Fréttablaðið - 28.03.2009, Síða 86
54 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Þennan dag árið
1875 varð gríðar-
legt gos í Öskju
í Ódáðahrauni.
Víða í Ódáða-
hrauni rísa hæðir
og fjöll. Meðal
þeirra fjalla má
nefna Dyngjufjöll,
sem eru megin-
eldstöð og talið
er að eldgos í
þeim hafi verið
tíð allt frá ísald-
arlokum. Fjöllin
mynda eina
öskju eða Öskju í
Ódáðahrauni.
Lítið er vitað um gos í Öskju en hún var nán-
ast óþekkt eld-
stöð þar til eld-
gosið hófst þar
29. mars árið
1875. Gosið var
nefnt Öskjugos
eða Dyngjufjalla-
gos og hafði mikil
áhrif á Austur-
landi. Áhrifin voru
í raun slík að stór
hópur fólks af
Austfjörðum flutti
til Vesturheims
eftir gosið.
Askja hefur
nokkrum sinnum
látið á sér kræla á þessari öld en síðasta gosið
var árið 1961.
ÞETTA GERÐIST: 28 MARS ÁRIÐ 1875
Gríðarlegt gos í Öskju
VIRGINIA WOOLF LÉST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1941.
„Megnið af mannkynssög-
unni hefur konan verið
nafnlaus.“
Breski rithöfundurinn Virgina
Woolf var í hópi áhrifamestu
rithöfunda 20. aldar.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
systur okkar og mágkonu,
Sigríðar Guðbjörnsdóttur
Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ,
áður til heimilis að Reynimel 92.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlíðarbæjar, L1
Landakoti og Hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar fyrir
góða umönnun.
Gyða Guðbjörnsdóttir Stefán Björnsson
Sigurlaug Guðbjörnsdóttir.
Sími: 525 9930
hotelsaga@hotelsaga.is
www.hotelsaga.is
Hótel Saga annast erfidr ykkjur af
virðingu og alúð. Fágað umhverfi,
góðar veitingar og styrk þjónusta.
Erfidrykkjur af alúð
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
90 ára afmæli
Kristján Helgi
Guðmundsson
frá Bílduhóli á Skógarströnd, bóndi á
Minna-Núpi í Gnúpverjahreppi, verður
90 ára þriðjudaginn 31. mars.
Hann verður að heiman.
80 ára afmæli
Þann 29. mars verður
Olgeir Olgeirsson
vélstjóri áttræður.
Í tilefni af því þætti honum vænt um
að vinir og ætting jar samgleddust
með honum laugardaginn 28. mars
milli kl. 16 og 18 í sal Sjálfstæðis-
manna, Álfabakka 14 á 3. hæð.
Byltingamenn vísindanna er yfir-
skrift á fyrirlestraröð á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki. Í dag mun
Guðmundur Eggertsson, prófessor í
líffræði, gera framlagi þeirra James
D. Watson og Francis Crick skil en
þeir settu fram líkan af DNA-kjarn-
sýrunni árið 1953.
„Í fyrirlestrinum verður fyrst rak-
inn aðdragandi þess að þeir Watson
og Crick settu fram DNA-líkanið.
Böndin höfðu þá borist að DNA sem
erfðaefni lífvera eftir að prótín höfðu
lengi verið talin líklegri til að gegna
því hlutverki. Hvort tveggja finnst í
litningum og menn vissu að litningar
báru genin. Hins vegar var óljóst með
öllu hvernig bæði byggingu og starf-
semi DNA væri háttað. Líkan Watsons
og Cricks lyfti hulunni af byggingu
DNA-sameindarinnar og gaf sterkar
vísbendingar um starfsemi hennar,“
segir Guðmundur.
Þeir félagar höfðu einbeitt sér að
DNA-sameindinni um tveggja ára
skeið en Guðmundur segir athygl-
isvert að þeir gerðu engar tilraunir
sjálfir heldur nýttu sér þær upplýs-
ingar sem voru fyrir hendi. „Aðalat-
riðið er að þeir komu fram með líkan
sem var mjög sannfærandi. Það var
svo fallegt að margir sögðu að þess
vegna hlyti það að vera rétt en það var
ekki að fullu sannað þegar þeir settu
það fram.“
Líkanið opnaði dyr fyrir margvís-
legar rannsóknir á starfsemi frum-
unnar. „Þó að bygging sameindarinn-
ar væri ljós tók við að skýra hvern-
ig erfðaefnið gegndi hlutverki sínu. Í
ljós kom að röð eininga í DNA-sam-
eindinni ákvarðar röð eininga í prót-
ín-sameindum sem eru helstu starfs-
sameindir frumunnar. Samsvörunin á
milli þessara raða er kallað erfðatákn-
málið,“ segir Guðmundur.
Síðar hefur tækninni fleytt fram
og fundu menn aðferðir til að fást við
DNA með erfða- eða líftækni. „Nú er
hægt að raðgreina erfðaefni manns
á nokkrum dögum. Eins geta menn
rannsakað DNA úr löngu látnu fólki
og jafnvel löngu útdauðum tegundum.
Þegar líkanið var sett fram á sínum
tíma dreymdi fáa um að nokkurn tím-
ann yrði hægt að raðgreina erfðaefni
tegunda,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir merkilegt hvað
erfðafræðin var komin langt í að skil-
greina starfsemi gena án þess að vita
úr hverju þau voru gerð áður en upp-
götvun Watsons og Cricks var kunn-
gjörð. „Erfðafræðingar voru búnir
að rannsaka gen í langan tíma og
vissu hvernig þau erfðust og stjórn-
uðu erfðaeiginleikum lífvera. Þeir
vissu bara ekki úr hverju þau voru eða
hvernig þau störfuðu. Þeirra framlagi
var því ekki kollvarpað með uppgötv-
un Watsons og Cricks heldur var hún
nauðsynleg viðbót.“ Oft er talað um að
bylting hafi orðið í líffræðinni þegar
líkanið var sett fram og mun Guð-
mundur staldra við þá fullyrðingu.
Fyrirlesturinn fer fram í sal tvö í
Háskólabíói klukkan eitt í dag. Síð-
asti fyrirlesturinn í fyrirlestraröðinni
verður svo laugardaginn 4. apríl en þá
fjallar Eyja Margrét Brynjarsdóttir
heimspekingur um Thomas Kuhn og
vísindabyltingar almennt.
vera@frettabladid.is
GUÐMUNDUR EGGERTSSON: FJALLAR UM DNA-LÍKAN WATSONS OG CRICKS
Fáa óraði fyrir þeim ótal
möguleikum sem opnuðust
MIKILVÆG UPPGÖTVUN Guðmundur segir fáa hafa dreymt um að nokkurn tímann yrði hægt
að raðgreina erfðaefni tegunda er DNA-líkanið var sett fram um miðja 20. öld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MERKISATBURÐIR
1797 Einkaleyfi fæst fyrir fyrstu
þvottavélinni í Bandaríkj-
unum.
1881 Tveir menn ganga á hafís
alla leiðina frá Siglufirði til
Akureyrar.
1909 Safnahúsið við Hverfis-
götu (sem nú heitir Þjóð-
menningarhúsið) er vígt. Í
upphafi hýsti húsið Forn-
gripasafnið, Landsbóka-
safnið, Landsskjalasafnið
og Náttúrugripasafnið.
1930 Nöfnum tyrknesku borg-
anna Konstantínópel og
Angóra er breytt í Istanbúl
og Ankara.
1986 Sex þúsund útvarpsstöðv-
ar um allan heim spila
lagið We are the world
samtímis til styrktar að-
gerðum gegn hungurs-
neyð í Afríku.
AFMÆLISBÖRN
MAGNÚS
SÆMUNDS-
SON, fyrrver-
andi oddviti
og hrepps-
stjóri í Kjós, er
75 ára.
HARPA
ARNARDÓTTIR
leikkona er 45
ára.
ÁSTA ARNAR-
DÓTTIR
jógakennari er
45 ára.
BIRGITTA
JÓNSDÓTT-
IR KLASEN
náttúrulæknir
er 57 ára.