Fréttablaðið - 28.03.2009, Qupperneq 49
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Brynhildur, hvað ætlum við að
gera um helgina?“ kallar leikar-
inn og leikstjórinn Atli Rafn Sig-
urðarson til konu sinnar þegar
hann er inntur eftir helgarplön-
um sínum af blaðamanni. Eftir
að hafa leitað ráða hjá Brynhildi
sinni svarar Atli Rafn því til að
laugardagurinn verði heldur
rólegur hjá sér. „Um helgar leyfi
ég mér að sofa örlítið út en síðan
geri ég allt eins ráð fyrir því að
skella mér í útreiðatúr,“ segir
Atli Rafn sem geymir gæðinga
sína, þá Gjafar og Jökul, í hest-
húsi í Kópavogi. „Það er virkilega
hressandi að fara í hesthúsið,“
útskýrir Atli Rafn sem deilir hús-
næðinu í Kópavogi með nokkrum
öðrum leikurum. meðal annarra
Jóhanni Sigurðarsyni og Hilmi
Snæ Guðnasyni.
Atli Rafn er góður kokkur að
eigin sögn og stefnir á að elda
eitthvað gott á laugardagskvöld-
ið. „Það er fastur liður nánast á
hverju kvöldi,“ segir Atli Rafn
sem sér að mestu leyti um mat-
reiðslu á heimilinu. Í gríni bend-
ir Atli á að Brynhildur fái varla
að stíga inn í eldhús nema til að
vaska upp.
„Á sunnudaginn fer ég svo
með Brynhildi upp í Borgar-
nes þar sem sýningar á Brák
standa enn yfir,“ segir Atli Rafn
en hann hefur ekki tölu á öllum
þeim skiptum sem hann hefur
séð Brák. „En það er alltaf jafn
spennandi,“ segir hann glaðlega.
Atli Rafn undirbýr nú næsta
verkefni sitt sem verður að leik-
stýra verkinu Fridu. „Leikritið
fjallar um Fridu Kahlo og verður
frumsýnt á stóra sviði Þjóðleik-
hússins í september,“ segir hann
en Brynhildur Guðjónsdóttir,
kona hans, leikur aðalhlutverk-
ið. Alls verða leikararnir tíu auk
tveggja hljóðfæraleikara.
„Nú erum við einmitt að hefj-
ast handa við að safna mexíkósk-
um höfuðfötum og ponsjoum sem
við ætlum að nota í sýningunni,“
segir Atli Rafn en verður mjög
dulur þegar hann er inntur eftir
því í hvað flíkurnar verði not-
aðar. „Það á eftir að koma í ljós.
Við þurfum alveg helling og þetta
má vera í hvaða ástandi sem er,“
segir Atli en þeir sem luma á slík-
um höttum og skikkjum geta haft
samband við Kristrúnu Hauks-
dóttur í Þjóðleikhúsinu með því
að senda póst á kristrun@leik-
husid.is. solveig@frettabladid.is
Auglýsir eftir mexíkóskum
sombrerohöttum og slám
Leikarinn Atli Rafn Sigurðarson ætlar sér að slaka á um helgina. Fara á hestbak, elda góðan mat og
fylgjast svo, líkt og svo oft áður, með konu sinni leika í uppsetningu á Brák á sunnudaginn.
SUNNUDAGAR ERU BARNADAGAR í aðalsafni Borg-
arbókasafnsins. Á morgun, 29. mars, klukkan þrjú mun Sigrún
Jóna Kristjánsdóttir, barnabókavörður í Sólheimasafni, vera með
brúðusögustund. Brúðurnar hjálpa henni að segja frá Sokknum
sem týndist. Einar Áskell, Greppikló, Elmar og fleiri þekktar sögu-
persónur koma við sögu.
Atli Rafn Sigurðarson, leikari og leikstjóri, leitar nú eftir mexíkóskum höttum fyrir uppsetningu á leikritinu Frida. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
– helgarferð
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 nætur
á Hotel Platanus *** með morgunmat.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
HVEITIKÍM
Náttúruleg vítamín- og próteinbomba
Kynning í dag í Fjarðarkaupum,
Hagkaup Skeifu og Smáralind,
Krónu Granda og Yggdrasil.
Náttúruleg fjölnæring
27% prótein
0% kólesteról
Trefjaríkt
Ríkt af andoxunarefnum
Talið bæta þol og styrkja starfsemi
hjarta- og æðakerfis
Frábært fyrir uppbyggingu vöðva
Fæst í eftirfarandi verslunum:
Uppskriftabæklingur fylgir með í verslunum
" Sjá nánari upplýsingar um hveitikím og uppskriftir á www.yggdrasill.is"
VEÓ