Réttur - 01.04.1985, Page 17
HEIMIR PÁLSSON:
Kennaradeilur
1984 og 1985
Ritstjóri Réttar hefur farið þess á leit að ég skrifi greinarkorn um vinnudeilur
Þ%r sem kennarastéttin á íslandi hefur átt í á undanförnum misserum. Ég finn
°iig að vísu vanbúinn til þess, m.a. vegna þess að tími leyfir mér ekki allar þær
athuganir á íslenskri verkalýðssögu sem gaman hefði verið að gera, en þó finnst
°iér rétt að verða við tilmælunum, enda kynni greinarstúfurinn að verða ein-
^verjum fróðari manni hvatning til að skrá alla þá sögu sem hér hefur verið að
gerast.
Með þætti kennara í verkfalli BSRB á liðnu hausti og uppsögnum háskóla-
•þenntaðra kennara í HIK nú á vordögum var farið inn á nýja braut í kjarabar-
attu á Islandi, og stétt sem hingað til hefur þögul unað augljósu misrétti hristi
klafann. Bæði henni og öðrum sem hugsa um verkalýðsmál gæti verið hollt að
reyna þegar í stað að meta það sem gerðist. Það er ekki víst að kennarastéttin
hafi sannfærst um að hún sé voldug og sterk, en hugsanlega þó bæði voldugri og
sterkari en fyrr hafði verið talið.
^feytt skólakerfi
~~~ breytt kennarastarf
Tilgangslaust er að reyna að gera grein
^yrir kennaradeilunum nema fyrst sé
°furlítið hugað að þeim breytingum sem
°iðið hafa á íslensku skólakerfi síðustu
urin og þá um leið starfi íslenskra
Lnnara.
Fyr*r tveim áratugum var íslenska
skólakerfið fyrst og fremst mótað af hug-
rnyndum upplýsingastefnunnar síðari.
^jálfsvitund og sjálfsskilningur vestrænna
sarnfélaga gekk út frá því sem gefnu að
nieð ákveðna þekkingu að vegarnesti yrði