Fréttablaðið - 28.03.2009, Page 58

Fréttablaðið - 28.03.2009, Page 58
SORPA bs., Gufunesi, 112 Reykjavík, auglýsir eftir þátttakendum í forval fyrir lokað útboð: Flutningur á úrgangi og tréflís ásamt vélavinnu í móttökustöð SORPU. Í framhaldi af forvali verður lokað útboð. Helstu verkþættir eru eftir farandi: a) Flutningur á bögguðum úrgangi frá móttökustöð í Gufunesi til urðunar í Álfsnesi b) Flutningur á trékurli frá móttökustöð í Gufunesi til notkunar á Grundartanga c) Flutningur á trékurli frá móttökustöð á lager í Álfsnesi d) Flutningur á flokkuðum úrgangi í gámum frá móttökustöð til ýmissa aðila e) Móttaka og vélflokkun á úrgangi f) Mokstur í forbrjót fyrir timbur g) Mokstur í og frá tætara fyrir grófan úrgang h) Mokstur á ónýtum böggum upp á sílóbönd i) Færslur og skipti á gámum í og við móttökustöð j) Vélavinna við öll þrif innan- og utanhúss þegar þurfa þykir og ekki er skilgreind sem verkhluti annarra verktaka á svæðinu k) Vélavinna við hreinsun á sandsíum og mokstur á flutningatæki l) Vélavinna við umhirðu og ámokstur vegna millilosunar á sandi úr holræsabílum m) Snjómokstur á athafnasvæði verkkaupa í Gufunesi n) Móttaka á bögguðu endurvinnsluefni frá böggunarvélum og hleðsla í flutningsgáma og/eða á millilager innanhúss eða á plan við móttökustöð o) Önnur tilfallandi vélavinna á afgreiðslutíma móttökustöðvarinnar Helstu magntölur eru miðaðar við árið 2008 og eru eftir farandi: a) Móttekið magn af úrgangi 115.000 tonn á ári b) Baggaður úrgangur flutt til urðunar í Álfsnesi 76.000 tonn á ári c) Trékurl flutt á Grundartanga 16.000 tonn á ári d) Pappírsúrgangur, baggar fluttir út í gámum 9.000 tonn á ári e) Flutningur á flokkuðum úrgangi í gámum 2.000 tonn á ári Samningstíminn verður um 5 ár, frá og með 1. apríl 2010. SORPA vill stuðla að notkun umhverfisvænna orkugjafa. Því er gerð krafa um að krókbíll til flutninga á gámum nýti metan eða metan/olíu blöndu. Jafnframt verður það metið bjóðanda til tekna bjóði hann vélar sem nýta vistvæna orkugjafa. Forval verður auglýst á evrópska efnahagssvæðinu. Forvalsgögn fást afhent á bílavog SORPU, Gufunesi frá og með 30. mars 2009 gegn 10.000 króna óafturkræfu gjaldi. Opnun verður 6. maí 2009, kl. 11:00 á skrifstofu SORPU bs í Gufunesi. sorpa.is OPINN FUNDUR Aðalskipulagstillaga og ferðakort kynnt í Hvalfjarðarsveit Vinna við nýtt aðalskipulag sameinaðs sveitarfélags hefur staðið yfi r síðastliðið eitt og hálft ár. Nú liggja fyrir drög aðalskipu- lagstillögu og umhverfi sskýrslu hennar. Af því tilefni boðar sveitarfélagið til opins fundar til að kynna íbúum og öðrum hagsmunaaðilium aðalskipulagstillögu og umhverfi sskýrslu hennar. Ráðgjafar sveitarfélagsins við gerð aðalskipulags eru frá Landlínum í Borgarnesi og munu þeir sjá um kynninguna. Tillagan, þ.e.a.s. greinargerð, sveitarfélagsuppdráttur og aðrir þemauppdrættir eru aðgengilegir á heimsíðu Landlína eða á www.landlinur.is. Uppdrættir verða hengdir upp á fundarstað. Húsið opnar kl. 19:30 þannig að þeir sem vilja kynna sér innihald þeirra eru hvattir til að mæta tímanlega. Sveitarfélögin Skorradalshreppur, Kjósahreppur, Akraneskaupsstaður og Hvalfjarðarsveit hafa staðið að gerð sameiginlegs ferðakorts. Reynir Ingibjartsson hjá Fífi lbrekku hefur stýrt þeirri vinnu og mun hann gera grein fyrir kortinu og notagildi þess. Drög að kortinu verður til sýnis. Kaffi veitingar, allir velkomnir ! Fundurinn verður haldinn að félagsheimilinu Hlöðum, miðviku- daginn 1. apríl 2009, klukkan 20:00. Sveitarstjóri Laufey Jóhannsdóttir Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar auglýsir eftir styrkumsóknum fyrir árið 2009 Reykjavíkurborg er aðili að sjóði höfuðstaða Færeyja, Grænlands og Íslands. Sjóðurinn hefur að markmiði að efl a skilning og sam- starf, m.a. á sviði menningarmála, milli þessara borga íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast samskiptum milli bæjanna og efl a tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta. Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði. Umsókn skal beint til: Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar b.t. skrifstofu borgarstjórnar Ráðhúsi Reykjavíkur 101 Reykjavík Umsóknir berist eigi síðar en föstudaginn 8. maí n.k. og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu. Sérstök umsóknareyðublöð fást í upplýsingum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Rey- kjavíkur, s: (354) 411 4702. Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í júní n.k. Styrkir til forvarnaverkefna í Reykjavík Velferðarsvið Reykjavíkurborgar veitir styrki úr forvarnasjóði Reykjavíkurborgar til forvarnaverkefna. Markmiðið með styrkjunum er að styrkja samstarfs- verkefni á sviði forvarna til samræmis við forvarna- stefnu Reykjavíkurborgar. Upplýsingar um forvarna- stefnuna má fi nna á síðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is. Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2009. Umsóknum skal skila inn á sérstökum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is. Meðferð umsókna fylgir almennum reglum um styrkjaúthlutanir Reykjavíkurborgar, sjá á www.reykjavik.is. Allar umsóknir verða lagðar fyrir samráðshóp um forvarnir í Reykjavík til umsagnar og fyrir velferðarráð Reykjavíkurborgar til samþykktar. ÚTBOÐ Á SKÓLAAKSTRI. Skóla og rekstrarnefnd Laugargerðisskóla auglýsir eftir tilboðum í skólaakstur með nemendur Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi. Um er að ræða 3 akstursleiðir og er áætlaður akstur á dag um 383 km alls. Heimilt er að bjóða í einstakar akstursleiðir. Verkið er boðið út til tveggja ára það er skólaárin 2009-2010 og 2010-2011. Útboðsgögn fást rafrænt gegn 3,000 kr. greiðslu frá og með 2 apríl 2009 og skal hafa samband við Sigrúnu Ólafsdóttur í síma 8628422 eða á netfangið sigolafs@ismennt.is Tilboðum skal skilað fyrir kl 18.00 þriðjudaginn 21.apríl 2009 í Laugargerðisskóla þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra sem þess óska. Fh. Skóla og rekstrarnefndar Laugargerðisskóla. Sigrún Ólafsdóttir Útboð Húsfélagið Engihjalli 17 hyggs ráðast í viðgerðir og málun á suðurgafl i húsins. Áhugasamir vinsamlegast sendið inn upplýsingar í netfangið vael@btnet.is fyrir 7.5.2009 Námskeið Útboð Auglýsingasími – Mest lesið Styrkir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.