Fréttablaðið - 28.03.2009, Page 98

Fréttablaðið - 28.03.2009, Page 98
66 28. mars 2009 LAUGARDAGUR Jamie Lynn Spears, litla syst- ir Britney Spears, hefur ákveðið að fresta fyrirhuguðu brúðkaupi sínu. Samkvæmt heimildum banda- ríska tímaritsins OK höfðu Jamie Lynn, sem er 17 ára og unnusti hennar Casey Aldrige, 18 ára, ákveðið að gifta sig bráðlega, en vilja nú fresta því þar sem þau eru bæði ánægð með samband- ið eins og það er. Mikið hefur gengið á í sambandi Jamie Lynn Spears og Aldrige. Sextán ára varð hún ófrísk eftir hann, og er dóttir þeirra Maddie nú níu mán- aða, en Aldrige var grunaður um að hafa haldið fram hjá henni meiri hlutann af meðgöngunni. Frestar brúð- kaupinu sínu HAMINGJUSÖM Jamie Lynn Spears segist vera ánægð með samband sitt eins og það er og finnst óþarfi að gifta sig strax. NORDICPHOTOS/GETTY Bræðurnir Joel og Ethan Coen ætla að endurgera vestrann True Grit sem kom út árið 1969 með John Wayne í aðalhlutverki. Sú mynd var byggð á samnefndri skáldsögu eftir Charles Portis og ætla Coen-bræður að byggja mynd sína frekar á bókinni en gömlu myndinni. Skáldsagan fjallar um fjórtán ára stúlku sem leitar að morðingjum föður síns í heimkynnum indíána með aðstoð lögreglustjóra og aðstoðarmanns hans. Í upphaflegu myndinni var lögreglustjórinn, sem John Wayne lék, í forgrunni en í Coen- myndinni verður stúlkan í aðal- hlutverki. Coen-bræður í endurgerð FYRSTA LAGIÐ AF SÓLÓPLÖTUNNI Böðvar Reynisson hefur sent frá sér hið hugljúfa lag Lullaby. Í laginu syngur hann til dóttur sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Við heyrðum að það væri vandamál að litlir strákar væru að missa niður klósettsetuna þegar þeir væru að læra að pissa í klósett og út frá því fengum við hugmyndina,“ segir Hermann Ingi Gunnarsson, nemandi í viðskiptaáfanga í Verk- menntaskólanum á Akureyri. Áfanginn, sem er í samstarfi við Junior Achievement, gengur út á að nemendurnir stofni sitt eigið fyrirtæki og ákváðu Hermann og sjö samnemendur hans að hanna og markaðssetja klósettsetudempara í fyrirtæki sínu, Skellur. „Demparinn hægir ferðina á setunni áður en hún lokast alveg og kemur í veg fyrir að hún skelli niður. Seta með dempara alla leið kostar um 50.000 krónur svo okkur datt í hug að koma með ódýra lausn á þessu vandamáli,“ útskýrir Hermann, sem er aðstoðarforstjóri fyrirtækis- ins. Hann segir mikla vinnu fólgna í verkefninu og Guðný Vala Þorsteinsdóttir forstjóri og Elva Dögg Pálsdóttir, gjaldkeri og ritari, taka undir. „Þetta er ekkert sem maður lærir í skólabókum. Þetta reynir mikið á samskiptahæfileika manns því við þurfum sjálf að gera viðskipta áætlun, ráða í stöður og sækja um styrki svo eitthvað sé nefnt. Kennarinn er okkur innan handar, en við fáum að gera mistök og þurfum sjálf að greiða úr flækjum,“ segir Guðný Vala. „Við bjuggum demparana að mestu leyti til sjálf í skólanum, en fengum Vélvík til að fram- leiða 100 stykki því þau þurfa öll að vera eins og Húsasmiðjan styrkti okkur með dempara og skrúfur. Við erum búin að gera sölusamning við Húsasmiðjuna svo í næstu viku mun klósettsetu- demparinn fást í verslunum þeirra í Skútuvogi og á Akureyri,“ segir Hermann. Áhugasamir geta tryggt sér eintak af demparanum í Smára- lind í dag þar sem nemendur kynna vörur sínar milli 11 og 16. - ag Passa typpi íslenskrar æsku Fyrsta smáskífulagið af væntan- legri sólóplötu Böðvars Reynis- sonar, eða Bödda úr Dalton, er komið út. Böðvar samdi lagið, sem nefnist Lullaby, til dóttur sinnar þegar hann var á ferða- lagi um Bandaríkin fyrir tveim- ur árum með hljómsveitinni The Foghorns. „Nú er svo komið að um síðustu helgi eignaðist ég splunkunýjan dreng sem heitir Eyþór og finnst mér því kjörið að henda laginu hennar Emilíu Bjartar út í tilefni af því. Nú geta þau átt þetta lag í sam- einingu um ókomna tíð,“ segir Böðvar. Platan hans kemur út í haust og þar verða áhrifin úr ýmsum áttum, meðal annars frá Sting, U2, Bob Dylan og Pearl Jam. Syngur til dóttur sinnar SNIÐUG HÖNNUN Hermann Ingi Gunnarsson, Guðný Vala Þorsteinsdóttir og Elva Dögg Pálsdóttir hafa unnið hörðum höndum við hönnun klósettsetudemparans ásamt samnemendum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.