Réttur


Réttur - 01.04.1971, Page 58

Réttur - 01.04.1971, Page 58
hmsm nik’t'mi hUixteA’l BMFtal fW.<Píw íkÆííss’S og skiðfær svo, að engi má við hann keppast." Ullr hefur verið vinsæll guð og mörg staðarnöfn í Noregi og Sviþjóð bera heiti hans. I Danmörku eru þau fá, en eitt af þeim eftirtektarvert: bónda- bærinn Ulvig, því skammt frá honum, við Bromalle — stendur 1500 ára gamall ýr. Og ýr er hið helga tré Ullar, þvi hann var góður í boga. En hugmyndir Ólafs um skíði eru skritnar, máske verið lítið um skíði í grenndinni. Námugröftur goðsagna. Þar stendur: Hér borar Baugi, bróðir Suttungs, Hnitbjörg með nafrinum Rata eftir beiðni Bölverks, er Öðinn var reyndar. Svo sem segir i sextugustu og fyrstu dæmisögu Eddu." Á persónunum stendur Baugi og Bölverkur, á bornum Rati og björgunum Hnitbjörg. Myndin segir frá sögu þeirri, er hefst með sköpun Kvásis. Æsir og Vanir höfðu samið frið og settu á þá lund að hvorirtveggju gengu til kers eins og spýttu í, og skópu úr því Kvási, er var svo vitur, að engi spyr hann þeirra hluta er eigi kann hann úrlausn. Dvergar tveir drápu hann og blönduðu blóð hans með hunangi og varð af mjöður sá, er hver, sem af drakk, varð skáld eða fræðamaður. Suttungur nær mjöðinum og geymir hann í Hnit- björgum en setur dóttur sína Gunnlöðu til gæzlu hans. Óðinn spurði hvar mjöðurinn var niður kom- inn, fór hann til Bauga jötuns, bróður Suttungs, og hitti þræla hans niu, er slógu hey. Óðinn bauð að brýna Ijái þeirra. Þótti þeim hein hans svo góð að allir vildu hafa, kastaði Óðinn henni í loft upp og vildu allir henda í einu og brá hver Ijánum á hnls öðrum. Leitaði Óðinn nú náttstaðar hjá Bauga, er bar sig illa, er þrælar hans höfðu drepist og taldi sig ei vita sér von verkmanna. Óðinn nefnd- ist Bölverkur og bauðst tll að vinna nlu manna verk fyrir Bauga, en mæltl sér til kaups elnn drykk af Suttungs-miði. Að sumri loknu fara þeir til Sutt- ungs, en hann synjar hvers dropa. Bölverkur gaf nú Bauga nafarinn og bað hann bora i bergið. Brást Bölverkur svo í ormslíki og skreið i nafar- raufina og til Gunnlaðar og lá hjá henni þrjá nætur, drakk svo allan mjöðinn og flaug brott i arnarham. Er Æsir sáu hvar Óðinn flaug, settu þeir út ker sín og spýtti hann miðinum í þau, en Suttungur, sem elti hann, var svo nærri honum að hann sendi aftur suman mjöðinn. Þessvegna er til tvenns- konar „Suttungs-mjöður". Hin góðu skáld fengu hinn góða mjöð, en þau, sem fengu hinn, skáld- fiflin, kunna illa að yrkja.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.