Fréttablaðið - 28.03.2009, Side 52
28. mars 2009 LAUGARDAGUR4
Kvikmyndasafn Íslands sýnir
mynd Woodys Allen, Crimes and
Misdemeanors, á laugardaginn
klukkan 16.
Kvikmyndasafn Íslands sýnir
eina margbrotnustu mynd Woodys
Allen, Crimes and Misdemeanors, í
dag klukkan 16. Þetta er ein þeirra
mynda sem vekur nýjar spurning-
ar um mannlífið og tilveruna við
hvert áhorf.
Í Crimes and Misdemeanors
fylgjast áhorfendur með persónum
tveggja ólíkra sagna sem tengjast
ekki við fyrstu sýn. Í annarri sög-
unni glímir augnlæknirinn Judah
Rosenthal við afleiðingar fram-
hjáhalds en ástkonan, Dolores,
hótar að segja eiginkonunni frá
öllu saman. Spennan stigmagnast
uns Judah grípur til örþrifaráða og
atburðarásin fer að kallast á við
skáldsögu Dostojevskís, Glæpur
og refsing. Í hinni sögunni kynn-
ast áhorfendur heimildarmynda-
gerðarmanninum Cliff Stern sem
á erfitt með að hafa ofan í sig og
á þrátt fyrir listræna hæfileika.
Hann lendir í siðferðilegri spennu
þegar honum býðst að gera mynd
um mág sinn sem er kvikmynda-
framleiðandi og stendur fyrir allt
sem Cliff fyrirlítur. Crimes and
Misdemeanors er allt í senn ást-
arsaga, spennumynd og gaman-
mynd. Hennar má einnig njóta
vegna myndatökunnar en hún er í
höndum Sven Nykvist sem starfaði
með Ingmar Bergman að flestum
þekktustu myndum hans.
Sýningin er í Bæjarbíói, Strand-
götu 6, Hafnarfirði. Miðasala er
opnuð um hálftíma fyrir sýningu
og er miðaverð 500 krónur. - hs Crimes and Misdemeanors er allt í senn ástarsaga, spennumynd og gamanmynd.
Persónur tveggja ólíkra sagna
Spíral-dansflokkurinn, sem er
skipaður háskólastúdentum,
sýnir verkið The opening eftir
Andreas Constantinou í Sundhöll
Reykjavíkur á morgun en verk-
ið var frumsýnt í gær. Um er að
ræða dansleikhúsverk þar sem
tónlist, dans og gjörningur mæt-
ast. Verkið teygir anga sína út
um alla Sundhöll og er því ætlað
að skapa magnað andrúmsloft,
dulúð, töfra og brjálæði.
„Verkið byggist á opnun Sund-
hallarinnar árið 1937 og því and-
rúmslofti sem ríkti á þeim tíma.
Í búningsklefunum á neðri hæð-
inni verður brugðið upp mynd af
aðstæðum og aðbúnaði geðsjúkra
á þessum árum en í sundlaug-
inni sjálfri verður allt annað upp
á teningnum. Þar verður haldið
brjálað opnunarpartí og munu
prúðbúnir dansarar líða um
vatnið í öllum skrúðanum. Gest-
ir átta sig þó um síðir á myrk-
um undirtón. Þeir fá frelsi til
þess að reika um Sundhöllina og
fylgja hvaða þema eða flytjanda
sem er,“ segir Unnur Gísladóttir,
framkvæmdastjóri dansflokks-
ins, og dregur enga dul á það að
Sundhöllin sjálf sé í aðalhlut-
verki enda um magnaða bygg-
ingu að ræða.
Spíral-dansflokkinn skipa tíu
konur sem allar eiga það sam-
eiginlegt að vera í akademísku
háskólanámi. „Okkur fannst
þó þurfa karlmenn í þetta verk
og fengum þrjá stráka og tvær
stelpur úr Stúdentaleikhúsinu til
liðs við okkur.“ Þessum skapandi
dansflokki er ætlað að efla menn-
ingarlíf stúdenta og stuðla að list-
sköpun ungra dansara og eru inn-
tökupróf á hverju ári.
Dulúðlegt dansleikhús í vatni
The Opening með Spíral-dansflokknum verður sýnt í Sundhöll Reykjavíkur á morgun. Verkið byggist á opnun Sundhallarinnar árið 1937 og
því andrúmslofti sem ríkti á þeim tíma. Það teygir anga sína um alla Sundhöllina. Niður í búningsklefa og upp á hæsta stökkbrettið.
Í sundlauginni verður haldið opnunarpartý í anda fjórða áratugarins en í búningsklefunum verður öllu
drungalegri stemning. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Prúðbúnir dansarar munu líða um í vatninu ásamt því að dreifa sér um alla króka og
kima Sundhallarinnar.
Unnur Gísladóttir framkvæmdastjóri Spíral-dansflokksins segir
Sundhöllina sjálfa í aðalhlutverki enda um magnaða byggingu
að ræða.
Fjölbreytt úrval af skírnargjöfum:
Baukar, myndaalbúm, hnífapara
sett, armbönd og hálsmen
www.tskoli.is
Alþjóðleg keppni hársnyrtiskóla fer fram í Tækniskólanum á
Skólavörðuholti laugardaginn kl. 13.00. Keppt er í 3 tegundum
uppgreiðslu auk tískulínu herra. 6 íslenskir keppendur sem koma
frá Hársnyrtiskólanum, undirskóla Tækniskólans.
Komið og fylgist með spennandi keppni í spennandi skóla.
Keppni hársnyrtiskóla