Réttur


Réttur - 01.04.1985, Side 59

Réttur - 01.04.1985, Side 59
áfram sleitulaust og nýtt áhugafólk gerð- ist virkt: Á fundi A.S.V. 6. maí tala þau Erling Ellingsen og Katrín Pálsdóttir og Steinn Steinar las upp. — Þannig mætti telja upp endalaust. — Síðarihluta árs 1933 skreptist svo baráttan gegn nasism- anum og fundarhöldin í því sambandi. Var ekki síst 9. nóv. 1933 sögulegur í því samhengi, er tveir góðir ungir félagar skáru niður hakakrossfánann á þýsku skipi og komust undan með hann. Hóf lögreglan nú mikla leit að „sökudólgun- um“ og fánanum. Leitaði hún m.a. í Bröttugötu, en þar höfðum við falið fé- lagana tvo í gamla sýningarklefanum, en lögreglan var svo kurteis að leita ekki þar. K.F.Í. hélt opinn fund í Bröttugötu- salnum um kvöldið og þar sýndi ég haka- krossfánann og er nánar sagt frá öllum þessum atburðum í „ísland í skugga heimsvaldastefnunnar, bls. 71-72. Þau rúm þrjú ár, sem K.F.Í. var í Bröttu- götunni, voru honum dýrmæt reynsluár. Honum tókst með fyrirlestrum, leshring- um og umræðum að þroska andlega vax- andi fjölda, er um leið efldist að þrótti og forustuhæfni með virkri þátttöku í hinni hörðu stéttabaráttu þessara ára, einhverri harðvítugustu stéttabaráttu íslandssög- unnar. Þannig tók að mótast og magnast það mannval, sem átti eftir að móta ís- landssöguna, er mest reið á. Bestu skáld °g menntamenn þjóðarinnar voru að koma til liðs við flokkinn á þessum árum. Auglýsingin um fund í Bröttugötusalnum 28. okt. 1934 til stuðnings baráttunnar fyrir frelsi Thálmanns og votta uppreisn- inni á Spáni stuðning, er táknræn í þess- um efnum: Þar syngur Karlakór verkamanna, er skólast hefur undir stjórn Hallgríms Juk- obssonar, Brynjólfur og Krístinn E. And- résson flytja ræður og Jóhannes úr Kötlum les upp kvæði. Tókst fundurinn með ágætum. Barátta flokksins fyrir víðfeðma sam- fylkingu tekur að bera æ meiri ávöxt, eins og best kom fram í hinni voldugu kröfu- göngu samfylkingarinnar 1. maí 1935. Kvöldið fyrir, þann 30. apríl var voldugur fundur í Iðnó, þar sem Karlakórinn söng, leikhópar sýndu smáleik, þeir Eðvarð Sigurðsson og Einar Olgeirsson fluttu ræður, Kristinn Andrésson erindi og Hall- dór Kiljan Laxnes las upp. Daginn eftir átti svo Halldór að lesa upp hjá Alþýðuflokknum og las „Þórð gamla halta“ en var stöðvaður í miðri sögu af framkvæmdastjóra flokksins. leiddur niður af pallinum og út. Hann hafði minnst á samfylkingu verkamanna. En „Róttæka stúdentafélagið“ undir for- ustu Björns Sigurðssonar, síðar okkar mikla vísindamanns er varð forstjóri að Keldum, fékk Halldór til að lesa „Þórð gamla halta“ — og tvífyllti Nýja Bíó. Kommúnistar höfðu með samfylkingu tekið forustuna í því félagi, er síöan fékk meirihluta í stúdentaráði um haustið og fékk Halldór þá til að flytja aðairæðuna 1. des., er útvarpað var og varð sögulegur atburður. K.F.Í. flutti úr Bröttugötu sumarið 1935. En stefna hans, samfylkingin, var þá að byrja sigurför sína í verkalýðshreyf- ingunni og sósíalisminn að hefja bók- menntir íslands upp á nýtt og hærra stig. Þau öfl voru að mótast og sameinast, sem eftir eldskírn afturhaldsárása áttu eftir að sigra fátækt Islands og íhaldsöfl þess 1942 og móta þá frelsishreyfingu, er háði í upp- hafi vopnlausa stríðið við heimsvalda- stefnu ameríska auðvaldsins, er ráðist var til atlögu við sjálfstæði og tilveru þjóðar- innar. E.O. 123

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.