stjórninni og blaðamenn hans allir þrír: Einar Ol-
geirsson, Sigfús Sigurhjartarson og Sigurður Guð-
mundsson handteknir af brezka hernum á heimilum
þeirra um kvöldið samkvæmt skipun brezka hers-
höfðingjans Curtis og fluttir um borð í herskipið
104