Fréttablaðið - 28.03.2009, Qupperneq 87
LAUGARDAGUR 28. mars 2009 55
„Mér hefur alltaf þótt mjög
vænt um nafnið. Ég var skírð
í höfuðið á móður minni sem
lést áður en ég var skírð, eða
þegar ég var um eins árs,“ segir
Bogey Ragnheiður Jónsdótt-
ir sjúkraliði, en aðeins ellefu
kvenmenn heita þessu nafni
samkvæmt þjóðskrá, en líklega
er meirihluti kvennanna skyldur
Bogeyju, því hún á bæði frænk-
ur og tvö barnabörn sem heita
þessu nafni.
Að sögn Bogeyjar var móðir
hennar með þeim fyrstu sem
var gefið þetta nafn. „Móðir mín
var skírð í höfuðið á hjónum
sem amma mín og afi unnu hjá
í Hringsdal fyrir vestan. Maður-
inn hét Bogi og konan Ragn-
heiður. Foreldrar mínir ákváðu
að bæta ey fyrir aftan bog til
að breyta því í kvenmanns-
nafn. Mér hefur fundist á þeim
sögum sem ég hef heyrt að
þetta hafi verið eitthvað sem
þau fundu upp hjá sjálfum sér.
Þó getur vel verið að nafnið hafi
þekkst áður.“
Hún segir marga hvá þegar
þeir heyra nafnið fyrst og þurfi
oft að fá að heyra það aftur.
„Sumir halda í fyrstu að það sé
jafnvel útlenskt en aðrir vilja
bæta í það aukastöfum eins og
Borgey.“
NAFNIÐ MITT: BOGEY RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR
Þykir vænt um nafnið
ÁNÆGÐ Bogey Ragnheiður Jónsdóttir var skírð í höfuðið á móður
sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þökkum auðsýnda samúð og hlýju vegna
fráfalls ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Ernu Jónsdóttur
Pósthússtræti 3, Keflavík,
sem lést 2. mars sl. Sérstakar þakkir fá starfsfólk
D-álmu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og
sr. Sigfús B. Ingvason.
Kristján Valtýsson
Valtýr Kristjánsson Helga Lúthersdóttir
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir Kristján Árni Jakobsson
Ólafur Már Kristjánsson Berglind Helga
Matthíasdóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Halldór Viðar Pétursson
bryti, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður til
heimilis að Gullsmára 8, Kópavogi,
lést laugardaginn 21. mars. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju þriðjudaginn 31. mars kl. 15.00.
Vilhjálmur Örn Halldórsson Svanfríður Ásgeirsdóttir
Kolbrún Halldórsdóttir Ágúst Pétursson
Elín Huld Halldórsdóttir Gunnar Theodór Þorsteinsson
Sigrún Halla Halldórsdóttir
Pétur Már Halldórsson Sigurlína Margrét
Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Ellert Erlendsson
Höfðabraut 3, Akranesi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 20. mars.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn
2. apríl kl. 14.00.
Áslaug Valdimarsdóttir
Lilja Ellertsdóttir Gunnar Þór Garðarsson
Jón Ellert Guðnason Arnþrúður Kristjánsdóttir
Áslaug Kristín Guðnadóttir
Gunnar Þór Gunnarsson Eva Lind Matthíasdóttir
og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristín Pétursdóttir
Hraunbæ 103, Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn
21. mars, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í
Reykjavík þriðjudaginn 31. mars kl. 13.00.
Vigdís Kjartansdóttir Þorvarður Þórðarson
Pétur Sævar Kjartansson Ingibjörg Hrönn Sveinsdóttir
Ólafur Marel Kjartansson Guðný Védís Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför elskulegrar,
Huldu Einarsdóttur
frá Eyrarlandi, Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalarheimilisins
Kjarnalundar fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda,
Einar Benediktsson.
Okkar ástkæri sonur, bróðir, unnusti og
vinur,
Kristinn Guðbjartsson
Flétturima 33, Grafarvogi,
lést á heimili sínu laugardaginn 21. mars. Útförin fer
fram í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 2. apríl kl.
13.00.
María Baldursdóttir Guðbjartur J. Sigurðsson.
Grétar Örn Valdimarsson, Páll Valdimarsson,
Vilhjálmur Valdimarsson, Margrét Valdimarsdóttir,
María Ósk Guðbjartsdóttir, Alexander Aron Guðbjartsson,
Íris Ísberg.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórdís Hansen
Mosabarði 6, Hafnarfirði,
lést 22. mars á Hrafnistu í Hafnarfirði. Sálumessa
verður sungin frá St. Jósefskirkju í Hafnarfirði
þriðjudaginn 31. mars kl. 13.00.
Ólafur Árni Torfason Helena Högnadóttir
Jón Marías Torfason Viktoría Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Árni Lárusson
Lindarsíðu 4, Akureyri,
áður Hvammi, Dalvík,
lést á Kjarnalundi Akureyri fimmtudaginn 26. mars.
Jarðarför auglýst síðar.
Jóhann Páll Árnason María Jansdóttir
Guðmundur Árnason Snjólaug Gestsdóttir
Óskar Árnason Elísabet Hallgrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
Guðmundar Sigurjóns
Finnssonar
Huldugili 9, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins
Hornbrekku, Ólafsfirði.
Lilja Sigríður Guðmundsdóttir Baldur Snævarr
Tómasson
Steinunn Oddný Guðmundsdóttir Björgvin Sveinn Jónsson
Guðmundur Finnur Guðmundsson Rósa Jennadóttir
Kristín Björk Guðmundsdóttir Guðmundur
Jóhannesson
Jón Birgir Guðmundsson Þórunn Guðlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir og amma,
Soffía Jónsdóttir
Álftamýri 37, Reykjavík,
lést föstudaginn 20. mars á Droplaugarstöðum. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Snorri Jónsson
Jón Snorri Snorrason
Tryggvi Jónsson
Hildur Jónsdóttir
Snorri Jónsson.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samhug og vinarþel við
andlát og útför okkar kæra
Ásgríms Pálssonar
frá Engidal, Kleifarási 2, Reykjavík.
Læknunum Birni Einarssyni og Jóni Eyjólfi Jónssyni,
starfsfólki í Maríuhúsi og á deild L-4, Landspítala,
Landakoti, er þökkuð hlýja og virðing við umönnun
og einstök elskusemi. Sr. Sigurði Jónssyni þökkum við
styrkan stuðning.
Guðrún Svava Bjarnadóttir
Bjarni Ásgrímsson Diane Miller
Arís Bjarnadóttir-Miller
Ástkær móðir okkar,
Fjóla Bjarnadóttir
Kirkjuvegi 5, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fimmtudaginn
26.mars. Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Stefán Haraldsson
Guðrún Haraldsdóttir
Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Hákon Þorsteinsson
Lindargötu 57, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum Landakoti deild K2
fimmtudaginn 26. mars. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 3. apríl kl. 13.00. Blóm
og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Umhyggju, Félag lang-
veikra barna, s. 552 4242.
Guðrún R. Ingibergsdóttir Baldvin Einarsson
Sigþór Hákonarson Lilja Bragadóttir
Hákon Hákonarson Kristín Kristjánsdóttir
Margrét Hákonardóttir Eyjólfur Jóhannsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.