Morgunblaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 63
Umsjón hefur Ástráður Eysteinsson ásamt
Hörpu Björnsdóttur. Skráning hjá Mími-
símenntun í síma 5801800 eða á
www.mimir.is
Fréttir og tilkynningar
Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið er á móti
matvælum, fatnaði og leikföngum alla mið-
vikudaga kl. 13–17. Úthlutun matvæla er alla
miðvikudaga kl. 15–17 að Eskihlíð 2–4 V/
Miklatorg. Þeir sem vilja styðja starfið fjár-
hagslega, geta lagt inn á reikning 101-26-
66090 kt. 660903-2590.
Fyrirlestrar og fundir
Þjóðminjasafn Íslands | Þór Sigfússon
hagfræðingur flytur erindi í fundaröð Sagn-
fræðingafélags Íslands, „Hvað er útrás?“
Erindið nefnist „Útrás og innrás í sögulegu
ljósi“ og verður flutt 24. jan. kl. 12.10.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 63
DAGBÓK
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5
5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Be3 c5 8. Dd2
Da5 9. Hb1 b6 10. Bc4 Bb7 11. f3 Rc6 12.
Re2 cxd4 13. cxd4 Dxd2+ 14. Kxd2 Hd8
15. Hhd1 Bxd4 16. Rxd4 Rxd4 17. Kc3
Rc6 18. Hxd8+ Rxd8 19. Hd1 Bc6 20.
Bh6 Hg8 21. h4 Re6 22. Hd2 Bd7 23.
Be3 h5 24. Kb4 Rd8 25. Kc3 Hf8 26. Bh6
Hh8 27. Bf4 Hf8 28. Bb8 Rc6 29. Bc7
Ra5
Staðan kom upp á minningarmóti
Keresar sem lauk fyrir skömmu í Tall-
inn í Eistlandi. Heimsmeistarinn fyrr-
verandi, Anatoly Karpov (2.672), hafði
hvítt gegn Alexei Shirov (2.710). 30.
Bb5! og svartur gafst upp þar sem hann
tapar nú manni eða verður mát eftir
30. … Bxb5 31. Hd8#. Karpov varð
efstur á mótinu ásamt Ivansjúk og Kas-
imdzhanov á meðan Shirov fékk ein-
göngu hálfan vinning og vermdi neðsta
sætið. Lokastaða mótsins varð annars
þessi: 1.–3. Vassily Ivansjúk (2.748),
Anatoly Karpov (2.672) og Rustam
Kasimdzhanov (2.670) 7 vinninga af 9
mögulegum. 4. Emanuel Berg (2.540)
5½ v. 5.–6. Vladimir Kosyrev (2.530) og
Nikita Vitiugov (2.538) 4½ v. 7. Vasily
Yemelin (2.529) 4 v. 8. Riho Liiva (2.411)
3½ v. 9. Evgeny Agrest (2.571) 1½ v. 10.
Alexei Shirov (2.710) ½ v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Launasjóður fræðiritahöfunda
Auglýsing um starfslaun
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Launasjóður fræðiritahöfunda auglýsir eftir umsóknum um starfslaun
úr sjóðnum sem veitt verða frá 1. júní 2006.
Rétt til að sækja úr Launasjóði fræðiritahöfunda hafa höfundar alþýðlegra fræðirita,
handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku. Meginhlutverk
Launasjóðs fræðiritahöfunda er að auðvelda samningu bóka, og verka í stafrænu
formi, til eflingar íslenskri menningu. Starfslaun eru veitt til hálfs árs, eins árs, til tveggja
ára eða þriggja. Þeir sem hljóta starfslaun úr sjóðnum skulu ekki gegna föstu starfi
meðan á starfslaunatímanum stendur. Starfslaun miðast við núgildandi kjarasamning
félags háskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar nk. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást
á Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) á Laugavegi 13, sími 515 5800, eða á heimasíðu
RANNÍS - www.rannis.is.
Umsóknir sendist til:
Launasjóður fræðiritahöfunda, RANNÍS, Laugavegi 13, 101 Reykjavík.
KAMMERMÚSÍKKLÚBBURINN
efnir til tónleika í Bústaðakirkju í
kvöld kl. 20. Á efnisskrá verða tvö
verk, Píanókvartett í g-moll eftir
Mozart og Strengjakvartett í Es-dúr
op. 74, Hörpukvartettinn, eftir
Beethoven.
Flytjendur eru Sigrún Eðvalds-
dóttir og Zbignew Dubik fiðluleik-
arar, Þórunn Ósk Marinósdóttir
víóluleikari, Bryndís Halla Gylfadótt-
ir sellóleikari og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari. Áður hafði
verið auglýst að Gerrit Schuil léki á
píanóið, en vegna óhapps í hálku leys-
ir Anna Guðný hann af hólmi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bryndís Halla Gylfadóttir, Þórunn
Ósk Marinósdóttir, Sigrún Eðvalds-
dóttir og Zbigniew Dubik. Á mynd-
ina vantar Önnu Guðnýju Guð-
mundsdóttur.
Kammermús-
íkklúbburinn
Nordjobb er ungmennaskiptaverkefnisem miðlar sumarstörfum til ungs fólksá Norðurlöndum á aldrinum 18-28 ára.Nordjobb hefur starfað frá árinu 1985
og hafa um sextán þúsund ungmenni tekið þátt í
verkefninu síðan þá. Á hverju ári fá um 7-800 Norð-
urlandabúar á aldrinum 18-28 ára starf gegnum
verkefnið; sem fjármagnað er af norrænu ráð-
herranefndinni, en stýrt af Norrænu félögunum í
einstökum löndum. Yfirleitt fara á milli sjötíu og
áttatíu ungmenni á hverju sumri héðan frá Íslandi
til einhvers annars Norðurlandanna og hingað til
lands hafa komið um hundrað ungmenni frá hinum
Norðurlöndunum.
„Nordjobb er frábær möguleiki fyrir íslensk
ungmenni til að kynnast nágrannalöndunum og
bæta kunnáttu í Norðurlandatungumálunum,“ seg-
ir Alma Sigurðardóttir verkefnisstjóri Nordjobb á
Íslandi. „Frá og með 2. janúar síðastliðnum var
hægt að byrja að sækja um Nordjobb fyrir sumarið
2006. Á aðeins tveimur vikum hefur áhuginn verið
gífurlegur og heimasíða verkefnisins verið mikið
skoðuð. Alls hafa borist tæplega tvö þúsund um-
sóknir frá ungmennum í leit að ævintýrum á þess-
um stutta tíma.“ Alma segir Nordjobb sjá um að út-
vega húsnæði, sem er ýmist á stúdentagörðum, í
stúdentaíbúðum eða íbúðum á almennum leigu-
markaði sem viðkomandi deilir þá með öðrum á
vegum Nordjobb. Fólk sem fer í landbúnaðarvinnu,
býr yfirleitt á bæjunum þar sem það er að vinna.
„Þetta eru yfirleitt dæmigerð sumarstörf; garð-
yrkja, umönnun og ýmiss konar þjónustustörf, en
þó hafa líka komið sérhæfðari störf öðru hvoru. Á
vegum verkefnsins er líka boðið upp á spennandi og
fjölbreytta tómstundadagskrá fyrir „nordjobbara“,
sem hefur það að markmiði að efla kunnáttu í
tungumálum og kynna menningu þess lands sem
viðkomandi heimsækir. Yfirleitt eru haldin svoköll-
uð þjóðakvöld, þar sem boðið er upp á mat frá því
Norðurlandanna sem re verið að kynna hverju
sinni, skemmtiatriði eru líka á dagskránni og sagt
frá landinu. Þetta er mjög skemmtileg kynning
sem nær yfir öll Norðurlöndin. Svo er líka farið í
allskonar ferðir, haldin eru námskeið í tungumáli
landsins og margt fleira.“
Þeir sem fara til starfa á vegum Nordjobb þurfa
sjálfir að borga fargjaldið og húsnæðið en fá að
sjálfsögðu laun fyrir vinnu sína í því landi sem þeir
starfa í.
Umsóknarfrestur er til 31. maí næstkomandi.
Nordjobb | Ungmennaskiptaverkefni sem miðlar sumarstörfum
Alma Sigurðardóttir
er fædd í Reykjavík 13.
mars árið 1981. Hún er
stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
og mun útskrifast með
BA-próf í spænsku frá
Háskóla Íslands í febr-
úar 2006. Alma starf-
aði sem „nordjobbari“
við heimaþjónustuna á
Álandseyjum sumarið
2001, hún var tómstundafulltrúi Nordjobb
sumarið 2004 og er nú starfandi verkefnis-
stjóri hjá Nordjobb síðan um síðustu áramót.
Tækifæri til að kynnast
nágrannalöndunum
Hægt er að sækja um á heimasíðu Nordjobb
www.nordjobb.net og eins gefur Alma nánari
upplýsingar í s. 551 0165 eða 899 9210 og í
gegnum netfangið island@nordjobb.net.