Morgunblaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
VÍÐIHVAMMUR 21,
KÓPAVOGI – NEÐRI SÉRHÆÐ
Opið hús á milli kl. 14-16 í dag
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
92,6 FM, 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ ÁSAMT 33 FM BÍLSKÚR.
TILBÚIN TIL AFHENDINGAR 1. FEBRÚAR.
Falleg og vönduð eign á kyrrsælum stað í Kópavogi. Barnaherbergi er stórt með
þremur gluggum og parketi á gólfi. Hjónaherbergi með stórum fataskáp sem
nær upp í loft, nýir sólbekkir í glugga. Eldhús með fallegum innréttingum og búri
inn af. Úr búri er gengið inn í rúmgott, sameiginlegt þvottahús. Falleg stofa með
parketi og nýjum sólbekk, björtum glugga sem snýr út í garð. Gangstétt fyrir
framan hús upphituð. Garður vel gróinn og hirtur. Bílskúr með góðri lofthæð og
innréttingu. Opið hús í dag á milli kl. 14-16, Eva sýnir. V. 24,9 millj.
FYRIR FJÁRFESTA:
Kringlan 7 • 103 Reykjavík • Hús Verslunarinnar • Sími 534 4400
HB FASTEIGNIR
Byggingarlóð í Reykjavík kr. 2 milljarðar
Hótel á Suðurlandi kr. 750 milljónir
Hótel í Reykjavík kr. 500 milljónir
Hótel í Reykjavík kr. 1,2 milljarðar
Byggingarlóð í Grindavík kr. 25 milljónir
Vatnagarðar í Rvk 1.250 fm kr. 140 milljónir
Hótel á Akranesi kr. 108 milljónir
Lækjargata Rvk. útleiga kr. 75 milljónir
Óskum eftir eftirfarandi eignum á Stór-Reykjavíkursvæðinu:
2.000 fm verslunar- og lagerhúsnæði.
1.000 fm verslunar- og lagerhúsnæði.
Góðum skrifstofuhúsnæðum frá 150-1.000 fm í Reykjavík.
Litlum og stórum iðnaðarbilum á Reykjavíkursvæðinu.
Erum með kaupendur að eignum í traustri langtíma-útleigu á
verðbili frá 30-3 þúsund milljónir.
Fjárfestar athugið! Erum með mikið af spennandi fjárfestinga-
kostum hérlendis og erlendis fyrir öfluga og trausta aðila.
Í gegnum tíðina höfum við náð góðum árangri í sölu og
ráðgjöf fyrir okkar viðskiptavini.
Vinsamlegast hafið samband.
Pétur Kristinsson
Lögg. fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Lögg. verðbréfamiðlari
Kristinn R. Kjartansson
sölustjóri atvinnuhúsnæðis,
s. 820 0762
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali
AKURHOLT 14 - Mosfellsbæ
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14-15
Sími 586 8080 • Fax 586 8081
Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali.
233,4 fm einbýlishús á einni hæð, þar af 63,7
fm bílskúr við Akurholt í Mosfellsbæ. Undir
íbúðinni er útgrafinn kjallari, þar er möguleiki
á ca 80 fm rými. Húsið skiptist í 4 svefnher-
bergi, stóra stofu m/arni, eldhús með fallegri
innréttingu og baðherbergi m/hornbaðkari og
sturtu. Alvöru bílskúr með gryfju og miklu
geymsluplássi. Útgrafinn kjallari undir húsinu
gefur mikil tækifæri. Verð 41,8 m.
Guðmundur og Guðrún, s. 566 7619 eða 699 4513
taka á móti gestum í dag á milli kl. 14.00 og 15.00.
Allar nánari upplýsingar gefur Einar Páll Kjærnested, fasteignasali, í síma 899 5159.
DUGGUVOGUR
SKRIFSTOFU- OG LAGERPLÁSS
Mjög gott atvinnuhúsnæði á 2.
hæð (jarðhæð að ofan) með góðu
lagerplassi í ca helmingi húsnæð-
isins og skrifstofu- og sýningarsal-
ur í hinum helmingnum. Skrifstofu-
og sýningarsalurinn er veglega
innréttaður. Góðar innkeyrsluhurð-
ir eru á lagerhlutanum. Húsið var
málað að utan fyrir nokkrum árum.
V. 70,0 m. 5547
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
ÍSLAND er aðili að samningi
um Evrópska Efnahagssvæðið og
hefur meginmál EES samningsins
verið lögtekið á Íslandi. Markmið
samningsins er að
mynda einsleitt Evr-
ópskt efnahagssvæði
og til að ná því mark-
miði felur samstarfið í
sér frjálsa vöru-,
fólks- og fjármagns-
flutninga og þjónustu-
starfsemi (sk.“fjór-
frelsi). Samningsað-
ilar skulu gera allar
viðeigandi ráðstafanir
til að tryggja að stað-
ið verði við þær
skuldbindingar sem
af samningnum leiðir.
EES samningurinn
tekur þó ekki til samræmingar
skattamála. Þrátt fyrir þetta er
ljóst að skattareglur geta falið í
sér takmörkun eða hindrun á
“fjór-frelsinu“ eða falið í sér rík-
isstyrk. Þegar svo háttar til er tal-
ið að íslenskar skattareglur verði
að víkja. Benda má á að EFTA
dómstóllinn hefur tekið fram að
vald EES ríkja til álagningar
skatts komi ekki í veg fyrir að
EES reglum sé beitt (mál E-1/01).
EES reglur hafa að vissu leyti for-
gang umfram landsrétt og líta ber
til fordæma EB dómstóls við túlk-
un EES reglna. Þess má geta að
vegna skyldu Íslands til að aðlaga
íslensk lög að EES rétti hefur
skattalögum verið breytt í nokkr-
um tilvikum.
EFTA dómstóllinn hefur kveðið
upp dóm í skattamáli er snýr að
túlkun EES samningsins sem
kann að hafa fordæmisgildi á Ís-
landi (E-1/04). Málið varðaði
norskt fyrirtæki sem greitt hafði
arð til hluthafa sinna.
Vegna reglna í Noregi
þurftu erlendir hlut-
hafar að greiða 15%
skatt af arðinum í
Noregi en norskir
hluthafar (félög)
greiddu í raun engan
skatt af arðinum.
Dómstóllinn taldi að
EFTA ríki bæri að
nýta skattlagningarétt
sinn til samræmis við
EES rétt og að réttur
EFTA ríkis til að
semja um skattlagn-
ingarrétt í tvískött-
unarsamningi leiddi ekki til þess
að líta mætti framhjá EES rétti.
Dómstóllinn taldi norsku regl-
urnar hafa neikvæð áhrif á hagnað
aðila sem ekki væri heimilisfastur
í Noregi, að reglurnar fældu aðila
frá fjárfestingum í landinu og að
erfiðara væri fyrir norsk félög að
afla fjármagns utan Noregs. Tekið
var fram að mögulegur skattafrá-
dráttur í heimalandi fjárfestis
skipti ekki máli. Norsku reglurnar
voru því taldar hindra frjálst fjár-
magnsflæði sem væri óheimilt
samkvæmt EES samningnum. Í
framhaldi þessa máls var reglum
breytt í Noregi. Ef litið er til Ís-
lands kemur í ljós að sambæri-
legar reglur gilda á Íslandi um
skattlagningu arðs sem greiddur
er frá íslenskum félögum. Erlend-
ur hluthafi sætir 15% skatti af
arði á Íslandi en innlendur hlut-
hafi (félag) greiðir ekki skatt af
arðinum. Íslenska ríkið hefur ekki
breytt skattalögum til samræmis
við fyrrgreindan dóm.
Í framkvæmd hafa skattaðilar
viljað færa söluhagnað eigna á Ís-
landi á móti keyptum eignum er-
lendis, en slíkt er heimilt ef eign
er keypt á Íslandi. Yfirskattanefnd
hefur ekki fallist á slík sjónarmið
og hefur m.a. talið að þessi túlkun
skattalaga stæðist fjórfrelsisreglur
EES (úrsk. 300/2002 og 300/2005).
Framkvæmdastjórn EB hefur tal-
ið það vera brot á frjálsum fólks-
og fjármagnsflutningum að gera
að skilyrði endurfjárfestingar að
eign sé í tilteknu EB ríki og að
Hugleiðingar um
áhrif Evrópuréttar á
íslensk skattalög
Kristján Gunnar Valdimarsson
fjallar um skattalög
og evrópurétt ’Sjálfsákvörðunarrétt-ur íslenska ríkisins á
sviði skattamála er
ekki fortakslaus og
evrópuréttur hefur
áhrif á íslenskar
skattareglur, þrátt fyr-
ir að samræming
skattamála sé utan
gildissviðs EES-samn-
ingsins.‘
Kristján Gunnar
Valdimarsson
Fréttir
í tölvupósti