Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 73
BLS. 3 I+ Bókaðu á www.icelandair.is
Reykjavík – Seattle
frá 36.900 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum.
Flogið er 4 sinnum í viku.
Margt sem minnir á heimaslóðir
Seattle og umgjörðin kringum borgina er ef til
vill sá staður í Bandaríkjunum sem minnir
Íslendinga mest á heimalandið. Hér eru há fjöll
allt um kring og víðáttumikið Pugetsund minnir á
úthafið sjálft. En ólíkt því sem er heima þá
er landið víða þakið hávöxnum grenitrjám enda
er Washingtonríki oft nefnt „sígræna fylkið“ eða
„The Evergreen State“.
Elliot Bay og Lake Washington
Í Seattle er sjálfsagt að bregða sér í einhverja af
hinum fjölmörgu skoðunarsiglingum sem eru í
boði um sundin og vötnin í borgarlandinu.
Með Harbor Cruise má t.d. sigla um Elliot Bay
sem liggur inn á milli Seattle og Alkistrandar,
strandlengju með göngugötu sem er margar
mílur að lengd. Skoðunarferð um Lake
Washington er einnig vinsæl en þar má skoða
hús ýmissa auðmanna; þeirra frægastur að
sjálfsögðu er Bill Gates hjá Microsoft.
Pike Place Market
Pike Place Market er frægur, gamall markaður í
miðborg Seattle sem allir gestkomandi heim-
sækja. Þar er alltaf líf og fjör og markaðurinn er
ekki síður sóttur af heimamönnum en aðkomu-
fólki. Þar
tíðkast að
fleygja laxi á
milli manna og
bregður
mörgum við að
fá heilan,
stóran lax í
fangið. Meðfram ströndinni fyrir neðan Pike
Place Market eru útiveitingastaðir og skemmti-
legar búðir þar sem seldar eru vörur og listaverk
eftir indíána sem búa í Seattle.
Ballard
Í Ballard liggur skipastiginn sem fyrrum var
nefndur „The Locks“. Þar má sjá laxinn stökkva
og skip „ganga upp stigann“ frá Pugetsundi til
hafnar á vötnunum í borgarlandinu. Ballard er
smábærinn á þessum slóðum þar sem flestir
Norðurlandabúar settust að þegar þeir komu til
Seattle. Þar er safnið Nordic Heritage Museum
(Safnið um norræna menningararfleifð) þar sem
hver Norðurlandaþjóð hefur sitt eigið safn-
herbergi. Þar er einnig rakin saga Vesturfaranna.
Við Íslendingar eigum okkar litla herbergi í NHM
með safnmunum frá Vestur-Íslendingum og
munum sem gefnir hafa verið að heiman.
Nálin
Nálin, The Needle, sem svo er kölluð, er mann-
virki sem var reist í Seattle í tilefni af heimssýn-
ingunni árið 1962. Hún stendur á hæð og er
183 metra há svo að þaðan er mikið útsýni.
Þarna er veitingastaður sem snýst hægt í hring
líkt og Perlan heima. Einnig er hægt er að fara
upp á efsta þilfar til þess að skoða útsýnið.
Seattle Center er svæði, sem einnig varð til fyrir
heimssýninguna, og er ekki ofsögum sagt að
þar megi verja heilum degi í skoðunarferð því
að svo margt er að sjá.
Söfnin
Söfn eru hér úti um allt og má þar nefna
Flugvélasafn Boeing-fyrirtækisins, Jimmy
Hendrix- safnið, listasafnið Seattle Art Museum
og minjasöfn þar sem rakin er saga Seattle.
Sjávardýrasafnið í Seattle er við Pike Place
Market. Hér á undan minntist ég svo á Norræna
safnið, Nordic Heritage Museum, í Ballard.
Menning og næturfjör
Mikið mannlíf er í miðborg Seattle að næturlagi.
Jassbönd er að finna á næstum hverju horni á
litlum veitingastöðum og börum, t.d. á Tula’s
Restaurant and Jazz Club og Jazz Alley.
Smábátaborgin
Íbúar í Seattle eiga ósköpin öll af smábátum og
við vötnin eru margar smábátahafnir. Í ágúst er
haldin hátíð, sem kallast Seafair, og þá er mikið
um að vera. Öllum fleytum, sem flotið geta, er
þá siglt um vötnin í einskonar skrúðsiglingu, alla
vega skreyttum, og blásið í lúðra. Bláu Englarnir
koma og sýna listflug og keppt er á hrað-
skreiðum bátum sem ná ótrúlegum hraða.
Þessi hátíð stendur í nokkra daga og er
hápunktur sumarsins.
Skoðunarferðir
Hjá ferðaskrifstofum og ferðaþjónustufyrirtækj-
um er minnsta mál að panta stuttar skoðunar-
ferðir með ferjum um sundin og vötnin, allt frá
einnar klukkustundar ferðum upp í dagsferðir.
Sem dæmi um slíkar ferðir get ég nefnt ferð til
Tilicum Village, þar sem indíánar bjóða í mat,
ferð til Snoqualmie Falls, þar sem er góður
veitingastaður (hreinlega hangir í berginu), með
góðu útsýni yfir fossinn og fjöllin í kring, og
dagsferð til Mt. Rainier, þessa háa og tignar-
lega fjalls sem er einstaklega svipmikið með
hvítan tind og minnir mig alltaf á Snæfellsjökul.
Smábæir við Pugetsund – Tjaldútilegur
Sundið á milli Seattle og Olympic-fjallgarðsins í
vestri heitir Puget Sound og ferjur ganga frá
Seattle til ótal smábæja við sundið. Það er
skemmtileg dagsferð að taka ferjuna frá Seattle
til Bremerton, aka meðfram ströndinni og koma
við í þessum litlu bæjum, Port Orchard, Port
Angeles og Port Townsend. Ef farið er alla leið
til Whidbey-eyju má aka þaðan á fastalandinu til
baka til Seattle. Ég mæli samt með því að að
gista á litlu hóteli í einhverjum af þessum
smábæjum og upplifa stemminguna á staðnum.
– Freistandi útivistarsvæði eru nálægt borginni
og stutt í græn skóglendi með göngustígum
upp til fjalla. Tilvalið er að bregða sér í tjald-
útilegu því að hér er mikið af skipulögðum tjald-
stæðum með öllum þæginum, grilli, borðum,
stólum og jafnvel sturtum.
Ray’s Boat House
Þetta er minn uppáhaldsstaður. Þarna er
stór verönd svo að hægt er að sitja úti og
horfa á skipin koma inn í skipastigann.
Maturinn er frábær en ef til vill betri í
fiskréttum en steikum.
Salty’s
Við Alkiströnd hinum megin við Elliot Bay.
Þaðan er dásamlegt útsýni yfir miðborg
Seattle, sérstaklega á kvöldin þegar
borgin skartar öllum ljósunum. Er með
dýrustu stöðum hér í Seattle.
Palisades
Við Elliot Bay og mikið útsýni yfir borgina.
Frábær matur en alldýr.
Ivar‘s Salmon House
Góður veitingastaður við Lake Union.
Steikhús
Í Seattle eru margir góðir veitingastaðir
sem sérhæfa sig í ljúffengum, safaríkum
steikum, t.d. Daniel‘s Broiler, við Lake
Union, Outback, Black Angus og
El Goucho.
Veitingastaðir
Flug og gisting í 2 nætur
frá 94.900 kr.
á mann í tvíbýli á
Best Western Executive Inn ***
Innifalið: Flug báðar leiðir,
flugvallarskattar og gisting.
ATTLE Margrét Sölvadóttir, fasteignasali