Fréttablaðið - 28.03.2009, Page 32
32 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
Ein aðaláherslan er að ná niður verðbólgunni og
styrkja krónuna. Það kemur til með að skipta heimili
og fyrirtæki hér á landi máli því þannig er unnið á
móti frekari skuldabyrði.
S
vein Harald Øygard seðla-
bankastjóri er vinalegur
maður með traust og þétt
handtak. Hann segist hafa
verið ráðinn til Seðlabanka
Íslands vegna sérþekkingar
á mörgum þeim vandamálum sem þjóð-
in stendur nú frammi fyrir.
„Ég tók að mér þetta millibilshlut-
verk og það nægir mér,“ segir hann
spurður um hvort hann gæti hugsað
sér að sinna starfinu áfram, stæði það
til boða þegar fram í sækti. „Og vitan-
lega er fjöldi hæfra Íslendinga sem geta
tekið að sér starfið,“ segir hann og bros-
ir. „Ég hef hins vegar þekkingu á svið-
um sem nú reynir á, hafandi starfað við
bankakreppur, tekið á fjárhagsáföllum
heimila, og tekist á við gjaldmiðlaáföll
og eftirleik gjaldeyriskreppu. Svo hef
ég starfað við leiðandi norræn og evr-
ópsk fyrirtæki í viðskiptum og þessa
reynslu og hæfileika hef ég fram að
bjóða og vona að þeir komi að gagni
í því umbreytingaferli sem hér er í
gangi.“
Er vanur langhlaupi
Ekki þarf að efast um að í Sveini Har-
aldi er að finna bæði kraft og þraut-
seigju. Kíminn viðurkennir hann að þótt
ekki beri hann það með sér þá stundi
hann maraþonhlaup. „Ég ætla að hlaupa
í New York-maraþoninu í nóvember og
hljóp líka í fyrra.“ Besti tími hans er
þrír tímar og tólf mínútur og verður það
að teljast harla vel af sér vikið. „Ég hef
ekki enn hlaupið maraþon hér á landi en
tek kannski þátt í Reykjavíkurmaraþon-
inu í ágúst ef tækifæri gefst. Því þori ég
samt ekki að lofa.“
Þá æfði Svein Harald sleggjukast á
árum áður og grínast með að þetta sé
sjálfsagt sjaldgæf blanda, langhlaup og
sleggjukast. Ekki þarf þó mikið ímynd-
unarafl til að draga líkingar milli
íþróttanna og verkefnanna sem fyrir
liggja hjá seðlabankastjóranum og kalla
sjálfsagt bæði á úthald og styrk.
Þeir eðlisþættir sem nýst hafa Sveini
Haraldi á íþróttasviðinu koma eflaust að
góðum notum nú, enda hlýtur að reyna á
að standa frammi fyrir jafnflóknum við-
fangsefnum fjarri vinum og fjölskyldu.
Frá því að Svein Harald hóf hér störf
í febrúarlok hefur hann einu sinni haft
tækifæri til að skjótast heim til Noregs
að hitta konu sína og tvo syni, 17 og 21
árs gamla. Sjálfur verður Svein Harald
Øygard 49 ára í sumar.
„En ég reyni nú samt að vera í sam-
bandi við fólk hér og er til dæmis búinn
að skrá mig í líkamsræktarstöðina í
Laugum, svona til að halda mér í formi,“
segir hann og þykir nokkuð til bæði
aðstöðu og fólks koma. „Krafturinn og
einbeitingin hjá fólkinu er svo mikil, ég
hef aldrei séð nokkuð þessu líkt.“ Um
leið bætir Svein Harald við að mjög lítill
tími sé aflögu þegar vinnudegi lýkur og
frítími því af skornum skammti. „Starf-
ið tekur á og margar ákvarðanir sem
taka þarf á degi hverjum.“
Svein Harald segist gera sér far um
að ræða hér við sem flesta, bæði til að
kynnast landi og þjóð og kynnast um leið
ólíkum sjónarmiðum sem snerta við-
fangsefni Seðlabankans. „Þannig hefur
maður á meiru að byggja en talnagögn-
um einum,“ segir hann og telur mikil-
vægt að taka þátt í umræðum svo sem
hjá samtökum atvinnuvega. „Ég hef
reynt að halda opnum samskiptaleiðum
milli bankans og þeirra sem ákvarðan-
ir hans snerta. Mér finnst að seðlabanki
þurfi að setja fram skýr markmið á
gagnsæjan hátt og leita sjónarmiða víða.
Um leið er svo ábyrgðin okkar að taka
ákvarðanir, en þær ættu að vera eins vel
undirbyggðar og kostur er.“
Seðlabankinn hefur hins vegar yfir
þeim tækjum að ráða sem þarf til
ákvarðanatökunnar, að mati Sveins
Haralds. Hann segir spálíkan bankans
mjög gott og ráða vel við að meta verð-
bólguþróun og þróun hagstærða. „Tækin
og aðferðafræðin hér er nokkuð góð,“
segir hann og hefur samanburð af fyrri
störfum við spálíkan sem byggt var á í
norskri hagstjórn, en skömmu eftir að
hann lauk námi árið 1986 hafði Svein
Harald umsjón með verðbólgugrein-
ingu þar.
Haftaafnámið bíður
Svein Harald kveðst hafa skilning á
vonbrigðum þeirra sem væntu meiri
lækkunar stýrivaxta á síðasta ákvörð-
unardegi. „Við þurfum hins vegar að
hafa í huga heildarmyndina. Ein aðalá-
herslan er að ná niður verðbólgunni og
styrkja krónuna. Það kemur til með að
skipta heimili og fyrirtæki hér á landi
máli því þannig er unnið á móti frek-
ari skuldabyrði. Í annan stað erum við
nú í miðju ferli endurskipulagning-
ar fjármálageirans. Mikilvægt er að
vel takist til í þeirri uppbyggingu, um
leið og hugað er að hagþróun og minnk-
andi verðbólgu sem þar með gefi svig-
rúm til vaxtalækkana. Við töldum hins
vegar að betra væri að taka fleiri smá
skref, fremur en að taka stórt stökk út
í óvissuna.“
Svein Harald kveðst hins vegar með-
vitaður um ólík sjónarmið sem uppi séu
hvað varðar hraða vaxtalækkunarferl-
isins. „Mér finnst mikilvægt að taka
ákvarðanir sem byggja á reynslu, en
ekki bara vonum og væntingum.“
Ákvarðanir um vaxtalækkanir árétt-
ar Svein Harald að séu á hendi peninga-
stefnunefndarinnar sem næst kynnir
ákvörðun sína 8. apríl. „Að öðru leyti
tjái ég mig ekki um væntanlegar vaxta-
ákvarðanir, þótt vitanlega búumst við
við því að verðbólga gangi mjög hratt
niður og að 2,5 prósenta verðbólgu-
markmiði bankans verði náð snemma
árs 2010.“
Það er hins vegar mat seðlabanka-
stjórans að ekki fari saman að gera
hvort tveggja á sama tíma, lækka vexti
og aflétta gjaldeyrishöftum. „Gjaldeyr-
ishöftin eru nokkurs konar stífla sem
hindrar flæði gjaldeyris úr landi, þótt
mikilvægt sé að koma þar á nokkrum
sveigjanleika. Hátt vaxtastig, þrátt
fyrir að vera óheppilegt fyrir efnahags-
lífið, stuðlar að stöðugleika. Ef bæði
eru lækkaðir vextir og stíflan losuð, þá
gætu afleiðingarnar orðið alvarlegar.“
Hvað tímasetningu ferlisins varðar
segist Svein Harald fullan skilning hafa
á því að margir vildu sjá hraðari breyt-
ingar og útilokar ekki að það gæti orðið.
„Ég hef í umfjöllun um þessi mál dreg-
ið upp mynd af verkefnum sem ljúka
þarf í fjórum þrepum fyrir lok annars
fjórðungs þessa árs. Í fyrsta lagi þarf
afgang á viðskiptum við útlönd og það
hefur þegar gerst. Við þurfum að sjá
vaxtalækkun, sem einnig hefur átt sér
stað. Við þurfum frekari lagfæringar
á skipulagi fjárlaga til næstu ára, sem
þegar er unnið að og við þurfum að
ljúka ákveðnum þáttum í endurskipu-
lagningu fjármálakerfisins sem einn-
ig er í gangi núna. Með þetta í huga er
hægt að horfa fram á tilslakanir í pen-
ingamálastjórn og við lok annars árs-
fjórðungs ætti betur starfhæft banka-
kerfi að vera komið á laggirnar og þar
með betri yfirsýn yfir stöðu mála.“
MEÐ VERKEFNIN Á HREINU Svein Harald Øygard seðlabankastjóri hefur skipt helstu viðfangsefnum sem við er að fást í
hagstjórn hér í fjóra liði sem hann vinnur skipulega að. Hann segir framtíðarskipan peningamála vera á verksviði stjórn-
málanna og ekki hluta af brýnustu verkefnunum nú. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þótt dimmt sé yfir heiminum
skiptir vinnan hér heima mestu
Svein Harald Øygard seðlabankastjóri er maraþonhlaupari og sleggjukastari sem hefur bara einu sinni séð fjölskyldu sína frá
því að hann hóf hér störf fyrir rúmum mánuði. Hann hefur trú á að með dugnaði geti þjóðin unnið sig út úr vandræðum sínum
og vill leggja sitt lóð á vogarskálarnar á þeirri leið, síðan sé annarra að taka við. Óli Kristján Ármannsson ræddi við Svein Harald,
sem telur ekki fara saman vaxtalækkun og afnám hafta. Þá þurfi að taka á öðrum málum áður en hugað sé að krónunni.
Aðsteðjandi vandi brýnastur
Seðlabankastjórinn er jafnframt meðvit-
aður um að unnið sé að þessum umbót-
um í skugga mikillar fjárfestingar í
krónubréfum, en telur að draga muni
úr hættu á flótta fjármagns úr kerf-
inu eftir því sem lengra dregur. „Þegar
fjárfestar sjá verðbólguna minnka og
skýrari mynd kemst á skuldastöðu rík-
isins um leið og horfur á stöðugleika og
hagvexti hér á landi batna þá verður um
leið minna aðlaðandi fyrir þá að hverfa
af landi brott. En auðvitað tekur tíma
að koma hlutum í það horf að allt gangi
upp og afnám gjaldeyrishafta er ekki
það allra fremsta í aðgerðaröðinni.“
Þá áréttar Svein Harald að Seðla-
bankinn hafi forræði yfir eigin mála-
flokkum og að peningastefnunefnd taki
ákvarðanir í peningamálum, en ekki
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS). „En
á sama tíma njótum við vitanlega ráð-
gjafar AGS hvenær sem okkur þykir
það við hæfi og við teljum framlag
sjóðsins mjög mikilsvert. Og mín upp-
lifun er að ráðleggingar AGS séu gefn-
ar með hagsmuni íslensku þjóðarinnar
að leiðarljósi.“
Sömuleiðis er það mat Sveins Haralds
að taka þurfi á aðsteðjandi vanda hag-
stjórnarinnar áður en sjónum sé beint
að stöðu krónunnar sem þjóðargjald-
miðils. Hann leggur jafnframt áherslu
á að ákvarðanir hvað varði framtíðar-
skipan peningamála hér séu á forræði
stjórnmálanna, hann gefi ekki upp eigin
afstöðu til þess hvort krónan gagn-
ist þjóðinni til lengri tíma. „En sama
hver gjaldmiðillinn er þá þarf að sinna
grundvallarþáttum hagstjórnarinnar,
vinna að auknum stöðugleika, minni
verðbólgu og skýrri sýn á ríkisfjármál-
in. Þetta er jafngilt hvort sem gjaldmið-
illinn er króna, evra, dollar eða norsk
króna. Skrefin sem stíga þarf næstu sex
mánuði eru þau sömu.“
Svein Harald segist vitanlega munu
taka þátt í umræðum um hvernig best
verði komið á langtímastöðugleika hér
á landi, en nú sinni hann þeim verkefn-
um sem mest séu aðkallandi.
Svein Harald Øygard telur að með
falli Straums og svo SPRON og Spari-
sjóðabankans um síðustu helgi séu
komnar fram að mestu þær sviptingar
sem vænta megi meðal íslenskra fjár-
málafyrirtækja.
„Áherslan er nú á enduruppbyggingu
fjármálafyrirtækja,“ segir hann. Staðan
hafi hins vegar fyrir margt löngu verið
orðin alvarleg hjá fyrirtækjunum sem
tekin voru yfir um síðustu helgi. „Eigið
fé SPRON hafði því miður lækkað veru-
lega þegar um páskaleytið í fyrra. Staða
sjóðsins versnaði svo í október og sömu-
leiðis staðan hjá Sparisjóðabankan-
um, sem hafði átt í vandræðum síðan
þá. Bæði fyrirtækin hafi í að minnsta
kosti hálft ár búið við óviðunandi eigin-
fjárstöðu. Síðan hafi lausafjárgrunnur
þeirra veikst þrátt fyrir viðleitni Seðla-
bankans til að koma þar til aðstoðar.“
Fundaði með Ingimundi
Svein Harald segir Seðlabankann hafa
verið kominn í mjög þrönga stöðu og
honum hafi í raun ekki verið fært að
veita lausu fé til fyrirtækja sem skorti
nauðsynlegan eiginfjárgrunn. „Það er
leitt að svona skyldi þurfa að fara og við
teygðum okkur mjög langt og höfum
átt í margháttuðum viðræðum við bæði
stjórnendur þessara fyrirtækja og
kröfuhafa þeirra. Allir hefðu viljað sjá
aðra niðurstöðu, en þegar upp er staðið
þá reiða bankar sig á eiginfjárgrunninn
og lausafé.“
Hvað varði lærdóm sem draga megi
af mistökum fortíðar, þá kveðst Svein
Harald ekki vilja tjá sig um hvar menn
kunni að hafa farið út af sporinu í hag-
stjórninni. „En Seðlabankinn verður
eftir megni innan handar þeim nefnd-
um sem rannsaka þessi mál og ég geri
ráð fyrir að þau geri grein fyrir niður-
stöðum sínum.“ Aukinheldur segir Svein
Harald að vegna allra þeirra verkefna
sem nú eigi hug hans allan eigi hann
erfitt með að kafa hér djúpt í hagsög-
una, þótt vitanlega kynni hann sér málin
að því marki sem nauðsynlegt sé. „Ein-
hvern tímann þarf ég að sofa,“ segir
hann og hlær.
Svein Harald upplýsir þó að sama
dag og hann tók til starfa hafi hann
sest niður með Ingimundi Friðrikssyni,
einum þriggja bankastjóra Seðlabank-
ans og fengið hjá honum yfirlit um stöð-
una sem hann væri að taka við. „Við
áttum góðar viðræður,“ segir hann.
Þá kveðst Svein Harald nokkrar
áhyggjur hafa af efnahagsþróun ann-
ars staðar í heiminum. „Mikil vafi leik-
ur á hversu hagfelld þróunin verður í
alþjóðahagkerfinu og aukin vandræði
þar gera stöðuna ekkert auðveldari hér
á landi. En um leið tel ég áhrifin á Ísland
ekki svo afgerandi. Viðbrögðin við þró-
uninni ytra eru hlutir sem hér þarf að
gera hvort eð er. Batinn hér kemur til
með að byggja á mikilli vinnu Íslend-
inga. Mæta þarf áskorununum hér inn-
anlands, sama hvað gerist annars staðar
í heiminum. Ég hafði orð á þessu á fyrsta
degi í embætti. Ísland er nú á alþjóða-
vettvangi táknmynd dýptar alþjóðlegu
fjármálakrísunnar. Ég ber hins vegar
líka í brjósti þá von að Ísland geti á ný
líka orðið táknmynd endurreisnar og
vaxtar. “
Mín upp-
lifun er að
ráðlegging-
ar AGS séu
gefnar með
hagsmuni ís-
lensku þjóð-
arinnar að
leiðarljósi.