Réttur - 01.04.1971, Page 53
ÁRNI BJÖRNSSON:
BROBY
JOHANSEN
Lágmynd frá um 500 e. Kr.: Ræðarar á báti, gotn-
eskur steinn frá Sanda.
Á sl. hausti, 25. nóvember, átti Rudolf
Broby-Johansen sjötugsafmæli. Hann er
fæddur í Álaborg og lauk stúdentsprófi frá
Haslev 1919, en cand. phil. prófi frá Hafnar-
háskóla 1920. Síðan hefur hann lagt ein-
stæða og sérstæða stund á lista- og menning-
arsögu, eins og bækur hans eru bezt vitni um,
en hefur annars látið sér fátt mannlegt óvið-
komandi. Á árunum 1920—1935 starfaði
hann aðallega sem óháður blaðamaður og
flæktist þá um flest lönd Evrópu, en var auk
heimalandsins einkum löngdvölum í Noregi
og Svíþjóð. Hann skrifaði þá fyrir fjölda
blaða, einkum um listir og þjóðfélagsmál.
Hann hefur einnig verið ritstjóri nokkurra
blaða og tímarita, t.d. Imorgen 1925—27,
Skandinavisk Monde 1928—30, Forsfigsscen-
en (með öðrum) 1929—30, Frem. Marxistisk
Mdnedshefte (með Einar Nielsen) 1932—35,
Kunst 1954.
Hann gaf út ljóðabókina Blod 1922, en
hún var gerð upptæk, bókina Kmist. En
Introduktion 1924, Bodsspil 1925, Anton
Hansen 1927 (ásamt Tom Kristensen, Sig.
Wandel og Ernst Toller), Social Kunst II
1930 (ásamt Erna Watson), Sovjetnnionens
Femaarsplan 1931 (ásamt Boserup og Robert
Mikkelsen), Kunst og Klasse 1932, Kina
klager 1933. Hann var formaður stúdenta-
félagsins í Oslo (Studentsamfunnet) 1930.
Frá 1935 hefur hann aðallega starfað sem
rithöfundur og fyrirlesari og hefur á síðustu
áratugum haldið um 100 fyrirlestra árlega
um li'tir og menningarsögu, aðallega í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð. Hann hefur sett
saman myndaflokka til kennslu í fornaldar-
fræði og listasögu fyrir kvikmyndasafn
danska ríkisins. Hann er forstöðumaður sum-
arháskólans í Vrá í Vendsyssel, en hefur auk
}>ess annazt námskeið í lista- og menningar-
sögu við Siljan-skólann í Dölum í Svíþjóð
og lýðháskólann í Hróarskeldu.
109