Morgunblaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 61
DAGBÓK
www.kontakt.is
Suðurlandsbraut 4, 7. hæð. • Sími: 414 1200 • www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is
Sérfræðingar þínir í fyrirtækjaviðskiptum.
H
O
R
N
/H
a
u
k
u
r
/
2
0
5
2
er flutt á Laugaveg 56.
Útsala og fjöldi opnunartilboða!
Verið velkomin.
Laugavegi 56
Aðalfundur, ráðstefna
og grísaveisla
Verða haldin að Hótel Örk, Hveragerði, laugard. 4. febrúar.
Ráðstefna hefst kl. 13.00.
Aðalfundur hefst kl. 16.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Grísaveisla hefst kl. 19.30
Vinsamlega pantið miða sem fyrst og ekki seinna en miðvikudaginn
1. febrúar í síma: 895 5584 Guðmundur, 896 2303 Halldór, 893 1813
Sigurjón, 843 1296 Gísli eða 561 1617 Otti.
Nánari dagskrá er hægt að sjá á heimsíðu félagsins www.fhs.is
Athugið: Gestir sem dvalið hafa í húsum félagsmanna á Spáni, eru
hjartanlega velkomnir.
Mætum öll og tökum með okkur gesti og eigum góða stund saman.
Félag hús
eigenda á Spáni
Kjarvalsmynd til sölu
Verkið er vatnslitamynd og hefur verið skoðað af þremur listfræðingum.
Nánast samróma umsögn þeirra: Myndin býr yfir einstökum töfrum.
Friðsæl og falleg. Mikil vinna lögð í verkið.
Óvenju stórt miðað við að vera Kjarvals vatnslitamynd.
Undurfögur stemningsmynd. Máluð kringum 1930. Ófölsuð.
Myndefnið er íslenskt stuðlaberg. Stærð 95x72 cm.
Verð: Tilboð – þó ekki undir 900 þúsund kr.
Upplýsingar gefur Ingibjörg í símum 561 8155 og 893 8155, netfang: ding(@)simnet.is
Jón Stefánsson óskast
Óska eftir að kaupa olíumálverk
eftir Jón Stefánsson
Tilboð sendist á auglýsingadeild Mbl. eða á box@mbl.is
merkt: „JS — 18130“.
Góð leikfimi fyrir karla
sem þurfa að styrkja maga og bak
og um leið að fá góðar teygjur.
Tímarnir eru tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 7.30.
Kennt er í Kramhúsinu, Bergstaðastræti. Uppl. í síma 822 7772.
Leikfimi og teygjur
fyrir
karlmenn
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Þorrablótið verð-
ur föstud. 27. jan. kl. 17. Salurinn opn-
aður kl. 16.30. Kvennakórinn Heklu-
rnar syngur undir stjórn Bjarkar
Jónsd. Óskar Pétursson syngur við
undirleik Jónasar Þóris. Þorvaldur
Halldórs sér um stuðið á ballinu.
Happdrætti og fjöldasöngur. Skráning
í s. 553 2760 fyrir miðvikud. 25. jan.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og
venjulega. Minnum sérstaklega á
Tungubrjóta alla mánudaga kl. 13.30,
félagsvist alla þriðjudaga kl. 14, söng
alla fimmtudaga kl. 14. Skráning er
hafin á myndlistarnámskeið sem
hefst. 31. jan. kl. 9–12. Þorrablótið er
3. feb. Dagskráin send heim sé þess
óskað. Sími 588 9533.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnud. kl. 20. Caprí-tríó
leikur. Fyrirhugað er að námskeið í
framsögn hefjist 7. febr. Leiðbeinandi
Bjarni Ingvarsson. Skráning og uppl. í
s. 588 2111. Skemmtun og kynning á
FEB, verður haldin í félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi miðvikud. 25. jan. kl.
16. Fjölbreytt dagskrá.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Myndskreytt ljóðasýning stendur yfir
í Garðabergi á ljóðum Magnúsar
Hagalínssonar og Sólveigar Öldu Pét-
ursdóttur. Sýning stendur til og með
16. febrúar. Opið er alla virka daga
nema þriðjudaga kl. 12.30–16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13–16
opin myndlistarsýning Sólveigar Egg-
erz, síðasti sýningardagur. Miðvikud.
25. jan. er farið á listsýningar í Gerð-
arsafni í Kópavogi. Lagt af stað frá
Gerðubergi kl. 13.30, allir velkomnir.
Fimmtud. 26. jan. kl. 13.15 ,,Kynslóðir
saman í Breiðholti“, félagsvist í sam-
starfi við Seljaskóla.
Hraunbær 105 | Föstudaginn 27. jan.
verður þorrablót. Húsið opnað kl.
17.30. Þorrahlaðborð hefst kl. 18.
Verð kr. 3000. Skráning í s.
587 2888 og á skrifst. fyrir 25. jan.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir þeir
sömu. Minnum á námskeið í ljóðagerð
sem hefst mánud. 23. jan. kl. 16.
Framsagnarhópur þriðjudaga/opinn
tími og miðvikudaga/framhaldshópur
kl. 10–12. Tölvunámskeið kl. 13 laug-
ard. Þorrablótið er 27. jan. Sendum
dagskrána í pósti eða netbréfi sé
þess óskað. Síminn er 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Boccia á
Korpúlfsstöðum á morgun, mánudag,
kl. 13.30. Ganga frá Egilshöll klukkan
10 á morgun, mánudag.
SÁÁ félagsstarf | Fluguhnýting-
arnáskeið verður í Síðumúla 3–5
föstudag, laugardag og sunnudag kl.
17. Verð kr. 4000. Félagsstarf SÁÁ.
Vesturgata 7 | Þorrablót verður
haldið föstudaginn 10. febrúar, nánar
auglýst síðar. Upplýsingar og skrán-
ing í síma 535 2740.
Kirkjustarf
Hafnarfjarðarkirkja | Sunnudaga-
skóli er alla sunnudaga kl. 11–11.45.
Biblíusögur og söngvar.
Háteigskirkja | Alla mánudaga kl. 13
er spiluð félagsvist í Setrinu í Há-
teigskirkju. Kaffi kl. 15.
Hjallakirkja | Eldra æskulýðsfélag
Hjallakirkju, Dittó, heldur fundi kl. 20-
22.
Hvaleyrarskóli | Sunnudagaskóli er
alla sunnudaga kl. 11–12. Biblíusögur,
brúður og söngvar.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK
Holtavegi 28, þriðjud. 24. jan. kl. 20 í
umsjón Lilju Baldvinsdóttur, kennara.
Kaffi. Allar konur eru velkomnar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Reykjavíkurmótið.
Norður
♠G86
♥ÁG84 N/Allir
♦ÁK854
♣D
Vestur Austur
♠D7432 ♠Á9
♥-- ♥KD10975
♦G10973 ♦D62
♣K107 ♣85
Suður
♠K105
♥632
♦--
♣ÁG96432
Þegar spilarar koma í hrönnum og
með sama krotið á blaði er nokkuð
öruggt að feitt er á stykkinu.
Vestur Norður Austur Suður
Erlendur Bjarni Guðm. Sigurbjörn
-- 1 tígull 1 hjarta 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 3 lauf
Pass 3 grönd Pass Pass
Dobl Pass Pass 4 lauf
Pass Pass Dobl Allir pass
Spilið kom upp í 5. umferð Reykja-
víkurmótsins. Mörg NS-pör reyndu
þrjú grönd eða fimm lauf, en höfðu
ekki erindi sem erfiði, enda vantar
aðeins upp á styrkinn og legan er
ekki hagstæð.
Sagnirnar að ofan eru frá við-
ureign Eyktar og Vinabæjar. NS eru
Bjarni H. Einarsson og Sigurbjörn
Haraldsson, en AV Erlendur Jóns-
son og Guðmundur Sveinsson.
Erlendur doblaði þrjú grönd í tví-
þættum tilgangi – hann vissi að leg-
an var slæm og vildi síður fá út
hjarta. Sigurbjörn tók Erlend trúan-
legan og rann af hólmi í fjögur lauf,
sem Guðmundur doblaði „til að æsa
leikinn“.
Fljótt á litið virðist vandalítið að
vinna fjögur lauf, en ekki er allt sem
sýnist. Erlendur hitti á gott útspil –
lítinn spaða, sem Guðmundur drap
með ás og spilaði aftur spaða. Eftir
þessa byrjun er sagnhafi dæmdur
maður. Sigurbjörn gerði sitt besta
með því að drepa á spaðakóng og
spila spaða um hæl, en Guðmundur
trompaði þann slag (af makker sín-
um) og skipti yfir í hjarta. Erlendur
stakk og fékk svo fjórða slaginn á
laufkóng.
Það er sama hvað sagnhafi gerir.
Ekki má hann spila laufás og laufi,
því þá fær vestur tvo slagi á K10, né
heldur litlu laufi á drottninguna eða
hjarta. Allt ber að sama brunni, vest-
ur mun fá tvo slagi á tromp.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is