Fréttablaðið - 28.03.2009, Page 18
18 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
NÝR OG TRAUSTUR
KOSTUR Í SPARNAÐI
OG FJÁRFESTINGUM
Fréttablaðið leit við á landsfundi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar síðdegis í gær og ræddi við fundargesti og kannaði stemninguna.
FRÉTTASKÝRING: Á landsfundi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
„Ég gekk í flokkinn árið 1956 svo ég hef verið á nokkuð mörgum landsfundum.
Reyndar missti ég af þeim þó nokkrum þar sem ég varð að vinna en ég er með
hágreiðslustofu. Nú er ég komin á þann aldur að ég hef bara lokað og allir eru
bara sáttir við það og svo skelli ég mér á landsfundinn.“ En finnst henni eitthvað
ólíkt með þessum landsfundi og þeim sem hún hefur áður verið á? „Já, ég finn
sérstaklega fyrir því hvað það er mikill áhugi núna, ég er í hverfisfélagi og varð
því vör við það að fólk kepptist við að fá að vera með. Áður þurfti að ýta við fólki
en sú var ekki raunin að þessu sinni.“ Hún segist ekki hafa efast um flokkinn
jafnvel þegar mestu ófarirnar voru að dynja yfir þjóðina með Sjálfstæðisflokkinn í
ríkisstjórn. „Nei, aldrei og ég held að Davíð Oddsson eigi ekki dyggari stuðnings-
mann en mig.“
Erla Ruth Sandholt:
Lokaði stofunni og fór á fundinn
Fundir markaðir af kreppu og kosningum
„Mér sýnist á öllu að þetta eigi eftir að vera
góður landsfundur. Það er létt yfir fólki og
góð stemning. Svo tel ég að Samfylkingin eigi
eftir að fylkja sér á bak við nýjan formann
og svo á að kjósa varaformann og hvað það
varðar þá hef ég myndað mér skoðun.
Þetta er fyrsti landsfundurinn sem ég kem
á. Ástæðan fyrir því að ég er hér er sú að ég
hef mikinn áhuga á því að vera með í mál-
efnahópavinnu og mér er mjög hugleikið
almannatryggingakerfið þar sem ég þekki svolítið til. Svo nú er ég hér sem
landsfundarfulltrúi og ætla að reyna að hafa áhrif.“
Erla Steingrímsdóttir:
Fyrsti landsfundurinn„Ég held að samhugurinn sé jafnvel meiri nú en oft áður í Samfylkingunni. Ég held að þessi erfiðleikar hafi jafnvel
eflt samstöðuna og svo erum við að mælast vel í skoðana-
könnun sem er nú ekki til að skemma fyrir svona skömmu
fyrir kosningar.“ En efaðist hún aldrei um flokkinn þegar
efnahagskerfið fór á hliðina á hans vakt. „Ég verð nú alltaf
jafnaðarmaður en vissulega verðum við að viðurkenna að
við gerðum mistök og ég held að enginn sé betur í stakk
búinn til að reisa þetta aftur við en Samfylkingin.
Nú vil ég að við drögum vagninn í Evrópumálunum,
eigum ekkert að hörfa frá því né bíða eftir því hver ætli að
bjóða okkur í dans, við eigum bara að taka Evrópuslaginn.“
Að þessu kveðnu varð hún að sinna dóttur sinni Eyrúnu
Unu Arnarsdóttur sem lét sig ekki vanta á fundinn.
Jenný Þorkatla Magnúsdóttir:
Á fulla ferð inn í
Evrópumálin
„Þessi landsfundur er frábrugðinn að því leyti að þetta
ber brátt að, ástandið er síðan eins og það er og svo
er stutt til kosninga. En þetta er stærsti landsfundurinn
hingað til svo að okkur er greinilega að vaxa fiskur um
hrygg. Nú ber okkur að draga vagninn í Evrópumálunum
en síðan verðum við að tala meira um efnahagsmálin nú
en oft áður.“
Hann segir að þó hann hafi mætt á mótmælafundi á
Austurvelli í vetur þá bitni það ekki á hollustu hans við
flokkinn. „Þetta er einmitt styrkur Samfylkingarinnar að
hann hefur umburðarlyndi gangvart skiptum skoðunum.
Það sást best á fundinum fræga í Þjóðleikhúskjallaran-
um. En svo stöndum við sterkari á eftir sem sést á því að
við erum nú á okkar stærsta landsfundi.“
Þorsteinn Ingimarsson:
Frá mótmælum á
landsfund