Morgunblaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 1
Sannfærandi
túlkun
Barney Clark leikur Oliver Twist
í nýrri kvikmynd | Menning
Tímarit og Atvinna í dag
Tímarit | Utan bókar og innan Fá rósavín uppreisn æru? Rautt
á rauða dreglinum Með listhneigðum samkvæmisljónum Atvinna |
Merki um aukin umsvif Lítur út fyrir að atvinnuleysi aukist
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
HANN heitir Kristján Valdemar Henri John,
nýi prinsinn í Danmörku. Hann var skírður í
gær en Kristján er sonur Friðriks krónprins og
eiginkonu hans, hinnar áströlsku Mary Donald-
son. Kristján Valdemar Henri John, sem einn
góðan veðurdag kann að verða Danakonungur,
er þriggja mánaða gamall, fæddur 15. október í
Kaupmannahöfn.
Um 300 gestir voru við skírnina sem fór fram
í kapellu Kristjánsborgarhallar. Kristján
Valdemar lét vel í sér heyra við athöfnina, að
sögn danskra fjölmiðla, en kannski var það af
völdum kuldakastsins sem nú gerir Dönum lífið
leitt.
Ekki kemur á óvart að nafnið Kristján skyldi
verða fyrir valinu, danskir konungar hafa til
skiptis heitið Friðrik og Kristján sl. fjórar aldir.
Tveir konungar í sögu danska konungdæmisins
hafa heitið Valdemar en Henri, eða Hinrik, er
hins vegar nafn afans, Hinriks drottningar-
manns, sem er franskur að uppruna. John er
hins vegar nafn móðurafans, Johns Donaldson.
Kristján Valdemar Henri John var klæddur í
skírnarkjól sem saumaður var fyrir Kristján X
þegar hann var skírður árið 1870. Meðal gesta
við skírnina í gær voru Hákon krónprins Nor-
egs og kona hans, Metta-Marit, en þau neyddust
til að ferðast með lest til Kaupmannahafnar í
fyrrinótt, þegar ljóst var að ekki yrði flugfært
sökum veðurs.
AP
Danski prinsinn heitir Kristján
NIÐURSTÖÐUR nýlegrar greinar í
vísindatímaritinu Nature kollvarpa
áður viðteknum hugmyndum í
taugavísindum. Fyrsti höfundur
greinarinnar er ungur, íslenskur vís-
indamaður, Ragnhildur Káradóttir.
Hún stundar doktorsnám í taugavís-
indum við University College Lond-
on undir handleiðslu David Attwell.
Niðurstöðurnar gætu hjálpað veru-
lega til við að skilja betur taugasjúk-
dómana MS, heilalömun, mænu-
skaða og heilablóðfall.
Ragnhildur og samstarfsfólk
hennar uppgötvuðu að stoðfrumur
sem mynda taugaslíður reynast hafa
svokallaða NMDA-viðtaka, sem áður
voru taldir vera einungis á tauga-
frumum. Fundur viðtakans hnekkir
viðteknum hug-
myndum í tauga-
vísindum, enda
var talið að hann
væri alls ekki á
stoðfrumunum.
„Þetta er eins
og að hafa unnið
gull í 4 sinnum
100 metra boð-
hlaupi á Ólympíu-
leikunum,“ var
haft eftir samstarfskonu Ragnhild-
ar, Lindu Bergersen, í norskum dag-
blöðum.
Heilinn er spennandi
Ragnhildur vann áður hjá Sjálfs-
björg við meðhöndlun MS-sjúklinga
og segir sig alltaf hafa langað til að
fást eitthvað við sjúkdóminn. „Það er
afar erfitt að finna lækninguna en
mig langaði að reyna að skilja MS
betur. Mig langaði líka að skilja bet-
ur heilann yfirhöfuð. Frá því að ég
man eftir mér hefur mér fundist heil-
inn vera ofsalega spennandi!“
Það sem rennir enn styrkari stoð-
um undir óvænta niðurstöðu Ragn-
hildar og samstarfsfólks hennar er
að vísindamenn í Leicester fundu
viðtakann í sjóntaug músa á sama
tíma og þau fundu hann í stoðfrum-
um í heila og mænu.
Viðbrögðin hafa ekki látið á sér
standa. Tímaritið Science valdi nið-
urstöður hópanna sem uppgötvun
vikunnar í taugavísindum (break-
through of the week) og útdráttur úr
greinunum mun birtast í Nature Re-
view. Þar eru birtar vel valdar yf-
irlitsgreinar í taugavísindum.
Íslenskur vísindamaður höfundur greinar um taugavísindi
Vísindakenningu
var kollvarpað
Ragnhildur
Káradóttir
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
sigridurv@mbl.is
Vísindakona | 18
Kuala Lumpur. AFP. | Íslamskur dómstóll í Malasíu hefur sektað þing-
mann fyrir að reyna að skilja við konu sína með því að senda texta- og
hljóðskilaboð, SMS, í farsíma hennar.
Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að Kamaruddin Ambok,
fimmtíu og tveggja ára gamall þingmaður, ætti að greiða sem sam-
svarar 9.000 krónum í sekt fyrir að tilkynna konu sinni með þessum
hætti að hann væri skilinn við hana. Samkvæmt malasískum lögum
getur karlmaður skilið við konu sína með því að tilkynna henni það
munnlega en það þarf að gerast fyrir íslömskum rétti, að sögn malas-
ískra fjölmiðla.
Fékk ekki að skilja
símleiðis við frúna
IBRAHIM Rugova, leiðtogi Kosovo-Albana
um árabil, lést í gærmorgun að sögn emb-
ættismanna í Pristina. Rugova, sem var
stórreykingamaður,
hafði greinst með
krabbamein í lungum í
september á síðasta ári
og var það banamein
hans. Hann var 61 árs
gamall.
Rugova var helsta
sjálfstæðishetja Kosovo-
Albana en Kosovo-Alb-
anar vonast eftir því að
fá senn fyrirheit um það
frá Sameinuðu þjóðunum að héraðið hljóti
sjálfstæði frá Serbíu. Rugova kom fram á
sjónarsviðið á níunda áratugnum. Hann fór
fyrir friðsamlegu andófi Albana í Kosovo,
sem eru um 90% íbúanna, gegn yfirráðum
Serba en þeir beittu Albana síauknu harð-
ræði á þessum árum.
Árið 1998 sauð upp úr í Kosovo eftir að
yngri og róttækari menn en Rugova höfðu
myndað með sér félagsskap, Frelsisher
Kosovo, og hafið skæruhernað gegn serb-
neskum öryggissveitum. Svöruðu Serbar
með offorsi. Atlantshafsbandalagið (NATO)
skakkaði leikinn 1999 en þúsundir manna
dóu í þeim hildarleik, m.a. vegna voðaað-
gerða sem Serbar efndu til í Kosovo eftir að
NATO hóf loftárásir sínar á Júgóslavíu.
Hefur Kosovo síðan þá verið undir stjórn
Sameinuðu þjóðanna en stefnan hefur verið
sú að heimamenn tækju völdin smám saman
í eigin hendur og Rugova sjálfur var kjörinn
fyrsti forseti Kosovo í kosningum 2002.
Leiðtogi
Kosovo-Alb-
ana látinn
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Ibrahim Rugova
STOFNAÐ 1913 21. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is