Morgunblaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Erum með í sölu mjög gott 630 fm
atvinnuhúsnæði á jarðhæð sem
skiptist í skrifstofuaðstöðu og lag-
erpláss með tveimur góðum inn-
keyrsludyrum. Nánari uppl. á skrif-
stofu FM í síma 550 3000. Verð 70
millj. 90710
Dugguvogur - Atvinnuhúsnæði
Erum með í sölu 173 fm atvinnu-
húsnæði á góðum stað við Eið-
istorg. Húsnæðið er að mestu einn
salur. Húsnæðið býður upp á ýmsa
möguleika.
Nánari uppl. á skrifstofu FM í síma
550 3000. Einnig fmeignir.is og
mbl.is. Verð 25 millj. 90709
Eiðistorg - Seltjarnarnesi
Erum með í sölu 53 fm tveggja
herb. íbúð á efstu hæð ofarlega við
Grettisgötu. Kjörin eign sem fyrsta
eign.
Nánari uppl. á skrifst. FM í síma
550 3000. Verð 12,5 millj. 10850
Grettisgata
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-16
VESTURÁS 64 - EINBÝLI
Vorum að fá í sölu þetta
reisulega 260 fm einbýlis-
hús á einstökum útsýnis-
stað rétt fyrir ofan Elliðaár-
dalinn með útsýni yfir
borgina, Snæfellsjökul,
Esjuna og víðar. Húsið er
allt hið glæsilegasta og er
sérlega vel skipulagt. M.a.
5 rúmgóð herbergi, góðar
stofur og rúmgott eldhús
með hurð út á sólpall.
Suðvestursvalir og austur-
svalir út úr 3 herbergjum.
Mjög fjölskylduvænt hús á
frábærum stað.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
Verð 56,7 millj.
Húsið verður til sýnis í dag á milli kl. 14 og 16
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Í einkasölu glæsilegt um 166,9 fm
endaraðhús á tveimur hæðum auk
ca.40 fm rislofts, samtals um 210
fm. Innb. bílskúr. Húsið er vel stað-
sett í afar góðu og barnvænu hverfi
við Bæjargil í Garðabæ. Eignin
skiptist í forst., hol, eldhús, stofu,
borðst., gestasn., þvottah., sól-
stofu, 4-5 herb, baðherb. og bíl-
skúr. Fallegar innr. og gólfefni eru
parket og flísar. Falleg lóð með
glæsil. sólpalli, hellul. plani, útigeymslu og tilheyrandi. Stutt er í leikskóla, grunn-
skóla og framhaldskóla. Myndir af eigninni eru á mbl.is. Upplýsingar veittir Þor-
björn Helgi. 8960058.
Bæjargil - Hf. Raðh.
Mjög fallegt 169,2 fm tveggja
íbúða hús ásamt 45 fm bílskúr,
samtals um 214,2 fm. Húsið er
byggt árið 1947 og stendur á glæsi-
legri 1390 fm lóð. Forstofa, hol,
eldhús, búr, stofa, baðherbergi,
barnaherbergi og hjónaherbergi. Í
risi er eitt herbergi undir súð, hol
og geymslur. Eigninni fylgir stúdeóíbúð með sérinngangi. Bílskúr er byggður 1977.
Frábær staðsetning. Uppl. veitir Þorbjörn Helgi í s. 896 0058.
Skólagerði - Kóp. einb.
Hraunhamar fasteignasala kynnir
nýtt í einkasölu mjög fallega og vel
skipulagða 100,1 fm, 4ra herb. íbúð
á 2. hæð í góðu fjölbýli, vel staðsett
á Holtinu í Hafnarfirði. Eignin skipt-
ist í forstofu, hol, eldhús, stofu,
borðstofu, sjónvarpshol, tvö barna-
herbergi, hjónaherbergi, baðher-
bergi, þvottahús og geymslu. Fallegar innréttingar og gólfefni eru parket og flísar.
Ný standsettur 4ra íbúða stigagangur. Glæsileg eign, verð 19,9 millj. Myndir af
eigninni á mbl.is.
Suðurbraut - Hf. 4ra herb.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunhamar fasteignasala
hefur fengið í einkasölu mjög
glæsilega 134,3 fm neðri hæð
í tvíbýli með sérinngangi.
Stæði í bílageymslu. Íbúðin er
vel staðsett á frábærum
útsýnisstað í austurhlíðum
Vatnsendahvarfs. Hæðin
stendur hátt og er fagurt
útsýni yfir Elliðavatn og
Heiðmörk og allt að Hengilssvæðinu, Vífilsfelli og Bláfjöllum. Hæðin skiptist
í anddyri, gang, gestasnyrtingu, hol, eldhús, stofu, borðstofu,
hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, geymslu og þvottahús.
Glæsilegar innréttingar frá HTH, tæki frá AEG og gólfefni hlynparket og
mustangflísar. Eign í algjörum sérflokki. Verð 34,9 millj.
Til afhendingar strax. Myndir af eigninni á mbl.is
Asparhvarf 19D - Sérh. - Kóp.
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG
FRÁ KL. 15:30 TIL 16:30
LESTAKERFI á Íslandi er
fýsilegur kostur ef menn kasta af
sér hlekkjum vanans og dirfast að
hugsa út fyrir ramm-
ann. Víða um heim
hafa lestir gengið í
endurnýjun lífdaga,
einkum þar sem kraf-
ist er orkusparnaðar
og lækkunar launa-
kostnaðar. Reykvík-
ingar gætu hætt að
rífast um Reykjavík-
urflugvöll og skatt-
borgarar sparað sér
háar fjárhæðir sem
annars færu í tvöföld-
un Hvalfjarðarganga
og annarra vegabóta.
Umskipunarhöfn fyrir gáma á leið
frá Asíu til Evrópu og austur-
strandar Ameríku er fýsilegur
kostur á Austurlandi ef Íslend-
ingar byggja upp öflugt lestakerfi
í landinu.
Úr hlekkjum vanans
Miklar breytingar hafa átt sér
stað í samgöngumálum í nágrenni
höfuðborgarinnar. Opnun Hval-
fjarðarganga markaði tímamót og
afnám strandsiglinga sömuleiðis.
Um leið jókst álag flutninga á
veikburða vegi landsins sem vissu-
lega hafa sumstaðar verið lag-
færðir. Borgaryfirvöld vilja fá
landsvæði Reykjavíkurflugvallar
og nota undir byggingar en lands-
byggðarfólk kvartar undan því að
45 mínútna aksturstími til Kefla-
víkur sé of langur, eigi sá flug-
völlur að koma í staðinn. Lausn
þessara vandamála er að byggja
upp háhraða lestakerfi um land
allt. Lestir ferðast auðveldlega
tvöfalt (vöruflutningar) til þrefalt
(farþegaflutningar) hraðar en öku-
tæki ef miðað er við löglegan há-
markshraða.
Helmingi fljótari
til Akureyrar
Flutningsgeta járnbrauta er
margfalt meiri en
vörubíla og þess
vegna er rökrétt að
byggja upp nýtt lesta-
kerfi í stað þess að
lappa sífellt upp á
vegina.
Járnbrautir geta
legið frá Reykjavík til
Reykjaness, yfir
Sprengisand til Ak-
ureyrar og þaðan
austur að Mývatni,
um Vesturland bæði
til Vestfjarða og um
Norðurland til Ak-
ureyrar, og svo suður meðfram
ströndinni til Víkur eða Hafnar.
Einnig er hringur um Austfirði
hugsanlegur sem tengdist Norður-
landi og e.t.v. Suðurlandi líka.
Lestakerfi gæti þjónað bæði fólks-
og vöruflutningum og nýtt ís-
lenska orku, s.s. rafmagn og vetni,
og þar af leiðandi orðið afar hag-
stæð fyrir þjóðarbúið, ekki síst
með hækkandi heimsmarkaðsverð
á olíu í huga.
Hugmyndin um hraðlest milli
Keflavíkur og Reykjavíkur hefur
skotið upp kollinum af og til, eink-
um á síðum Morgunblaðsins.
Sama má segja um hugmyndina
um sporvagna- eða léttlestakerfi
fyrir höfuðborgarsvæðið. Mest
skilvirkni fæst ef bæði þessi kerfi
eru notuð saman, og eftir því sem
fleiri áfangastöðum er þjónað.
Ferðahraði lesta miðað við hefð-
bundnar vegasamgöngur leiðir til
augljóss tímasparnaðar. Lest sem
ferðast á 300 kílómetra hraða væri
til dæmis helmingi fljótari til Ak-
ureyrar en einkabíll þrátt fyrir
nokkra viðkomustaði á leiðinni.
Í Ölpunum eru bílar og rútur
flutt með lestum á veturna, m.a.
vegna þess að lestarsamgöngur
eru óháðari veðri en vega-
samgöngur eða flugsamgöngur,
gagnstætt því sem margir halda.
Til er það sem heitir hraðbraut á
hjólum þar sem fjöldi stórra vöru-
flutningabíla er færður gegnum
heil lönd. Járnbraut yfir Sprengi-
sand sem tengir Norður- og Suð-
urland getur þjónað sama hlut-
verki. Slíkt samgöngumannvirki
getur bæði nýst til vöru- og fólks-
flutninga. Erlendir ferðamenn
fengju tækifæri til að sjá miðhá-
lendi Íslands á þægilegan og
fljótlegan hátt og þessi ferðamáti
fyrirbyggði utanvegaakstur að
einhverju leyti. Á sama hátt
myndi járnbraut kringum landið,
með tengingu til Ísafjarðar, skapa
áður óþekkta möguleika í ferða-
þjónustu.
Aðalhöfn landsins
á Austfjörðum
Verði járnbraut lögð hringinn í
kringum landið skapar það ýmiss
konar viðskiptatækifæri fyrir fyr-
irtæki á landsbyggðinni og
stækkar atvinnusvæði höfuðborg-
arinnar verulega. Og um leið létt-
ir á lóðaskorti innan höfuðborg-
arinnar. Án tilkomu járnbrautar
verður brátt nauðsynlegt að tvö-
falda Hvalfjarðargöngin, einkum
ef sjóflutningar flytjast að nokkru
eða öllu leyti úr Sundahöfn norð-
ur fyrir Hvalfjörð.
Sjóleiðin norður fyrir Rússland
verður brátt fær samkvæmt rann-
sóknarniðurstöðum vísindamanna.
Þá opnast fyrir siglingar frá Asíu
til Evrópu og austurstrandar Am-
eríku og stóra gámaumskip-
unarhöfn kemur til með að vanta
á leiðinni, t.d. á Austfjörðum. Í
augsýn er stórkostlegt við-
skiptatækifæri fyrir Íslendinga
haldi þeir rétt á spilunum.
Maltverjar færðu sér legu eyj-
arinnar í Miðjarðarhafi í nyt og
sjá um umskipun gáma sem koma
um Súesskurð á leið til Miðjarð-
arhafshafna. Slík höfn á Aust-
fjörðum getur orðið aðalhöfn
landsins ef öflugar járnbraut-
arsamgöngur eru til staðar. Ís-
lendingar þurfa að kasta af sér
hlekkjum vanans og nýta sér
kosti járnbrauta fyrir vöru- og
fólksflutninga.
Járnbraut – það er málið
Jens Ruminy fjallar
um samgöngur ’Sjóleiðin norður fyrirRússland verður brátt
fær samkvæmt rann-
sóknarniðurstöðum
vísindamanna.‘
Jens Ruminy
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
smáauglýsingar
mbl.is