Réttur - 01.04.1971, Side 57
hefur séð í Höfn, er hann var þar við nám, en
í Þór með hamarinn sjáum við raunverulega smið-
inn í Kirkjubæ, bak við Loka með netið býr einn af
fiskimönnunum þar og Baugi með sinn mikla bor
er táknrænn fyrir hinn takmarkaða námugröft á
Islandi 18, aldar.
Með myndunum:
Ásaþór með hamar sinn. Áletrunin hljóðar svo:
„Ásaþór með hamarinn Mjölni og spentur megin-
gjörðum er þetta." Á beltinu stendur „megingjörð"
með rúnum. I hægri hönd mundar hann Mjölni.
Sá, sem fann upp fiskinetið. Áletrunin hljóðar
svo: „Loki Laufeyjarson með netið er þetta. Svo
sem segir I Eddu 46. dæmisögu." Ólafur hefur skipt
afskrift sinni I kafla, sem hann kallar dæmisögur.
bað, sem hann vitnar í hér, er kaflinn um hvað
verður um Loka, eftir að hann hefur valdið dauða
Baldurs og þar fær Loki heiðurinn af að hafa
fundið upp fiskinetið. Það hljóðar svo: ,,Þá er
goðin voru orðin honum svo reið, sem von var,
hljóp hann á braut og fól sig á fjalli nokkurru, gerði
þar hús og fjórar dyr, að hann mættl sjá úr húsinu
f allar áttir, en oft um daga brá hann sér í laxlíki
og fólst þá þar sem heitir Fránangursfoss; þá
hugsaði hann fyrir sér, hverja vél Æsir myndu til
finna að taka hann í fossinum; en er hann sat í
húsinu, tók hann lingarn og reið á ræksna, sem
net er síðan gjört; en eldur brann fyrir honum. Þá
sá hann, að Æsir áttu skamt til hans og hafði
Óðinn séð úr Hliðskjálfinni, hvar hann var. Hann
hljóp þegar upp og út I ána, en kastaði netinu
fram á eldinn. En er Æsir komu til hússins, þá
gekk sá fyrst inn, er allra var vitrastur, er Kvásir
hét, og er hann sá á eldinum fölskvann, er netið
hafði brunnið, þá skildi hann, að það myndi vél
vera til að taka fiska, og sagði ásum. Því næst
tóku þeir og gerðu sér net eftir þvi sem þeir sáu
á fölskvanum að Loki hafði giört. Og er búið var
netið, þá fara Æsir til árinnar og kasti neti I foss-
inn." Þannig veiddu þeir Loka.
Skytta á skíðum. Stærri öletrunin ofan til, vinstra
megin, hljóðar svo: „Ullr, sonur Óðins, með sinn
boqa skríður hér á skíðum.' 'l smáleturs-áletruninni
til hægri segir að skjöldur sé og kallaður skip
Ullar. I Eddu stendur að Ullr sá sonur Sif og
stjúpsonur Þórs. „Hann er bogmaður svo góður
113