Réttur


Réttur - 01.04.1971, Page 59

Réttur - 01.04.1971, Page 59
EINAR OLGEIRSSON: VORÖLD RAUÐRAR REISNAR Kristinn E. Andrésson hefur nú hætt að veita Máii og menningu forstöðu. Þegar Kristinn kveður Mál og menningu eftir aldarþriðjungs forustu, kvikna i sinni voru margar hugleiðingar. Ekki aðeins um þennan furðulega mann, Kristinn E. Andrésson, sem slær öll met, sem ég þekki til i heimshreyfingu sósialismans með því að gerast i senn andlegur leiðtogi og hugsuður rismestu skáldahreyfingar i sögu lands annars vegar og hinsvegar fjármálalegur frum- kvöðull bókmenntafélags, útgáfufélags, prent- smiðjufélags, bókaverzlunar og rekstursaðstöðu fyrir þessi fyrirtæki öll, — og gerist svo um leið í hamhleypuskapi andans höfuðsagnaritari þessa bókmennSatimabils með sögu sinni um timabilið 1918—49* og á máske eftir enn þá meir á þvi sviði. Heldur og um hið mikla gildi, sem sú skáldakyn- slóð hafði fyrir sósialistiska verklýðshreyfingu Is- lands á erfiðasta og harðasta braáttuskeiðinu, — um timabil þeirrar rauðu bókmenntareisnar, sem tómir pennar borgarastéttarinnar helzt vilja nú hylja i gleymskunnar hjúpi. Þegar holskeflur heimskreppunnar skullu yfir Is- land eftir 1930, — þegar auðvaldsskipulagið sýndi sig i sinni sönnu og viðurstyggiiegu mynd, — þeg- ar atvinnuleysi og sultur svarf að alþýðu og hún reis upp til baráttu eins og atvinnuleysisbaráttunn- ar i Reykjavík 1932, til kaupgjaldsbardaganna eins og Novu- og Dettifoss-slagsins 1933 og 1934, — þá kom til liðs við aiþýðuna allt, sem bezt var, djarfast og hugrakkast i íslenzkri skálda- og rit- höfundasveit. Þegar neyðin var stærst og rang- lætið hrópaði til himins, þá reis og hugsjónin hæst og boðskapurinn um frelsisþjóðfélag framtíðarinn- ar var fluttur af þeim, er vit höfðu til að sjá úr- ræðin og hugrekki til að fylgja þeim fram, en hæstum tónum náðu þá skáld hinna rauðu penna og veittu rísandi baráttu alþýðunnar þá reisn og tign, er hún hefur hæsta öðlazt. Skáld sósíalismans á íslandi setja fyrst og fremst svip sinn á tímabilið 1924 til 1955, en innan þess tímabils má greina skemmri skeið, hvert með sín- um einkennum. AÐDRAGANDINN Árin 1924 til 1933 eru aðdragandinn að þvi sem koma skal. Þórbergur ryður brautina með „Bréfum til Láru" 1924 og síðan „Eldvigslunni" næsta ár og * Kristinn E. Andrésson: Islenzkar nútimabókmennt- ir 1918—1948. Mál og menning 1949. 115

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.