Réttur


Réttur - 01.04.1985, Side 42

Réttur - 01.04.1985, Side 42
myndum borgaralegra femínista, kynnti hún sér náið borgaralegar kvenfrelsisbók- menntir til eflingar sinni eigin viðleitni að setja fram nýja kvenímynd. í þeim til- gangi ritaði hún skáldverk. Mótsagnirnar halda áfram að fylgja henni, og það var styrkur hennar, að hún reyndi ekki að breiða yfir þær. Henni tókst aldrei að fella saman hug- myndafræði kvenfrelsisbaráttu og stétta- baráttu, og er mála sannast, að það hefur ekki tekist enn í dag. Það er athyglisvert, hve umræðan og baráttumálin fyrir ára- tugum eru keimlík þeim, sem tekist er á um nú á dögum. Fræðikenning marxista um kvenfrelsi og kvennabaráttu er enn við lýði, einkum innan kommúnistaflokka víða um heim, og framsækinn armur borgaralegs femín- isma hefur þróast áfram, svo sem berlega sést í kvennahreyfingum nútímans. Þetta tvennt, stéttabarátta og kvennabarátta, hefur enn ekki náð að tengjast sem sam- ræmd heild. Starfið gefur lífinu gildi Margt hefur verið rætt og ritað um Alexöndru Kollontay, verk hennar og viðhorf, einkum í seinni tíð. Eftirfarandi atriði ganga eins og rauður þráður í gegn um fjölmörg rita hennar. Hún segir t.d.: „Konur verða að læra það að beina ekki öllum sínum lífs og sálar kröftum að ást- inni á karlmanni. Starfið er það, sem gef- ur lífinu gildi, og konur verða að setja eigin skapandi og nytsama vinnu í forgang. Þetta er megininntakið í flestu því, sem ég hefi fest á blað um samband kynjanna. Ástin má ekki þurrka út pers- ónuleika konunnar, ekki brjóta hana niður sem einstakling, ekki hefta sjálf- stæði hennar. Ef ástin verður henni þvingun og áþján, þá verður hún að losa um þau bönd, þótt það sé sársaukafullt. Hún verður að láta alla ástarharmleiki lönd og leið og ganga sína eigin braut.“ Alexandra Kollontay gat úr flokki talað, er hún gaf kynsystrum sínum þetta vega- nesti. Við getum kallað það neikvætt frelsi, þar sem gengið er út frá því sem vísu, að eitt hljóti ævinlega að verða á annars kostnað. Svo mikið er víst, að ekki tókst henni sjálfri í sínu einkalífi að sameina þetta tvennt, starfið og ástina, utan einu sinni um stutt skeið árið 1917-18. Um það far- ast henni svo orð, reyndar fyrir munn einnar sögupersónu sinnar. „Við vorum ekki fyrst og fremst eiginmaður og eigin- kona, heldur framar öllu félagar og jafn- ingjar, nátengd í sameiginlegri baráttu. Starfið var fyrir öllu, og um það myndað- ist engin togstreita okkar í milli.“ Einkalíf Alexöndru Kollontay þótti öldungis ekki í hefðbundnum stíl. Hún lifði eftir kenningu sinni og fór sína leið, hvenær sem sambúð við hinn heittelskaða tók að þrengja að athafnafrelsi hennar. Ung að aldri yfirgaf hún eiginmann sinn (æskuást' a) og ungan son, er hún fór til háskólanams í Zurich. Síðar er þau slitu hjúskap, tók hún að sér uppeldi sonarins. Seinni eiginmenn hennar voru Al. Schlj- apnikov og Pavel Dybenko, báðir þekktir baráttumenn frá byltingarárunum. Alexandra Kollontay var umdeild á sinni tíð, ekki síst vegna róttækra við- horfa sinna í kvenréttindamálum. Hún vildi nema burtu skilin milli stjórnmála og einkalífs og gerði sér þær hugmyndir um sósíalíska kvennabaráttu, að hún hlyti að ná lengra og fela í sér fleira en lýðræðis- lega kröfu um jafnrétti. Ekki taldi hún nægilegt, að konur fengju þegnrétt í karla- veröldinni eins og hún kæmi fyrir, heldur yrði öll mótun hvers einstaklings að taka 106

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.