Réttur - 01.08.1976, Side 53
Luis Corvalan
sextugur
Þann 14. september sl. varð LUIS COR-
VALAN, aðalritari Kommúnistaflokks
Chile, sem nú er píndur í dýflissum fas-
istastjórnarinnar, sextíu ára. Krafan um
frelsi fyrir þessa hetju verkalýðsins í
Chile, sem býður kvölurum sínum byrg-
inn, vex í sifellu um víða veröld.1’
Luis Corvalan er fæddur 14. september
1916 í Puerto Montt, sunnan til í Chile. Fað-
irinn var barnakennari, móðirin bændastúlka,
sem hvorki lærði að lesa né skrifa, þegar hún
var ung. Luis langaði til að verða kennari og
komst á kennaraskóla. Það var á neyðarárum
heimskreppunnar, atvinnuleysið óskaplegt.
Það var árið 1934 að Corvalan var að kenna
börnum verkamanna og fiskimanna í bæn-
um Tomé, í héraðinu Conception, að farið
var að ræða í hópnum um orsakir eymdar-
innar og verkamaður að nafni Palma sagði
frá myndun gamla Sósíalistaflokksins og frá
stofnanda hans Emiliano Recabarreu. En upp
úr þeim flokki var Kommúnistaflokkur Chile
myndaður 1922. Corvalan gekk þá í flokk-
inn og tók að vinna að útbreiðslu sósíalism-
ans.
Hann varð 1938 blaðamaður við eitt blað
flokksins, er nefndist „Vakning verka-
manna". Afhjúpaði hann arðrán bandaríska
saltpéturshringsins og hlaut að launum fyrstu
fangelsisvist sína í Iquique og svo í Antofa-
gasta og að lokum í afskekktum stað Pitruf-
quen. Þegar hann kom úr þessari fangavist
1939 hélt hann aftur til blaðsins og varð nú
aðalritstjóri þess. Þá var í Chile víðfeðma
þjóðfylking kommúnista, sósíalista og rót-
tækra borgaraflokka.
Arið 1940 hóf Kommúnistaflokkurinn út-
gáfu dagblaðs, er nefndist „E1 Siglo" (öldin).
Várð Corvalan fyrst starfsmaður og síðan
1946 ritstjóri þess. Atti blaðið sinn þátt í
kosningasigri þjóðfylkingarinnar, er Gon-
zález Videlá var kosinn forseti. En undir
áhrifum Bandaríkjaauðvaldsins og aftur-
haldsins heima fyrir sveik Videla þjóðfylk-
inguna og hóf 1948 ofsóknarherferð gegn
kommúnistum.
Luis Corvalan var þá tekinn fastur og
píndur í fangelsi. Hann sagði síðar svo frá
þeim atburði: „Þá nótt var ég barinn mikið